Morgunblaðið - 11.05.1982, Blaðsíða 43
I
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
23
GETRAUNASÍÐA MORGUNBLAÐSINS 1X2 -- 1X2 - 1X2
o
Getraunaspá
35. leikviku
Þið fenguö frí frá mér í síðustu viku af óviöráðanlegum ástæðum, sem var
eins gott þar sem spáin var víst meö lakasta móti. Eins og þiö munið
kannski, þá gaf spáin í 33. leikviku mörguleika á 11 réttum. Við athugun
kom i Ijós að kerfið hefði gefið 11 og það hefði þýtt um 7.500 kr. í vinning ef
ég hefði skilað því inn. En því miður ...
1. Arsenal: Southampton X (1X2)
Þetta er mjög mikilvægur leikur þar sem hann getur ráðið úrslitum um
hvort liðið fær 4. sætið í UEFA-keppninni. Southampton verður að sigra til að
eiga möguleika, en ég er hræddur um að þeir nái ekki meiru en jafntefli, og
ætla að spá því, en auðvitað þrítryggðu. Southampton vann á The Dell 3—1.
2. Aston Villa : Everton X (1X2)
Annar erfiður leikur á milli tveggja liða sem bæði hafa verið í formi að
undanfórnu. Villa er þó með annað augað á úrslitaleiknum í Evrópukeppn-
inni, svo að ég hugsa að Everton nái a.m.k. einu stigi. Spáin er jafntefli,
þrítryggt. Everton vann á Goodison Park 2—0.
3. Coventry: Birmingham 1 (1X2)
Coventry hefur verið ósigrandi síðasta mánuðinn. En Birmingham þarfn-
ast stiganna lífsnauðsynlega. Coventry hefur unnið 5 síðustu leiki gegn
Birmingham á heimavelli og ætli þeir bæti ekki enn einum sigrinum við.
Spáin er heimasigur en þrítryggður. Liöin gerðu jafntefii í Birmingham 3—3.
4. Ipswich : Nottingham Forest 10
Ipswich berst enn við skuggann af Liverpool og þeir þurfa meira en
venjulegan skammt af heppni ef titillinn á ekki að hverfa þeim sjónum. Hér
vinna þeir þó auðveldan sigur enda hefur Forest ekki unnið leik síðan fyrir
páska. Spáin er heimasigur. Liðin gerðu jafntefli í Nottingham 1—1.
5. Leeds United : Brighton 1 (1X2)
Leeds ætlar að ganga erfiölega að losna úr fallsæti. En hér eiga þeir þó
góða möguleika á að krækja sér í stig og jafnvel fleiri en eitt. Brighton hefur
aðeins unnið einn leik síðan í mars, en Leeds hefur svo sem ekki unnið
miklu fleiri. Spáin er heimasigur, þrítryggður. Brighton vann heima 1—0.
6. Liverpool : Tottenham 1 (1X2)
Aðalleikur vikunnar er á milli (ef allt fer eins og vænta má) tilvonandi
deildar- og bikarmeistara. Ef marka má fyrri leiki eiga Spurs engan mögu-
leika á sigri hér, því að þeir unnu síðast á Anfield árið 1912. Ég spái
Liverpool auðvitað sigri, en ætla að þrítryggja með. Fyrri leikur liðanna var
spilaður í síðustu viku og fór 2—2.
7. Manchester United : Stoke 1°
Rauðu djöflarnir hafa leikið vel í undanförnum leikjum, en gengur samt
ekki nógu vel að skora mörk. Stoke er í harðri fallbaráttu, en er réttu megin
við strikið í augnablikinu. Ég sé ekki að þeir bæti við stigafjöldann hér, þó að
Mcllroy verði ákafur að sýna gömlu aðdáendunum getu sína. Spáin er
heimasigur. United unnu 3—0 í Stoke.
