Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982
39
Helmingaskiptareglan
gildir ekki í óvígðri sambúð
MORGUNBLAÐINU liefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Jafnréttisráéi:
Jafnréttisráð vill vekja athygli
á, að almennur misskilningur
virðist ríkja hér á landi varðandi
réttarstöðu fólks í óvígðri sambúð.
Er sá misskilningur fólginn í
því að réttarstaða sambúðarfólks
verði sú sama og hjóna eftir 2—5
ára sambúð. Slíku er ekki til að
„Að vera
kristinn“
— eftir Hans Kiing
ÚTGÁFAN Skálholt hefur sent frá
sér bókina „Að vera kristinn" í þýð-
ingu prófessors Björns Magnússon-
ar.
Bókin heitir á frummálinu „Die
Christliche Herausforderung" og
er eftir hinn þekkta Hans Kúng,
einn umdeildasta guðfræðing
samtímans. Höfundur spyr í upp-
hafi bókar sinnar: Vegna hvers á
maður að vera kristinn? I fram-
haldi af því gerir hann grein fyrir
mismunandi lífsstefnum, verald-
legum manngildisstefnum, marx-
isma og öðrum heimstrúarbrögð-
um og ber þær saman við kristin-
dóminn.
Hans Kúng hefur ritað allmarg-
ar bækur um kristindóminn, en
ekki ætíð farið troðnar slóðir í
þeim efnum. Bækur hans hafa því
vakið mikla athygli, og m.a. reyndi '
páfinn að svipta hann embætti
prófessors í kaþólskri guðfræði
vegna skrifa hans.
Að vera kristinn er ríflega 300
blaðsíður að stærð. Hún hefur ver-
ið þýdd á fjölda tungumála og
hvarvetna orðið metsölubók.
Prentstofa G. Ben. sá um prentun
bókarinnar og Arnarberg annaðist
bókbandið.
Skipað i jafn-
réttisráð
dreifa nema í einstaka tilfelli s.s.
varðandi skattlagningu ef sam-
búðaraðilar óska eftir því, trygg-
ingabætur að uppfylltum vissum
skilyrðum o.fl.
Sérstök átsæða er til að vara við
því, að við fjárhagsskipti vegna
slita á óvígðri sambúð gildir helm-
ingaskipUreglan ekki eins og við
hjónaskilnað, heldur almennar
eignarréttarreglur. T.d. myndi sá
sem skráður er fyrir eign almennt
verða talinn eigandi hennar, nema
annað sannaðist.
Vinnubúöir Akurs
Verktakar og framkvæmdaaöilar, athugiö aö viö
framleiöum
vinnuskála í ýmsum stæröum og gerðum.
Uppl. í símum 93-2006 og 93-2066 og á skrifstofu
okkar.
Veljum íslenskt.
Trésmiðjan Akur hf.,
Akranesi. Símar 93-2006 og 93-2066.
Stórkostleg bylting ígólfefnum!
Perstorp, 7mm þy kk gólf boró,
semhægteraó
leggja beint á gamla gólf ió!
Hamar og sög
er ■"
NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ
Vegg- og loftklæðning ^
í glæsilegu úrvali X 0 r.
úr eik, aski, oregon-pine,
antikeik og furu.
Verðið er ótrúlega hagstætt
frá kr. 40.- pr. m2
BJORNINN HF
Skúlatuni 4 - Simi 25150 - Reykjavík
Nýju Perstorp gólfborðin
eru satt að segja ótrúleg.
Þau eru aðeins 7 mm á
þykkt og þau má leggja ofan
á gamla gclfið - dúk, teppi,
parket eða steinsteypu.
Það er mjög einfalt að
leggja Perstorp gólfborðin
og 7 mm þykktin gerir
vandamál þröskulda og
hurða að engu. Perstorp
gólfborðin eru líka vel varin
gegn smáslysum heimilis-
lífsins eins og skóáburði,
naglalakki, kaffi, te, kóki og
logandi vindlingum.
Þú færð Perstorp aðeins
hjá okkur.
SAMKVÆMT lögum nr. 78/ 1976
um jafnrétti kvenna og karla hefur
verið skipað í Jafnréttisráð til næstu
þriggja ára frá 1. desember 1982 að
telja. Verður ráðið nú skv. fréttatil-
kynningu félagsmálaráðuneytisins
þannig skipað:
Guðríður Þorsteinsdóttir, lög-
fræðingur, skipuð af Hæstarétti,
formaður ráðsins, varamaður
Guðjón Steingrímsson, hæstarétt-
arlögmaður; Vilborg Harðardótt-
ir, útgáfustjóri, skipuð af félags-
málaráðherra, varamaður Stella
Stefánsdóttir, verkakona; Lilja
Ólafsdottir, deildarstjóri, skipuð
af Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja, varamaður Agúst Guð-
mundsson, landmælingamaður;
Ragna Bergmann, formaður
verkakvennafélagsins Framsókn-
ar, skipuð af Alþýðusambandi ís-
lands, varamaður Jóhannes Sig-
geirsson, hagfræðingur, og Einar
Arnason, héraðsdómslögmaður,
skipaður af Vinnuveitendasam-
bandi íslands, varamaður Krist-
ján Þorbergsson, lögfræðingur.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
H
Kalmar
Innréttingar hf
SKEIFUNNI 8, SIMI 82011
ÓSA