Morgunblaðið - 25.07.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.07.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1982 59 . . . verdur sýnd á næstunni. . . Hepburn, Henry og Jane Fonda. Það skrítna var að þau tvö fyrrnefndu hittust í fyrsta sinn á æfinni, þegar tökur myndarinnar On Golden Pond hófust. Ethel og Norman Thayer eyða sumrinu við Gulltjörnina rétt eins og þau hafa gert síðustu 48 sumur. Heimili þeirra í Nýja-Englandi er fullt af minn- ingum frá dvöl þeirra við tjörn- ina, göngutúrum við sólarlag þar sem síðustu geislar kvöldsólar- innar baða sig á vatninu, og minningum af fjölskyldunni þeg- ar dóttir þeirra Chelsea var lítil. Norman lítur á samtimann sem óvin. Óskammfeilinn, fullur af kaldhæðnum, særandi brönd- urum, lokar hann sig inni í sín- um eigin heimi og vissunni um sinn eigin dauðleika og á í sí- felldu orðaskaki við léttlynda og gamansama konu sína, Ethel. Þetta verður sumar rifrilda og óánægju á milli þriggja kynslóða þegar Chelsea, nú fráskilin kona á fertugs aldri, kemur í heim- sókn til Gulltjarnarinnar, með nýjum elskhuga Bill að nafni og syni hans Billy. Það hefur aldrei farið vel á með Chelsea og föður hennar. Norman og Ethel lenda síðan í hlutverki afa og ömmu þegar yngra parið heldur í frí til Evrópu og skilja litla strákinn, Billy, eftir við tjörnina. Hinar ólíku kynslóðir eyða sumrinu í að kanna hvers annars kosti og ókosti með húmor og kaldhæðni og áður en sumarið er á enda hefur óánægja, hræðsla og ást verið yfirunnin og þau hafa fundið í sjálfu sér og hvort öðru tilfinningar, sem þau héldu að þau gætu aldrei búið yfir. Allir eru stjörnur í myndinni Um þetta fjallar meira og minna myndin On Golden Pond sem verður sýnd á næstunni í Regnboganum. Stjörnur mynd- arinnar eru náttúrulega þau Katherine Hepburn og Henry Fonda. Þau fengu hvor sinn Óskarinn fyrir leik í aðalhlut- verki. Það var fyrsti Óskarinn hans Fonda en sá fjórði í röðinni hjá Hepburn. Þau hafa leikið í Hollywood-myndum alla sína ævi má segja, en það skrítna var, að þau hittust í fyrsta sinn þegar tökur á On Golden Pond hófust. „Fonda I persume" hefur Hepb- urn eflaust sagt af sinni alkunnu kímni og tekið í hendina á hon- um. Og Jane Fonda, hún er eins þekkt fyrir leik sinn og faðir hennar Henry. Tvisvar hefur hún hlotið Óskarinn en ails 5 sinnum hefur hún verið útnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik í aðalhlutverki. Svo það eru engin smámenni, sem hinn 14 ára Doug McKeon, sá sem leikur Billy í myndinni, hefur fyrir mótleikara, en sjálfur er hann næsta óþekktur. Leikstjórinn Leikstjórinn er Mark Rydell (The Rose, The Cowboys, fyrsti vestrinn sem John heitinn Wayne var drepinn í, The Reiv- ers og fleíri). Rydell er fæddur í New York og alinn upp í Bronx. Hann er með próf í ensku og heimspeki frá háskólanum í New York en á meðan hann stundaði nám þar sótti hann tíma í Juilli- ard School of Music. I fimm ár flæktist hann um á milli næt- urklúbba í New York og lék jazz á píanó, áður en hann ákvað að verða leikari. Til að verða það lærði hann m.a. hjá Lee Stas- berg. Rydell dútlaði eitthvað í sjónvarpsþáttum en fyrsta kvik- myndin, sem hann lék í, var með John Cassavetes í Crime in the Steets. En hann vildi frekar aka en vera ekið og fór út í leik- stjórn, fyrst í sjónvarpi. Nægir að nefna að hann leikstýrði m.a. einum þætti af Gunsmoke, og var sá þáttur nefndur besti sjón- varpsvestrinn 1%6. Auk áðurtaldra mynda leik- stýrði hann Harry and Walter Go to New York, með James Jane Fonda er engu minni stjarna en Hepburn og Henry. Hún hefur hlotið tvo Óskara og á eflaust eftir að hljóta einhverja fleiri. Caan, Elliott Gould, Deane Kea- ton og Micheal Caine. En milli þess, sem hann hefur verið að leikstýra hefur hann gripið í að leika endrum og eins, m.a. í mynd Roberts Altmans, The Long Goodbye. Þar lék hann sadista. Þetta hefur Rydell að segja um On Golden Pond: „Verkið er byggt á árekstrum innan fjöl- skyldunnar, samskiptum innan hennar og vandamálum foreldra, barna og barnabarna, skilnaði og þess háttar. Atburði, sem eru alltaf að gerast. Um þetta fjallar sagan og ekkert annað, og það er skapgerðarleikurinn, sem mestu máli skiptir. Mínar bestu stund- ir, sem leikstjóra, voru samveru- stundirnar með þessum mikil- hæfu leikurum, Hepburn og Fonda-feðginum." Henry Fonda Henry Fonda er risi meðal leikara. Listi yfir myndir sem hann hefur leikið í er langur og á honum er að finn klassísk verk eins og The Grapes of Wrath, The Ox-Bow Incident, Young Mr. Lincoln, Twelve Angry Men og My Darling Clementine. Alls hefur Fonda leikið í 80 myndum. Hann er fæddur á Grand Island, Nebraska í maí 1905. 