8. Notts County : WBA 2 (1X2)
Leikur þessara grannliða er einn af mörgum sem gæti haft úrslitaáhrif á
hvaða lið fellur. County eru öruggir, en Albion verða að taka sig alvarlega á
ef vel á að fara. Ég ætla aö vera djarfur og spá þeim sigri, en hér veitir ekki
af þrítryggingu. County vann í West Bromwich 4—2.
9. Sunderland : Manchester C.1°
Jæja, þá er að duga eða drepast fyrir Sunderland, ef þeir vinna, þá sleppa
þeir við fallið nokkuð örugglega, en ef þeir tapa þá er ég ansi hræddur um að
hin liðin sigli fram úr. City hefur ekki unnið nema 1 leik síðan fyrir páska og
hafa verið mjög lélegir. Spáin er öruggur heimasigur og 1. deildarsæti hjá
Sunderland næsta vetur. Þeir unnu á Maine Road 3—2.
10. Swansea : Middlesbro 1°
Swansea-sigur í þessum leik mundi tryggja þeim Evrópusæti næsta vetur.
Middlesbro bíður ekkert nema fallið, en þeir berjast þó enn af veikum
mætti. Spáin er heimasigur. Liðin gerðu jafntefli á Ayresome Park, 1—1.
11. Wolves : West Ham 1 (1x2)
Ulfarnir eru svo gott sem fallnir og sigur hér mundi aðeins lengja dauða-
stríðið. West Ham hafa leikið ágætlega á köflum að undanförnu en dottið
niður á milli. Þessi leikur getur farið hvernig sem er, en ég ætla að spá
jafntefli. West Ham vann 3—1 á Upton Park.
12. Derby: Watford 2 (X2)
Watford hefur þegar tryggt sér 1. deildarsæti næsta vetur og hefur verið
mjög sannfærandi að undanfórnu. Derby er nokkuð öruggt með sætið í
deildinni. Ætli strákarnir hans Elton John endi ekki gott keppnistimabil með
sigri. Ég ætla allavega að spá því, en tvitryggja með jafntefii. Watford vann
sinn stærsta sigur í vetur gegn Derby heima, 6—1.
lsí;
Gunnar Þjóðólfsson
Gunnar náði bestum
árangri í síðustu viku og
bætti við sig 20 stigum.
Hefði hann fyllt út kerfið
skv. spá sinni hefði hann hlotið 11
rétta.
Gylfi Gautur Pétursson
Gylfi missti forystuna
til Gunnars en náði þó
þremur föstum, þremur
U-merkjum og hálf-
tryggða leiknum réttum. Samtals 16
stig.
31
30
8 The Football League
.eikir 15. mal 1982
1 Arsenal - South’pton
2 Aston Villa - Everton
3 Coventry - Birming'm
4 Ipswich - Nott’m For.
5 Leeds - Brighton
6 Liverpooi - Tottenham
7 Ivian. Unitod - Stoke
8 Notts County - V7.B A.
9 Sundcrland - Man City
10 Swansea - Middlesbro
11 Woives - Wost Ham
12 Dcrby - Watlord
f> The Footbalt League
Leikir 15. mal 1982
1 Arsennl - South’pton
2 Aston Villa - Everton
3 Coventiy - Birming’m
‘1 Ipswich - Nott’m For.
5 Leeds - Brlgl.ton
6 t.iverpoc - Tottenhrm
7 Man. United - Stoke
8 Notts County - W 3.A.
9 Sunderland - Ma.n City
10 Sv/arsca - Middlosbro
11 Wolves - West Ham
1? Drrby - Watford
Ari Gunnarsson
Ari fékk 14 stig fyrir
þrjá fasta leiki, tvö U-
merki og hálftryggða
leikinn. Nú er síðasta
tækifærið til að rétta sinn hlut.
Magnús Ingimundarson
Magnúsi gekk illa með
föstu leikina en heldur
þó í við toppmennina.
Hann hafði tvo fasta og
fjögur U-merki rétt og fékk 14 stig.
25
27
© The Football League
Leiklr 15. mai 1982
1 Arsenal - South’pton
2 Aston Villa - Everton
3 Coventry - Birmi.ng’m
•f Ipswich - Nott’m For.
