Morgunblaðið - 19.12.1982, Blaðsíða 36
84
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1982
Onnur sending
úr sömu áttinni
— lesendabréfi til Járnsíöunnar svarað
Járnsíðunni hefur borist annað
bréf frá Jóni Magnússyni, sem lót
í sér heyra fyrir nokkru og var
ekkert allt of hress með skrifin á
síöunni. Bréf hans fer hér á eftir:
„Mig langar til aö byrja á því
aö þakka hinum ágæta plötu-
gagnrýnanda Járnsíðunnar, Sig-
urði Sverrissyni, fyrir rétt staf-
sett, en ákaflega máttlaust svar,
sem birtist í Morgunblaöinu um
daginn. Og langar mig jafnframt
að ráöleggja þessum ágæta
manni aö snúa sér alfarið aö því
aö leiörétta stafsetningarvillur
eöa þá aö fylla skúffur sínar af
stjörnum því ef aö ekki þarf ann-
aö en aö hafa nýjar og frískar
hugmyndir til aö vera fimm-
stjörnulistamaöur, og ég tel aö
viðkomandi megi eiga von á
mikium fjölda slíks listafólks, þá
held ég aö ekki muni af veita aö
hafa nóg af stjörnum á lager til
aö geta annað þessum fjölda.
Jafnframt langar mig til aö
benda forráöamönnum þessarar
ágætu Járnsíöu á aö hennar
bárujárnsgreinar eru orönar ansi
ryögaöar og einhæfar.
Reykjavík,
Jón Magnússon, 5167-3182“
Svar Járnsíðunnar
Þakka brófiö Jón. Máttlaust
svar segir þú, en svarar ekki
frekar fyrir þig. Komdu með ein-
hver mótrök. Þú ráöleggur mór í
vinsemd aö snúa mér alfariö aö
því aö leiörétta stafsetningarvill-
ur. Ja, væru öll bréfin eins og þin
geröi ég tæpast annaö.
Þú segir bárujárnsgreinar mín-
ar orðnar ansi ryögaöar. Vel má
svo vera, en ekki hefur veriö
kvartaö yfir þeim fyrr en nú, enda
hafa þær aöeins veriö örsmár
hluti efnis á síöunni. Þvi til staö-
festingar rannsakaöi ég efni siö-
unnar aö undanförnu til aö geta
sýnt fram á þaö, svart á hvítu, aö
bárujárnsgreinar tröllríöa henni
ekki.
Frá því fyrra bréf þitt birtist og
þar til þetta kom þirtust 10
Járnsíöur í Morgunblaöinu. Á
þessum 10 síöum var aö finna
fjórar örstuttar eindálksfréttlr er
lutu aö þessari tegund tónlistar.
Taldist mér til aö þær væru um
2% af efni þessara 10 síöna
(plötudómar ekki meðtaldir). Ég
tel aö ég fari afskaplega varlega í
sakirnar þótt þetta sé mín uppá-
haldstónlist. f lokin vil ég benda
þér á, aö umsjónarmaöur Járn-
síöunnar er einn, enda er þaö
tekiö fram á hverri siöu.
Meö kveðju,
Sigurður Sverrisson
Lokaspretturinn
er nú um helgina
Lokaspretturinn { fjárhags-
átaki SATT í tenlgsum við
byggingarhappadrætti sam-
takanna verður nú um helg-
ina. Þegar þetta kemur fyrir
sjónir lesenda veröur heims-
metiö gott og gilt í maraþon-
inu, en ósköpunum lýkur ekki
aldeilis með því.
Um helgina eru nefnilega
dagar íslenskrar dægurtónlist-
ar, enn eitt átakiö í tengslum
viö happadrættiö, sem dregiö
verður í á Þorláksmessu. Á
meðal vinninga þar má nefna
tvær bifreiöir auk fjöldamargs
annars.
Fyrirkomulagiö á þessum
„dögum íslenskrar dægurtón-
listar ’82“, skst. „díd ’82“ verö-
ur þannig, aö öllum gestum
veltingahusa um helgina veröur
boöinn happdrættismiöi meö
rúllugjaldsmiöa sínum. Auövit-
aö er öllum frjálst aö hafna
þessum miöa, en SATT treystir
á, aö sem flestir sjál sér fært aö
styrkja starfsemina. Ennfremur
munu tónlistarmenn og aörir á
snærum SATT bjóöa miöa til
sölu víös vegar.
i kvöld, sunnudag, veröur
efnt til mikils fagnaöar í Broad-
way. Er þaö eins konar loka-
hnykkur í því geysilega átaki,
sem verið hefur aö undanförnu.
