Morgunblaðið - 16.12.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DBSEMBER 1982
65
■ ■
Salot
Nautakjot
Nautakjöt og salöt Tvær nýjar í
bókaflokknum Litlu matreiðslu-
bækurnar, sem eru þá alls orðnar
10. Hver bók fjallar um afmarkað
svið matargerðar og hverjum rétti
fylgja litprentaðar myndir. Auð-
skildar bækur og aðgengilegar.
Þýðandi Ib Wessman.
Sylvía önnur skáldsaga Aslaugar
Ragnars. Fyrri bók hennar,
Haustvika, vakti mikla athygli.
Þetta er örlagasaga ungrar komu
sem þarf að takast á við sjálfa sig
og umhverfið og finna lífi sínu
nýjan farveg.
tL’fW
Landið og Landnáma eftir dr. Har-
ald Matthíasson Laugarvatni.
„Þetta mikla verk verður best auð-
kennt með því að kalla það lykil að
Landnámu. Einum af mestu fjár-
sjóðum hennar staðfræðinni er
lokið upp fyrir lesendunum."
Steindór Steindórsson í Heima er
best, október 1982.
) 1981
TRÖLL
llðjólift
tinnar iit!
Sól ég sá sjálfsævisag Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum, náttúru-
fræðings og fyrrum skólameistara. Steindór er þekktur fyrir að vera í
senn einlægur og einarður, sanngjarn en samt harður í horn að taka sé
að honum vegið, svo sem kaflinn um uppreisnartilraunina í MA á
skólameistaramárum hans ber glöggt vitni. Steindór hefur kynnst
mörgum manninum á langri ævi og hann kynnir þá fyrir lesendum jafnt
í hversdagsbúningi sem skartklæðum. Samfylgdin við Steindór svíkur
engan, hvort heldur hann hugar að samferðafólki, steinvölu í götunni,
biómi í vegarbrún eða móaflesju og mýrardragi í nágrenninu.
Trolls-tröll sögur og teikningar úr
íslenskri þjóðsagnaveröld eftir
Hauk Halldórsson. Ensk og ís-
lensk útgáfa. Stórbrotnar og þjóð-
legar teikningar. Tilvalin gjöf til
allra íslendinga og vina og við-
skiptamanna erlendis.
Spilabækurnar Hvernig á að leggja
kapla? og Tveggja manna spil.
Skemmtilegar og aðgengilegar
handbækur um vinsæla dægradvöl
sem veita jafnt ungum sem eldri
leiðsögn og ánægju í tómstundum.
GíediíegjóC
tnedgódum bókum!
ÖRN&ÖRLYCUR
Siðumúla tl, simi 84866
, Ami
Jnhnscn
Árbók íslands 1981 Hvað gerðist á
íslandi 1981 eftir Steinar J. Lúð-
víksson. „Þessi Árbók — fjögur-
hundruð síður í stóru broti — en
mikið verk og vandað, nokkurs
konar tuttugustualdar Skarðsár-
annáll. Árbókin hefur nú komið út
í nokkur ár og kemur vonandi
lengi enn. Saman munu bækurnar
þá verða aldarspegill“. Erlendur
Jónsson Mbl. 1.12.1982.
Eyjar gegnum aldirnar eftir Guðlaug Gíslason fyrrum alþingismann.
Frásagnir í annálsformi af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum.
Viðburðarík saga um upphaf og
þróun byggðar, tyrkjaránið, sjósókn
og fjölskrúðugt mannlíf.
í bókinni eru 300 myndir frá
gamalli tíð og nýrri.
Fróðleg, skemmtileg og
myndauðug bók.
Kvistir I Lífstrénu samtalsbók
Árna Johnsen við 20 sérstæða ís-
lendinga sem koma til dyranna
eins og þeir eru klæddir. Á það
jafnt við Einar í Fíladelfíu, Gísla
á Uppsölum, Hannibai Valdi-
marsson eða Björn á Lönpmýri.
Lifandi bók um sérstæðar persón-
ur.