Morgunblaðið - 02.07.1982, Page 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ1982
1982 UmvtfMl Pftn Svndimi.
^ -.J
^Veréur^u nokkurs uar er\r\pá T"
ást er...
I o
... að segja henni að
hún sé falleg án and-
litssnyrtingar.
TM Reg U S Pat Otf — all riahts reserved
•1982 Los Angetes Tlmes Syndicate
Við töpuðum leiknum, en við bök-
uðum þá á eftir og drukkum þá
alla undir borðið.
JUiiiU
Áttu eld?
Sjómaður skrifar:
Kjör hinna láglaun-
uðu aldrei eins slæm
Það er mikið um umbrot á öllum
sviðum þjóðfélagsins. Togaraflot-
inn er rekinn með bullandi tapi.
Verðbólga er komin yfir 50% og fer
stig-hækkandi. Ríkisstjórnin held-
ur áfram niðurgreiðslum til þess að
falsa framfærsluvísitöluna. Hag-
vöxtur hefur minnkað og skuldir
okkar íslendinga hafa stóraukist.
Svona mætti lengi telja, en það er
spurning hvort nokkur hafi áhuga
á þessum hlutum lengur. Ríkis-
stjórnin hefur drepið niður allan
áhuga fólksins á þjóðarbúinu í
heild, og fólk er orðið sinnulaust
fyrir öllum aðgerðum ríkisvaldsins.
Hvernig stendur á því, að svona
hefur farið þegar þessi ríkisstjórn
var búin að iofa því að gera allt svo
gott, og búin að heita þjóðinni því
að koma verðbólgunni niður fyrir
30% ? Hvað hefur gerst? A.m.k.
hefur hvorki verkalýðshreyfingin
né sjómannasamtökin farið fram á
mikið fram að þessu. Það hafa
fjörkálfar Alþýðubandalagsins í
verkalýðshreyfingunni séð um, að
halda öllu í skefjum, svo þessi rík-
isstjórn mætti halda velli. Hinn
láglaunaði hefur aldrei haft það
eins slæmt og ástandið á eftir að
versna all verulega, miðað við
áframhaldandi horfur, ef ekki
koma til miklar hugarfarsbreyt-
ingar hjá verkalýðshreyfingunni og
stjórnvöldum, í átt til réttlátra
kauphækkana til handa þessum
lágiáunuðu. Nú verður verkafólk að
segja stopp og heimta það, að Ás-
mundur Stefánsson, forseti ASÍ,
láti án tafar af störfum og hans
kollegar í Alþýðubandalaginu, og
komi sér út úr Verkalýðshreyfing-
unni. Það er orðið slæmt ástandið
þegar ríkisstjórn hefur tangarhald
bæði á verkalýðshreyfingunni og
sjómannasamtökunum og notar
það hald til þess að stemma stigu
við of miklum kauphækkunum til
handa þeim láglaunuðu, en lætur
mennta- og iðnlært fólk hafa all-
verulegar kauphækkanir. Þarna
verður að snúa við dæminu og það í
þessum samningum. Nú er ástand-
ið slæmt hjá fiskveiðiflotanum og
margir útgerðarmenn eru farnir að
leggja skipum sinum frekar en að
safna meiri skuldum. Þetta ástand
hefur skapast út af rangri
fiskveiðistefnu, stig-hækkandi
Urdum fyrir slæmri trufl-
un á þjóðhátíðardaginn
Hr. Velvakandi.
Við hér í Njarðvík héldum 17.
júní hátíðlegan eins og aðrir ís-
lendingar. Veður hér var ljómandi
gott og hátíðarhöldin fóru í alla
staði vel fram. Um kvöldið var að
venju haldinn fjölskyldudansleik-
ur í Stapa, þar sem mættu allir
aldurshópar og skemmtu sér sam-
an, börnin, pabbar og mömmur,
afar og ömmur. Engum datt í hug
að koma þar undir áhrifum víns.
Ástæðan til þess að ég skrifa þess-
ar línur er sú, að á meðan á
hátíðarhöldunum stóð (að degin-
um) urðum við fyrir mjög slæmri
truflun, svo ekki sé meira sagt.
Þannig var að á meðan Fjallkonan
flutti ávarp sitt, flugu herþotur
hér lágt yfir byggðina, með svo
miklum hávaða, að ekki heyrðist
nærri því allt sem fjallkonan
sagði. En þó tók út yfir þegar
þjóðsöngurinn var sunginn. Þá
flugu þotur aftur yfir og hreinlega
yfirgnæfðu sönginn. Eg var svo
gjörsamlega máttvana af reiði, að
mér fannst þetta stórskemma
daginn og hygg ég að svo hafi ver-
ið um fleiri. Nú spyr ég þá, sem
þessum málum ráða, hverjir sem
það eru, er ekki hægt að koma í
veg fyrir að þessi svívirða endur-
taki sig? Ég get ekki annað en
kallað það svívirðingu, að á þjóð-
hátíðardeginum skuli erlendar
herþotur endilega þurfa að vera á
æfingarflugi, á meðan hátíðar-
höldin standa yfir. Nóg er nú samt
að hafa þennan ófögnuð yfir sér
alla aðra daga ársins. Með von um
að þessar línur komi fyrir augu
réttra aðila.
Reiður og sár Njarðvíkingur
Beltisþulan
er eftir
Jórunni Guð-
mundsdóttur
Þann 29. júní bað 5241-
3834 um upplýsingar um
Beltisþuluna, sem ort var
árið 1923 við komu Alex-
andríu drottningar. Belt-
isþulan er eftir Jórunni
Guðmundsdóttur, Arn-
þórsholti í Lundarreykja-
dal, Borgarfjarðarsýslu.
Beltisþula
Já, svona lítur ísland út,
sýnast þér ekki falleg fjöllin?
Á fjöllunum uppi byggja tröllin,
þar eru háir huldusteinar
og hamrar, er byggja dverga-sveinar,
þeir árshring hverjan eru þar
alltaf að smíða gersemar.
Nú dvergajöfur sjálfur segir,
hann sitji við á hverjum degi
og ætli’ að setja saman band,
semað þér gefi jökulland.
Það kvað nú gert af góðu efni;
þess gæðin helztu er bezt ég nefni:
Af æðstu þrá hins fremsta svanna,
af frelsishugsjón beztu manna,
af sakleysi hins blíða barns,
af móðurást og móðurtryggð,
því mesta hnossi í alheimsbyggð.
Ef stjörnur skinu skært á kvöldin,
þá skreyttu þeir með því beltisskjöldinn.
Þannig var myndað mittisband,
sem minna skal þig á gamalt land.
Virðingarfyllst,
Jórunn Helga Ámundadóttir.