Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982 25 MorKunbladið/Ól.K.M. Prófkjörid í Nordur- landi vestra Prófkjör sjálfstæðismanna í Norðurlandi vestra um siðustu helgi er sterk vísbending um, að slíkar umbætur séu knýjandi. Með vaxandi undrun fylgdust menn með þeirri gífurlegu þátt- töku, sem varð í prófkjöri sjálf- stæðismanna í þessu kjördæmi. Sjónvarpið mun hafa sagt í frétta- tíma, að þátttakan í því jafngilti því að 24 þúsund manns tækju þátt í prófkjöri sjálfstæðimanna í Reykjavík! I prófkjörinu tóku þátt 1851 kjósandi. í siðustu alþingis- kosningum hlaut Sjálfstæðis- flokkurinn 1606 atkvæði. Frá því að kjördæmabreytingin var gerð 1959 hefur Sjálfstæðisflokkurinn einungis einu sinni fengið fleiri atkvæði en sem nemur fjölda þeirra, sem nú kusu í prófkjörinu. Það var árið 1959, fyrir 23 árum. Einn af frambjóðendum í prófkjörinu, Jón Ásbergsson, gaf skýringu á þessari miklu þátttöku í viðtalí við Morgunblaðið í gær, föstudag. Hann sagði: „Það er staðreynd, að á fjórða hundrað framsóknarmenn og alþýðubanda- lagsmenn í Húnavatnssýslu létu hafa sig í að taka þátt í prófkjör- inu, sem þó er einungis ætlað stuðningsmönnum Sjálfstæðis- flokksins." Jón Ásbergsson er ekki einn um þessa skoðun. Þannig segir Ragn- ar Arnalds, fjármálaráðherra, sem er þingmaður Alþýðubanda- lagsins fyrir Norðurlandskjör- dæmi vestra, í samtali við Morg- unblaðið þennan sama dag: „Ég held, að það sé á allra vitorði, að framsóknarmenn, sem eiga þrjá þingmenn í kjördæminu, voru ákaflega hræddir við, að sjálf- stæðismenn byðu fram í tvennu lagi í þessu kjördæmi, því það hefði fyrst og fremst komið niður á þeim. Þeir vildu tryggja að Sjálfstæðisflokkurinn byði fram í heilu lagi, þó listinn yrði tvíhöfð- aður." Annað vitni um það, sem gerðist í prófkjörinu i Norðurlandi vestra, kom einnig fram á síðum Morgun- blaðsins þennan sama dag, en það er Ingólfur Guðnason, einn af þingmönnum Framsóknarflokks- ins í kjördæminu. Hann segir: „Það kunna nú víst fáir skýr- ingar á því, sem fylgi Sjálfstæðis- flokksins." Blaðið hefur eftir þing- manninum: Þá sagðist Ingólfur sjálfur hafa orðið var við það fyrir norðan, að menn, hvar í flokki sem þeir stæðu, hefðu tekið þátt i prófkjörinu. Ingólfur sagði einnig, að forystumenn Sjálfstæðisflokks- ins á Hvammstanga hefðu sagt, að ekkert væri því til fyrirstöðu, að hann tæki sjálfur þátt í prófkjör- inu, „... en ég notaði mér nú ekki það ágæta boð“, sagði hann. Áfram hefur Morgunblaðið eftir Ingólfi Guðnasyni: „Ég veit ekkert um hvaða árangur þetta hefur borið, en ef maður lítur á nýleg- ustu niðurstöður, þá verða menn að álykta sem svo, að þarna hafi góðviljaðir menn lagt hönd að.“ Loks segir í frétt Morgunblaðs- ins: Aðspurður um hvað hann meinti með orðinu „góðviljaður", sagði hann alla eiga sér kunningja án tillits til hvar þeir stæðu í flokki. Ingólfur var þá spurður eins og Ragnar, hvort hann reikn- aði með, að þeir framsóknarmenn, sem tekið hefðu þátt í prófkjörinu, myndu skila sér í komandi kosn- ingum. Hann svaraði: „Ég er ekki að segja að þeir hafi gert það, en við skulum bara líta á þetta, eins og ég geri sem gamall þankamað- ur. Ég hef oft lánað fé og fengið það gjarnan til baka með skilum aftur. Hafi verið eitthvað um framsóknarmenn, sem stutt hafa þarna að, verð ég nú endilega að vona, að þeir skili sér.“ Ingólfur sagði í lokin: „Ég tel nú, að þarna sé endanlega búið að ganga frá nokkru sem heitir prófkjör með vitleysu sem þessari." Pálmi Jónsson, landbúnaðar- ráðherra, hefur í útvarpsviðtali furðað sig á því, að Morgunblaðið væri að amast við fylgisaukningu Sjálfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi vestra. Ekki skal standa á Morgunblaðinu að sam- fagna Pálma Jónssyni, ef þessi at- kvæði skila sér til Sjálfstæðis- flokksins í kosningum til Alþingis. Hitt er ljóst að svo alvarlegur vitnisburður hefur komið fram um það hvernig staðið var að próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í þessu kjördæmi, þar sem því er haldið fram, að stuðningsmenn annarra flokka hafi í stórum hópum bland- að sér í málefni sjáifstæðismanna og tryggt niðurstöðu, sem ráð- herrann segir síðan að muni styrkja sig og sinn málflutning innan flokks, að miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins hlýtur að taka þetta mál til sérstakrar rannsókn- ar. Kjördæmisráð Sjálfstæðis- flokksins í kjördæminu sjálfu og stjórn þess geta heldur ekki látið sem ekkert hafi gerzt og þeir aðil- ar hljóta að eiga hlut að slíkri rannsókn. Þá verður að gera þá kröfu til miðstjórnar Sjálfstæðis- flokksins, að hún sjái til þess, að slíkir atburðir endurtaki sig ekki í þeim prófkjörum, sem framundan eru og nú hafa verið boðuð i Vesturlandskjördæmi, Suður- landskjördæmi og Norðurlands- kjördæmi eystra. Prófkjörid í Vesturlands- kjördæmi Athygli hefur vakið, að annar af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í Vesturlandskjördæmi, Jósep Þorgeirsson, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs í prófkjöri flokksins sem framund- an er í því kjördæmi. Jósep Þor- geirsson, sem mjög hefur komið við sögu í málefnum Sjálfstæðis- flokksins í kjördæminu síðustu tvo áratugi, hefur ekkert viljað láta hafa eftir sér um ástæður þess, að hann hefur tekið þá ákvörðun, að taka ekki þátt í prófkjörinu og hætta þing- mennsku. Þessi þingmaður hefur skipað stjórnarandstöðulið sjálfstæð- ismanna á Alþingi. Hins vegar hefur hann lagt áherzlu á að halda friðinn innan kjördæmisins, ef svo má að orði komast, vegna þess, að samþingmaður hans, Friðjón Þórðarson, tók þátt í myndun rík- isstjórnar Gunr.ars Thoroddsens. Vafalaust hefur Jósep Þorgeirsson gengið út frá því sem vísu að dómsmálaráðherra mundi fyrir sitt leyti leggja sitt af mörkum til þess að sæmileg eining gæti hald- izt í kjördæminu. Ér ástæðan fyrir ákvörðun Jóseps Þorgeirs- sonar sú, að þessar vonir háns hafa brugðizt? Fróðlegt væri að heyra álit Friðjóns Þórðarsonar á því.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.