23 árum seinna eða 1928 var hann orðinn atvinnuleikari og kom ári seinna fyrst fram á sviði á Broadway. Það var svo ekki fyrr en 1934 að hann fyrst lék í kvikmynd, The Farmer Takes a Wife. Hans þögla en ýtna, nánast þráa fram- koma gerði hann næstum ein- stakan í hópi ungra leikara á þessum tíma. Allskonar verðlaun hafa fallið honum í skaut fyrir framlag hans til leiklistar í Bandaríkjun- um. Fyrir utan Óskarinn, sem hann fékk fyrir leik sinn í þess- ari mynd, er helsta viðurkenn- ingin sem hann hefur hlotið, verðiaun Amerísku kvikmynda- stofnunarinnar fyrir lífstíðar framlag hans til kvikmynda. Aðrir, sem þau verðlaun hafa hlotið eru: James Gagney, Orson Welles, William Wyler, Bette Davis og John heitinn Ford. Hepburn Katharine Hepburn er eina konan í bandaríska kvikmynda- heiminum, sem hlotið hefur fern Óskarsverðlaun fyrir leik í aðalhlutverki. Hún hefur oftast kvenna verið tilnefnd til verð- launanna og hefur oft verið nefnd drottning bandarísku kvikmyndanna. ðskarana sína hina fékk hún fyrir myndirnar Morning Glory (1933), Guess Who’s Coming To Dinner (1967) og The Lion In Winter (1968). Hún er fædd í Hartford, Conn- ecticut, númer tvö í röð sex systkina, virðulegrar fjölskyldu Nýja-Englands. Faðir hennar var þekktur skurðlæknir og móðir hennar hörð kvenréttindakona. Hepburn lék fyrst minniháttar hlutverk í verkinu Czarina, í Baltimore, og mánuði seinna var hún farin að leika í aðalhlutverki á móti Kenneth McKenna í leikritinu The Big Pond þegar það var frumsýnt í Great Neck. Hún var rekin eftir frumsýninguna. Það var með John Barrymore í Bill of Divorcement, sem Hep- burn fór að láta að sér kveða í kvikmyndabransanum. Á eftir fylgdi hver stórmyndin á fætur annarri, þar sem hún lék m.a. á móti Gary Grant, þar til hún fór á Broadway og lék aðalhlut- verkið í The Philadelphia Story. Hún tryggði sér kvikmyndarétt- inn á því leikriti, sem hún svo seldi MGM, sem aftur völdu leik- ara á móti henni (Gary Grant og James Stewart) og leikstjóra (George Cukor) og myndin varð geysivinsæl. Fyrir leik sinn í þeirri mynd var Hepburn út- nefnd til Óskarsverðlauna. Næsta mynd Hepburn mark- aði tímamót í lífi hennar. Þá lék hún í fyrsta sinn á móti Spencer Tracy, sem var byrjunin á stór- kostlegasta dúett, sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Saman léku þau í alls níu myndum. Sú síðasta var Guess Who’s Coming to Dinner. Hepburn hefur fengið margs- konar viðurkenningar aðrar en Óskara. Til dæmis var hún kosin besti kvenleikarinn á Cannes-kvikmyndahátíðinni 1962 fyrir leik sinn í myndinni Long Day’s Journey Into Night, gerð eftir leikriti Eugene O’Neill. Jane Fonda Jane Fonda hlaut fyrri Óskar- inn sinn fyrir leik sinn í mynd Alan J. Pakula, Klute árið 1972 og þann seinni fyrir leíkinn í myndinni Coming Home, með John Voigt. Þrisvar að auki hef- ur hún verið tilnefnd til Óskars- verðlauna, fyrir myndirnar: The China Syndrome, Julia, og They Shoot Horses Don’t They. Það er ekki nokkur vegur að telja upp myndir Jane Fonda en megnið af þeim hefur hlotið alþjóða viður- kenningu og eru álíka þekktar og Jane Fonda sjálf. Hún er fædd 1937 í New York. Hún ólst upp á vesturströnd Bandaríkjanna til 10 ára aldurs, en flutti þá aftur austur þegar faðir hennar Henry fór til New York að leika í Mister Roberts. Framan af sýndi Jane engan sér- stakan áhuga á leiklist, þó hún hafi leikið í einhverjum skóla- leikritum. Hún fór til Parísar í listnám og þegar hún sneri aftur var hún orðin fyrirsæta með tvær forsíður á Vogue að baki. Hún hitti Lee Strasberg 1958, sem leiddi til þess að hún fór að læra leiklist og sér sennilega ekki eftir því. Hún giftist franska leikstjór- anum Roger Vadim, Svengali kynbombanna, sem reyndi hvað hann gat að gera Jane að ann- arri Bardot. Það gekk ekki. Fyrir utan að vera leikari er Jane þekkt fyrir að taka þátt í og stjórna ýmis konar mótmæla- uppákomum og var sérstaklega hörð í afstöðu sinni til Víetnam- stríðsins, sem hún fyrirleit af öllu hjarta. Þess má til gamans geta að Jane Fonda á helming í fyrir- tækinu, sem framleiðir On Gold- en Pond en helminginn á móti henni á Bruce Gilbert. Það fyrir- tæki IPC Films, framleiddi til að mynda The Rose, sem gerði Betty Midler fræga fyrir alvöru. Arnaldur Indriðason Hann á i kring um 80 kvikmyndir að baki og hún eflaust annað eins. Bæði fengu þau Óskarinn fyrir leik sinn i myndinni. Það var fjórði Oskarinn hennar Hepburn en fyrsti Henrys.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.