Morgunblaðið - 16.12.1982, Blaðsíða 6
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
Fimm punda öskjurnar, sem notaðar eru undir útfluttan freðfisk, að koma út úr „sexlita-vél-
inni“, sem Kassagerðin keypti árið 1979. Þessi vél getur keyrt upp í 125 metra á mínútu, auk
þess að litprenta í einni keyrslu i sex litum og höggva út öskjuformið.
Þessi skrautlega vél er elsta vél Kassagerðarinnar sem enn er í gangi. Hún er kanadísk, frá
árinu 1927, prentar í tveimur litum og heggur út öskjur af rúllura. „Hæggeng, en traust,“
sögðu starfsmennirnir sem voru að vinna við hana þegar Ijósmyndara Mbl. bar að garði.
Kassagerð
Reykjavíkur
Hér er gömul mynd af öðrum stofnanda Kassagerðarinnar, Kristjáni Jóhanni Kristjánssyni. Moruunblaðií/ói.K.M.
hefur fyrirtækið eftir lát hans
verið í eigu okkar afkomendanna."
En hvenær flyst starfsemin inn á
Kleppsveg?
„I kjölfar þessarar nýju eigna-
skipanar sem ég gat um, var hafist
handa um að byggja upp nýtt
verksmiðjuhúsnæði við Kleppsveg,
og var starfsemin flutt þangað ár-
ið 1960. Samfara því var bætt við
vélakost prentdeildar, öskjudeild-
ar og bylgjudeildar.
Árið 1962 setjum við svo upp
eigin prentmyndagerð, og kaupum
litgreiningartæki ári síðar, það
fullkomnasta sem völ var á á þeim
tíma. Ég held að það sé óhætt að
segja að Kassagerðin hafi verið
brautryðjandi þeirrar tækni hér á
landi og hefur alltaf síðan lagt
áherslu á vandaða litprentun."
Samanber prentun Skarðsbókar
nú fyrir skömmu?
„Já, árið 1981 tókum við að
okkur prentun og litgreiningu á
Skarðsbók fyrir bókaútgáfuna
Lögberg og þótti verkið takast vel.
Og við erum með ýmsar lista-
verkabækur í prentun núna, auk
þess sem við prentum árlega eigið
dagatal og dagatal fyrir Eimskip
og Færeyjar, með vönduðum lit-
myndum."
En ef við snúum okkur aftur að
því að rekja söguna. Hljóp ekki tals-
verður vöxtur í starfsemina við að
komast i þetta stóra húsnæði?
„Vissulega. Framleiðslan eykst
jafnt og þétt og starfsemin verður
fjölbreyttari. Árið 1963 kaupum
við vélar til framleiðslu á hand-
50
þurrkum og salernispappír og
setjum á fót ritfangadeild árið
1%9. í sambandi við framleiðsl-
una á pappírsvörum og salernis-
pappír var stofnað dótturfyrir-
tæki Kassagerðarinnar, Pappírs-
vörur hf., sem Gylfi Hinriksson
hefur stjórnað. Pappírsvörur hf.,
hafa einnig frá 1967 haft umboð
frá bandaríska fyrirtækinu
Liquid-box til að framleiða plast-
umbúðir fyrir mjólk og annan
vökva. Þessar umbúðir eru tals-
vert notaðar hér á landi, sérstak-
lega fyrir norðan. Einnig er flutt
mikið af þeim til Norðurlandanna.
En húsnæðið varð fljótlega of lítið
fyrir þessa auknu starfsemi og við
byggjum við það, bæði skrifstofu-
og verksmiðjubyggingu, ásamt
geymsluhúsnæði fyrir hráefni og
fullunnar vörur.
Nú, svo ég fari fljótt yfir sögu
þá setjum við upp árið 1974, eins
og ég gat um áðan, stóra og af-
kastamikla vél til framleiðslu á
bylgjupappa, og jafnframt nýja
vél til að skera, brjóta, líma og
prenta í þremur litum á bylgju-
pappakassa.
Og við erum sífellt að endur-
nýja. Árið 1979 keyptum við mjög
fullkomna vélasamstæðu fyrir
öskjudeildina, sem getur prentað í
einni keyrslu í sex litum og heggur
líka út formið á öskjunum. Þetta
er gífurlega afkastamikil vél og
keyrir allt upp í 125 metra á mín-
útu. Hún er núna eingöngu notuð
til að gera fimm punda öskjur
undir frystan fisk, sem fluttur er
út. Að því að ég best veit er aðeins
til ein önnur slík vélasamstæða á
Norðurlöndunum, en það er í
Finnlandi.
Og úr því að ég er að tala um
kaup á tækjum, þá verð ég að
minnast á það að í fyrra keyptum
við nýtt og fullkomið tölvustýrt
litgreiningartæki, þá annað'sinn-
ar tegundar sem flutt var til
landsins. Svo ég held að það séu
engar ýkjur að segja að Kassa-
gerðin sé ágætlega búin tækjum í
dag.“
Samsetning fyrir-
tækisins í dag
Gætirðu dregið það snöggvast
saman, Agnar, hvernig samsetning
fyrirtækisins er í dag?
„Við skiptum fyrirtækinu niður
í deildir. Við tölum um bylgju-
deild, en þar framleiðum við
bylgjupappakassa af öllum mögu-
legum gerðum og stærðum. Síðan
er það öskjudeild, sem framleiðir
öskjur, oftast litprentaðar, fyrir
sjávarútveginn og ótal fleiri aðila.
Þá erum við með prentdeild og
prentmyndagerð, þar sem öll
filmu- og plötuvinna fer fram.
Einnig ritfangadeild, sem fram-
leiðir stílabækur og þess háttar.
Og loks starfrækjum við ennþá að
litlu leyti trékassadeild. Auk þess
rekum við svo eigið verkstæði sem
sér um allar viðgerðir, viðhald og
nýsmíði á vélum. En handþurrku-
deildina höfum við hins vegar ný-
lagt niður."
Og í hvaða framleiðslu liggja
mestu verðmætin?