5 Leeds - Brighton
6 Liverpool - Tottenham
7 Man. United - Stoke
8 Notts County - W.B.A.
9 Sunderland - M ;n City
10 Swansca - Mid'Jlesbro
11 Woives - West Ham
1? Derby - Watlord
© The Foolball t.eague
Leikir 15. mai 1982
1 Arsenal - South’pton
2 Aston Villa - Everíisn
3 Coventry - Birmmg'm
'I Ipswich - Nott'rr. For.
5 Leeds - Brighton
6 Livcrpool - Tottanham
7 Man. United - Stoke
8 Notts County - W.B.A.
9 Sunderland - M.;n City
10 Swansea - Middiesbro
11 Wolvas - West Ham
12 Derby - Watford
Asgeir skrifaði
undir hjá
Stuttgart á laugardaginn
ÁSGEIK Sigurvinsson skrifaði um
helgina undir samning við vestur-
þýska knattspyrnufélagið Stuttgart
eins og íað var að í Mbl. fyrir helg-
ina. Lita forráðamenn félagsins á
Ásgeir sem eftirmann Hansa Miiller
sem seldur var til ítaliu fyrir miklar
fjárupphæðir. Má þvi fastlega búast
við því að Ásgeir fái betra tækifæri
og fleiri til að sýna hvað i honum býr
en hjá Bayern Miinchen.
Stuttgart er eitt af bestu knatt-
spyrnuliðum Vestur-Þýskalands og
með því leika margir þekktir og
snjallir knattspyrnumenn. Má þar
fremsta telja Karl-Heinz og Bernd
Förster, tvíburabræðurna, og þá
Dieter Miiller og Ilidier Six, sem er
franskur landsliðsmaður.
Síðasta
tækifærið
Nú er komið að lokum glæsi-
legustu vertíðar í sögu Getrauna.
Salan hefur aukist gífurlega og vinn-
ingarnir hækkað að sama skapi.
Margoft hefur fyrsti vinningur verið
hátt á annað hundrað þúsund og eru
þeir víst fáir sem ekki munar um
slíka búbót.
Líklegt er að „potturinn’’ verði
með allra stærsta móti í þessari viku
því margir ætla sér að ná nú i þann
stóra, sem af einhverjum orsökum
hefur ekki komið í vetur.
Árni ráðinn
aðstoðarþjálfari
KR-ingar hafa ráðið Árna Steins-
son til aðstoðar Hólmberti Friðjóns-
syni við þjáifun meistaraflokks. Árni
hefur leikið með öllum flokkum fé-
lagsins, m.a. meistaraflokki, þar til
hann lenti í erfiöum meiðslum. Þá
hefur hann annast þjálfun yngri
flokka með góðum árangri.
Valsmenn
bjóða í
kaffisopa
í dag, 11. maí, er afmælisdagur
V'als. í tilefni dagsins er öllum Vals-
mönnum og velunnurum félagsins
boðið til kaffidrykkju í félagsheimil-
inu við Hliðarenda kl. 16.30 í dag.
Aðalfundur
hjá knatt-
spyrnuþjálfurum
Næstkomandi fimmtudag verður
knattspyrnuþjálfarafélag íslands
með aöalfund sinn. Fundurinn verð-
ur í veitingahúsinu Ártúni og hefst
stundvíslega kl. 21. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Áriðandi er aö allir
knattspyrnuþjálfarar fjölmenni á
fundinn.
Heimir í
Stjörnuna
HEIMIR Karlsson, handknattleiks-
maður úr Víkingi, hefur tilkynnt fé-
lagaskipti yfir í Stjörnuna í Garðabæ
og mun hann leika með liðinu í 1.
deild á næsta keppnistímabili.
Heimir hefur lengst af vermt vara-
mannabekk Vikings og næstum eng-
in tækifæri fengið með aðalliðinu.
Y'æntanlega hefur Stjarnan þó not
fyrir krafta hans í hinni hörðu
baráttu sem framundan er.