Morgunblaðið - 16.12.1982, Blaðsíða 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
— BMW 323i.
Nýju 3-línunni frá BMW reynsluekið í Marokkó:
Straumlínulagaðri, með betri
fjöðrun og bremsur, auk þess
að verða íburðarmeiri að innan
— Rými aukið — ný betri sæti — virkar þungur með sjálfskiptingu
Sighvatur Blöndahl
BMW HEFUR átt mikilli vel-
gengni að fagna með hina svoköll-
uðu 3-línu verksmiðjunnar, en allt
frá árinu 1975 þegar framleiðsla
var fyrst hafin hafa verið fram-
leiddar 1,3 milljónir slíkra bíla,
eða um 800 á dag. Bílarnir hafa
verið mjög lítt breyttir þessi sjö ár
sem liðin eru frá því, að fram-
leiðsla var fyrst hafin og kom það
því ekkert á óvart, þegar BMW til-
kynnti fyrr á árinu, að með vetri
yrði kynnt breytt 3-lína, sem
framleidd yrði í nýrri verksmiðju
fyrirtækisins í Munchen. Fram-
leiðslutakmarkið var sagt vera að
framleiða að meðaltali um 1.200
bíla á dag, enda hafi eftirspurn
ekki verið annað til þessa. I
seinnihluta nóvembermánaðar sl.
var síðan blaðamönnum víðs veg-
ar að úr heiminum boðið til Mar-
okkó til að berja augum og
reynsluaka hinum nýju bílum, en
fyrsta árið verða framleiddir
BMW 316, 318, 320i og 323i. Hins
vegar verður BMW 315 framleidd-
ur a.m.k. eitt ár til viðbótar í
óbreyttu formi.
ALLT FRÁ EYÐIMÖRK
UPP í HÆSTU FJÖLL
Það svæði, sem BMW hafði val-
ið sem reynsluaksturssvæði var
hreint frábært. Ferðin var hafin í
bænum Quarzazate, sem er í út-
jaðri Sahara-eyðimerkurinnar.
Þaðan var ekið sem leið lá að Atl-
as-fjöllunum, sem gnæfa liðlega
4.400 metra yfir sjávarmál. Ekið
yfir fjallaskarðið Col du Tichka,
sem er í 2.260 metra hæð yfir sjáv-
armáli og til borgarinnar Marra-
kech. Síðan var ekið sömu leið til
baka. Ymsir „útúrdúrar" voru síð-
an mögulegir á leiðinni svo sem að
aka út í eyðimörkina, upp í lítil
afskekkt fjallaþorp og fleira,
þannig að óneitanlega var hægt að
prófa bílana nánast við allar hugs-
anlegar aðstæður, nema á hrað-
brautum.
BREYTINGAR ÚTVORTIS
Ef vikið er að bílnum sjálfum,
þá hafa verið gerðar umtalsverðar
breytingar, þótt ekki séu þær allar
sjáanlegar. Línu bílsins hefur ver-
ið breytt á þann veg, að hann er
straumlínulagaðri. Að framan er
hann allur afrúnaðri með mun
mýkrf línur en forveri hans og
persónulega finnst mér hafa tekizt
vel til um endurhönnun útlitsins.
Að aftan er aðalbreytingin sú, að
bílnum hefur verið lyft, á sama
hátt og gert var við 5-Iínu verk-
smiðjunnar á liðnu ári og farang-
ursrými um leið aukið. Nú koma
allir bílar línunnar með tvöföldum
aðalljósum að framan, en áður
voru það einungis 320 og 323i, sem
komu þannig. Afturljósin hafa
verið stækkuð til muna og er það
til mikilla bóta. 3-línan er nú boð-
in með nýjum sportfelgum, sem
fyrir minn smekk eru mun
skemmtilegri en þær eldri, sem
voru að því leyti ólánlegar, að
mikill timi fór í að þrífa þær. Þá
kemur bíllinn nú á 14 tommu felg-
um, en var áður á 13 tommu.
