Morgunblaðið - 11.05.1982, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
45
ve^akaNdi
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
Fáiði aldrei þef
af gleðitíðindum?
„Kæni Matthías, Styrmir, Velvak-
andi og þið allir.
Mikil feiknabýsn er þreytandi
þetta andlit sem þið hafið á blaði
ykkar. Þið getið ekki ímyndað
ykkur hve pirraður ég verð af að
horfast í augu við Moggann um
morgna. Stundum segi ég þó við
sjálfan mig: Þeir vita ekki betur
greyin og þeir geta ekki betur
greyin, þeir halda að enginn at-
burður í veröldinni verðskuldi
þrykk á forsíðu blaðs allra lands-
manna nema morð eða fjöldamorð
eða tilraun til fjöldamorðs.
Hvernig er þetta eiginlega með
ykkur Moggara, fáiði aldrei þef af
gleðitíðindum úr öllum þessum
stóra stóra heimi? Eru músíkant-
ar hættir að gera lukku? Fá skáld
aldrei verðlaun? Bjargar enginn
öðrum frá drukknun? Nær enginn
byssunni frá morðingjanum svo
hann nái ekki að skjóta litla barn-
ið þannig að litla barnið lifi en
þurfi ekki að deyja? Eða gerist
ýmislegt svonalagað á ýmsum
stöðum en er bara svo ómerkilegt í
ykkar augum að það gæti glatt
einhvern og þarafleiðandi ekki só-
andi plássi í það á forsíðu víðlesn-
asta blaðs íslendinga?
I guðsalmáttugsbænum reyniði
nú sem allra fyrst að flikka obbo-
lítið uppá forsiðu blaðs allra
landsmanna áður en ég neyðist til
að trúa að þið séuð þeirrar mann-
tegundar sem engan fögnuð þekkir
nema ófarafögnuð.
Með fagnaðarkveðju,
Ónugur.“
— O —
Það er löng hefð á bak við það,
að Mbl. birtir heimsfréttirnar á
forsíðu og hefur ekki þótt ástæða
til að breyta því. Auk þess er
venjulega heil opna af ýmiss kon-
ar erlendum fréttum inni í blaðinu
og þar kennir margra grasa, m.a.
eru þar stundum fréttir af verð-
launum til listamanna, Nóbels-
verðlaunum, Óskarsverðlaunum,
Norðurlandaráðsverðlaunum
o.s.frv. Því miður eru gleðitíðindin
fyrirferðarminnst í heimsfréttun-
um en þau fara á forsíðuna þegar
ástæða er til. Við höfum sem betur
fer oft haft ástæðu til að gleðjast
yfir forsíðu Morgunblaðsins. En
gagnrýni er góð og við þökkum að-
haldið. En því miður stjórnum við
ekki heimsfréttunum.
Ritstj.
í>essir hringdu . . .
Kurteisi og lipurð
SVK-bílstjóranna
Ruth Sigurbjörnsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Ég
hef búið hér í Kópavogi í u.þ.b. 26
ár og mikið þurft að notfæra mér
þjónustu strætisvagnanna. Hjá
fyrirtæki eins og SVK veltur auð-
vitað allt á því að starfsfólkið
skilji hlutverk sitt, ekki síst bíl-
stjórarnir. Og þetta hefur ekki
brugðist. Kurteisi og lipurð er það
sem fyrst og siðast hefur einkennt
framkomu þeirra, þann tíma sem
ég þekki til. Það atvik sem ungl-
ingsstúlkurnar sögðu frá í bréfi
sínu um daginn, hlýtur að vera
undantekningartilfelli, slys. Ég
þakka bílstjórunum og SVK fyrir
langa og farsæla þjónustu.
Svo var það annað, Velvakandi
góður, sem mig langaði að færa í
orð við þig, já, og benda þeim á
sem ráða dagskrá hjá sjónvarpinu:
Það er atriði sem ekki er víst að
svo auðvelt sé fyrir þá að gera sér
grein fyrir. Svoleiðis er að hjá mér
dvelst 81 árs gamall maður, faðir
minn. Þeir þættir sem honum fell-
ur best við eru þeir sem ganga
nokkuð lengi með sömu persónun-
um. í þeim eignast hann nefnilega
kunningja sem hann á alltaf von á
að hitta vikulega, og hann á auð-
velt með að fylgjast með fram-
vindunni í lífi þeirra eins og hún
birtist á skerminum. Þarna get ég
nefnt Dallas-þættina og bresku
framhaldsþættina Húsbændur og
hjú. En í þáttum eins og Huldu-
hernum eru sífellt að koma fram
ný andlit og atburðarásin er auk
þess hröð. Énda á hann líka mjög
erfitt með að fylgja þessu eftir og
muna hvað komið er. Það lyftist
heldur á honum brúnin þegar
hann hitti aftur gamlan kunn-
ingja úr Húsbændum og hjúum í
þættinum Bær eins og Alice. Það
voru fagnaðarfundir. Ég vildi að-
eins leyfa mér að benda háttvirt-
um sjónvarpsmönnum á þetta at-
riði og ljúka svo máli mínu með
því að þakka fyrir frábæra barna-
tíma.
