Morgunblaðið - 02.07.1982, Qupperneq 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚLl 1982
Liö íþróttabandalags Ketlavíkur. Efsta röð fré vinstri: Marinó Einarsson, Daníel Einarsson, Ólafur Júlíusson, borsteinn Bjarnason, Ólafur Birgisson, Gísli Eyjólfsson, Ragnar
Margeirsson og Karl Hermannson, þjálfari. Mióröó frá vinstri: Kári Gunnlaugsson, Kristinn Jóhannsson, Einar Ásbjörn Ólafsson, Siguróur Björgvinsson, Rúnar Georgsson og
Hermann Jónasson. Fremsta röó fré vinstri: Ingiber Óskarsson, Ingvar Guómundsson, Óli Þór Magnússon og Magnús Garðarsson.
íþróttabandalag Keflavíkur
íþróttabandalag Keflavíkur hefur fjórum
sinnum oröið íslandsmeistari í knattspyrnu.
Fyrst áriö 1964 og síöan árin 1969, 1971
og 1973. í upphafi síöasta áratugs voru
þeir meö geysisterkt liö og unnu 1. deildina
með miklum glæsibrag undir stjórn Eng-
lendingsins Joe Hooley. Síöustu ár hafa
Keflvíkingar veriö i nokkurri lægö en nú eru
þeir aftur komnir með efnilegt liö sem gæti
átt eftir aö gera góöa hluti.
Liöiö hefur þrisvar oröiö sigurvegari í 2.
deildarkeppninni í knattspyrnu, árin 1962,
1957 og síöan í fyrra.
Áriö 1975 urðu Keflvíkingar sigurvegarar
í Bikarkeppni KSÍ og er þaö í eina skiptiö
sem þeir hafa sigraö í þeirri keppni. ÍBK er
nú í neöri hluta 1. deildar, ef hægt er aö
skipta henni niöur, þar sem hún er mjög
jöfn, en þeir eiga ekki minni möguleika en
aörir á aö veröa ofarlega í deildinni. Þeir
hafa sýnt þaö í sumar aö þeir geta leikiö
ágæta knattspyrnu, liöiö er meö trausta
vörn þar sem Þorsteinn Bjarnason mark-
vöröur er aöalmaöurinn. Miöjumennirnir
eru miklir baráttukarlar og ágætlega spil-
andi og framlína þeirra er mjög skemmtileg
og léttleikandi. Ragnar Margeirsson, Óli
Þór Magnússon og gamla kempan Ólafur
Júlíusson ráöa þar ríkjum.
Keflvíkingar hafa oft tekiö þátt í Evrópu-
mótunum í knattspyrnu og einu sinni kom-
ist í aöra umferð. Þaö var árið 1979 eru
þeir sigruöu sænska liöiö Kalmar í 1. um-
ferö en voru slegnir út í næstu umferð af
tékkneska liöinu Brno. 1972 léku þeir gegn
stórliöinu Real Madrid í Evrópukeppni
meistaraliöa og töpuöu aöeins meö einu
marki gegn engu í Reykjavík og þóttu þaö
aö sjálfsögöu stór tíöindi. Hamburger SV
kom til islands 1976 og lék viö ÍBK í
Evrópukeppni bikarmeistara og lauk þeim
leik meö jafntefli, einu marki gegn einu, og
var þaö einnig mjög góöur árangur hjá
Keflvíkingum.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ1982
45
fif
Lió UBK. Standandi f.v.: Frítz Kiaaing þjélfari, Gunnar Steinn Pálsson, Hékon Gunnarsson, Ólafur Björnsson, Helgi Helgason, Þórarinn Þórhallsson, Björn Þór Egilsson, Valdimar
Valdimarsson, Ómar Rafnsson, Birgir Teitsson, Siguróur Grétarsson, Svavar Svavarsson, Þórir Gíslason, Pétur Ómar Ágústsson, formaður meistaraflokksréðs og Karl J. Steingríms-
son formaöur knattspyrnudeildar UBK. Fremri röó f.v.: Theodór Guöfinnsson, Benedikt Guömundsson, Jóhann Grefarsson, Vignir Baldursson, Sigurjón Kristjénsson, Árni Dan
Einarsson, Guðmundur Ásgeirsson, Sveinn Skúlason, Trausti Ómarsson, Helgi Bentsson, Sigurjón Rannversson og Þorsteinn Hilmarsson.
Breiðablik í Kópavogi
Breiöablik í Kópavogi hefur um nokkurra
ára skeiö veriö í hópi bestu knattspyrnuliöa
Islands. Ef litið er á feril liösins, kemur þó í
Ijós aö sigrar liösins eru ekki margir. Liðið
hefur til dæmis aldrei sigraö í 1. deildar-
keppninni. Hins vegar hefur liöiö tvívegis
sigraö í 2. deild eftir aö hafa falliö í hana.
Þaö var fyrst áriö 1970 og síöan áriö 1979.
Þaö var einkum eftir árið 1979, aö UBK
hefur skotist upp sem eitt af knattspyrnu-
stórveldunum hér á landi. Liöiö hefur síöan
oröiö rómaö fyrir aö leika góöa knatt-
spyrnu, oft þá bestu sem sýnd er, en upp-
skeran hefur þó veriö rýrari en efni hafa
staöiö til. Nú í sumar á liöiö ekki minni
möguleika á því aö hreppa titilinn en önnur
liö deildarinnar. Liöiö hefur reyndar veriö í
öldudai aö undanförnu, en takist því aö rífa
sig upp er þaö fullfært, aö blanda sér í
toppbaráttuna, ekki síst þar sem islands-
mótiö hefur aldrei veriö jafnara en einmitt
nú.
UBK hefur ekki reynst harösvíraö bikar-
lið í gegn um árin, aöeins einu sinni hefur
liðiö leikið til úrslita um bikarinn síöan sú
keppni hóf göngu sína áriö 1960. Þaö var
áriö 1971 og UBK mætti Víkingi í úrslita-
leik. Hæðargarðsliöið fór meö sigur af
hólmi, skoraði eitt mark gegn engu.
Þá má geta þess, aö kvennaflokkur UBK
er sá sterkasti sinnar tegundar á islandi,
Blikadömurnar hafa hirt alla mögulega titla
á síöustu árum og eru nú enn á ný efstar í
1. deild kvenna.
Heimvöllur UBK er rómaöur. Er þaö fal-
legasti grasvöllur landsins, enda búinn
hitalögnum sem verja hann skemmdum.
Aöstæöur fyrir íþróttafólk og fréttamenn
eru hvergi betri, enda glatt á hjalla þegar
vel gengur hjá liöinu.