BREYTINGAR
INNANSTOKKS
Helztu breytingar innanstokks
eru þær, að lögun sætanna hefur
verið breytt lítilsháttar, þannig að
þau veita nú enn frekari stuðning,
bæði bakstuðning og hliðarstuðn-
ing, sem fyrir minn smekk er til
bóta. Hins vegar verður að hafa
hefðbundinn fyrirvara á dómum
um sæti, að þar eru skoðanir
manna jafn misjafnar og þeir eru
margir. Það fer þó ekkert á milli
mála, að sætin eru vönduð. Þá hef-
ur þeirri nýjung verið komið fyrir
á farþegasætinu frammi í, að þeg-
ar því er hallað fram til að hleypa
farþegum aftur í, þá færist sætið í
heilu lagi fram á við, sem eykur
rýmið verulega. Litlar eða engar
breytingar eru á aftursætinu.
Bólstrun hefur verið breytt lítils-
háttar. Klæðning innan á hurðum
hefur verið aukin og bætt, þannig
að í heiid má segja, að innrétting
bilsins sé nokkru íburðarmeiri en í
forvera hans. Þá hefur verið hann-
að nýtt mælaborð, sem er mun
nýtízkulegra og skemmtilegra en í
eldri gerðum. Þá hefur rými fyrir
farþega bæði frammi í og aftur í
verið aukið, án þess að heildar-
stærð bílsins breytist.
TÆKNILEGAR
BREYTINGAR
Af tæknilegum breytingum er
það helzt að segja, að hannaðar
hafa verið nýjar bremsur í bílinn,
sem eru mun betri, en þær eldri. I
þær hafa verið hannaðir asbest-
lausir klossar, sem endast mun
betur en eldri klossar, auk þess
sem diskarnir að framan eru nú
stærri en áður var. Þá hefur fjöðr-
un bílsins verið breytt, þannig að
hún er nú sportlegri en í forvera
hans og virkar reyndar mjög
skemmtilega við hinar ólíkustu
aðstæður. Þá hefur verið hannað-
ur nýr, mun léttari, 5 gíra bein-
— Framendinn er mun mýkri en áður var. Stefnuljósin hafa verið fcrð undir
aðalljósin af vcngjunum.
. -'v'
- BMW 320i i Col du Tichka, hcsta Qallaakarði Atlaa-fjalla.
— Afturljósin eru stcrrí, en áður og BMW 3231 kemur með vindskeið á
kistulokinu.
skiptur kassi í bílinn. Hannað hef-
ur verið öflugra læst drif í bílinn
og svo má nefna, að 320-bíllinn er
nú kominn með beina innspýtingu
eins og 323 og 318 og nefnist eftir-
leiðis 320i.
DYR
Bílarnir verða fyrst um sinn
framleiddir tveggja dyra, eins og
þeir hafa verið í gegnum tíðina, en
næsta haust mun verða markaðs-
settur fjögurra dyra bíll, sem er
sjálfsagt gleðiefni fyrir marga,
sem finnst „ómögulegt" að vera á
tveggja dyra bíl. Mjög þægilegt er
að ganga um tveggja dyra bílinn,
enda eru dyr hans fremur stórar
og opnast vel. Með breyttu far-
þegasæti frammi í eins og getið
var um hér að framan er síðan
aðgangur aftursætisfarþega gerð-
ur mun greiðari en áður, sem er til
mikilla bóta. Dyrnar falla vel að
stöfum og ekkert „dósarhljóð" er í
þeim þegar lokað er. Bíllinn er nú
boðinn í fyrsta sinn með mið-
stýrðri rafdrifinni læsingu fyrir
þá sem það kjósa og er það óneit-
anlega mjög þægilegt. Sú læsing
virkar þannig, að þegar ökumaður
annað hvort opnar dyrnar, eða
lokar þeim, þá lokar hann og
— Frunactin koma endurhönnuð
með meirí stuðningL
— Nýtt sportlegrn
Fíii«—1—f;i ÍH
Bílar