Abending til sjónvarps og útvarps
„Útvarps- og sjónvarpsnotandi"
skrifar:
„Ég vil biðja þig, Velvakandi
góður, að koma á framfæri ábend-
ingu til útvarps og sjónvarps. Hún
varðar kannski ekki stórvægi-
legan hlut en í þessu tilfelli þarf
lítið að leggja á sig til áð bæta úr.
Núna tvo daga í röð hafa fallið
niður dagskrárliðir án nokkurra
skýringa á þeim tímum, sem þeir
áttu að hefjast. Sl. miðviku-
dagskvöld var ég ekki heima hjá
mér en kom þó nógu snemma til
að sjá lokin á þætti um stóriðju í
sjónvarpinu. í dagskrárkynningu í
Morgunblaðinu hafði ég séð að eft-
ir þáttinn áttu að vera umræður í
sjónvarpssal um stóriðjumál og
hugði gott til glóðarinnar, enda
áhugamaður um efnið. En viti
menn, þulan kom brosandi á skjá-
inn, kynnti dagskrá næsta sjón-
varpsdags og bauð góða nótt. Eng-
in skýring var gefin á því hvers
vegna engar umræður fóru fram
um stóriðjuna. Skýringuna fékk ég
í vinnunni daginn eftir, ráðamenn
okkar voru önnum kafnir í álvið-
ræðum og gátu ekki mætt. Þetta
mun hafa verið tilkynnt fyrr um
kvöldið en það er auðvitað full-
mikil bjartsýni sjónvarpsmanna
að halda að landsmenn allir hangi
fyrir framan tækin allt kvöldið og
ein tilkynning sé nóg.
Nú, sama sagan endurtók sig
kvöldið eftir í útvarpinu. Þar átti
að vera á dagskrá blaðamanna-
fundur í beinni útsendingu frá Al-
þingi kl. 19.40 og var þessi dag-
skrárliður einnig rækilega kynnt-
ur í Mogganum mínum. En enginn
kom blaðamannafundurinn, held-
ur þátturinn Á vettvangi og síðan
píanótónleikar. Engar skýringar.
Þetta er með öllu óþarfur klaufa-
skapur og tillitsleysi við hlustend-
ur.“
lllj(»0var|) kl. 10.40:
>inglausnir — bladamanna-
fundur 1 beinni útsendingu
Á dagskrá hljóðvarps kl.
||9.40 er Olaóamannafundur í
einni útsendinjju í tilefni
[ þinglausna.
Formenn flokkanna,
^ Kjartan Jóhannsson, Geir
JlallKrímsson, Svavar
Gestsson, SteinRrímur Her-
mannsson svo ok Gunnar
Thoroddsen forsaetisráö-
herra, svara spurninnum
þinjffréttaritara blaöanna
um stjórnmálaviðhorfiö.
Umsjón hefur Stefán Jón
Hafstein fréttamaöur.
Stefán Jón lUfstein
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hann vitnaði til kenningu kirkjunnar.
Rétl væri: Hann vitnaði til kenningar kirkjunnar.
GOMSCriK
f/mDRETTIR
í HADFriinr/
Mánudaga til iostudaga bjóðum við m.a. auk
hins fasta matseðils hússins.
Súpa og salatfylgir öttum réttum
Karrýbladlaukssúpa
Forréttur:
Fersk grænmetisskál með melónu 35
Eggjaréttur:
Eggjakaka með rækjum 55
Fiskréttir:
Gufusoðin heil rauðspretta með ostasósu 80
Pönnusteiktur karfi i karrýsoði 88
Smjörsteiktur skötuselur með beikoni og eplum 89
Ristuð smálúðuflök í paprikusósu 81
Kjötréttir:
Fytttur lambsbógur með ávöxtum 139
Alikálfasneiðar með karrý og hrisgrjónum 105
Léttsöltuð nautabringa með piparrótarsótu 99
ChePs Special:
Gufusoðin svartfuglsbringa með madeirasósu 120
Þjónustugjald og söluskattur innifalinn.
ARNARHÓLL
á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrœtis.
Borðapantanir i sima 18833.
SYNING
Mjðfl •tórt v-pýzkt hjólhýai á 2 ðxhim. Sv.tnptá.. fyrtr 6.
Allur huflMnl*gur búnaóur. Upptagt tyrir itartsmanna-
Paaat v-pýxku KNAUS-hú. komu i staarðum
121/2—131/2 og 151/2 tat. vðnduö og val búin.
Húsin aru lég á kayralu, an val manntuað í notk-
Fóikabilakarrur maó Ijóaum, varadakki, an án kroaavióa.
Einmg tynrligoiandi notaóar barjappakamir.
Naaatu 2 vikur, á vanjutagum varzlunartíma (að halgunum 8. og 8. maí og 15. og 16. maí maótöldum) aýnum
vtð ofantalið, baaði innan- og utanhúaa við Sundaborg, norðanmagin (Sundahatnarmagin).
Opnum aunnudaginn 2. maí kl. 2. Varið valkomin.
Gfsli Jónsson & Co. HF.
Sundaborg 41. Sími 86644