Stuömenn, Egó, Þeyr og Sonus
Futurae koma þarna fram.
Did8
Fjórða ríki Þeys
nýverið komið út
— sérstæðasta plata þeirra til þessa
Þeysarar. Eru þair að varða Mwwk Kiaa? apurði einn leeandi eíö-
uruiar.
Fjóröa plata Þeysara, sem ber
nafnið „The Fourth Reich" kom
út í síöustu viku. Vegna þrengsla
á Járnsíöunni og auglýsingaflóös
í blaöinu hefur ekki gefist tóm til
aö skýra frá þessu fyrr en nú.
Útkoma plötu þessarar er ekki
meö öllu átakalaus og t.d. var
umslag hennar bannaö í Eng-
landi þar sem þaö þótti kitla of
viökvæmar taugar. Varö því aö
hanna nýtt umslag. Þá hafa með-
limir sveitarinnar sjálfir aö miklu
leyti þurft aö standa í útgáfunni
þar sem fyrri plötur hlóöu upp
skuldum, sem hlndruöu fyrir-
greiöslu á mörgum stööum.
A þessari plötu eru fjögur lög,
sem tekin voru upp fyrr á þessu
ári. Óhætt er aö segja, aö um-
talsverö breyting hefur oröiö á
tónlist Þeysara frá því Mjötviöur
Mær kom út í fyrra, en hvort þær
eru til góös eöa ills skal ekki sagt
hér.
Aö sögn Sigtryggs Baldurs-
sonar er hljómsveitin þegar farin
aö huga aö útgáfu nýrrar
breiöskífu og þá lét hann þess
getiö, aö e.t.v. og líkast til færi
svo, aö sveitin kæmist á samning
hjá þekktu útgáfufyrirtæki meö
nýja árinu.
nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur
Whitesnake/
Saints and sinners:
Þrusugóð
rokkplata
Fantalega góö plata. Þaö segir
alla söguna. Whitesnake sýnir
hér á sér aöra og frískari hliö en
menn hafa átt aö venjast og var
þó flokkur þessi i framvaröasveit
þungarokksins. Afbragöshljóm-
sveit í alla staöi.
Mikil mannaskipti uröu í
hljómsveitinni rétt fyrir, á meöan,
og eftir upptöku á þessari nýj-
ustu piötu hennar, sem ber nafn-
Whitesnake
iö Saints and sinners, stóö. Þykir
sýnt, að hún standl tæpast jafn-
vel aö vtgi og áöur, en hver veit.
Á braut hafa horfiö menn á borö
viö lan Paice, Mick Moody og
aöra góöa.
Þessi þriöja plata Whitesnake,
sem nöfnum tjáir aö nefna, er sú
langsamlega besta úr þessari átt.
Krafturinn geislar hreinlega af
lögunum hverju á fætur ööru og
Coverdale syngur betur en
nokkru sinni. Þaö er erfltt aö
ætla sér aö tína einstök lög út,
þau eru hvert ööru betra. Hafi
menn eyra fyrir töfrandi rokki
ættu þeir aö smella sér á eintak
af þessari plötu snimhendis.
Þorsteinn Magnús-
son/ Líf:
Áhugaverð
samsetning
Hver veröur útkoman þegar
gítarsnillingur tekur sér þaö
verkefni fyrir hendur, aö berja
saman heila plötu á eigin spýtur?
Svarið liggur hreint ekki á lausu,
enda hlýtur slíkt aö miöast mjög
viö viðkomandi listamann.
Ég haföi heyrt þaö utan aö
mér, aö plata Þorsteins Magn-
ússonar, Steina, væri vægast
sagt óvenjuleg. Slíkt leynist held-
ur engum þegar platan er sett
undir nálina. Óreglulegur taktur,
óvanalegir hljómar og allt annaö
þar fram eftir götum rennur inn (
eyrun þegar platan er spiluö. Ot-
koman? Ekki kannski töfrandi,
en vekur áhuga, mikinn áhuga.
Þorsteinn er meö þessu verki
sínu, sem hann reyndar skiptir í
sex kafla, að velta fyrir sér ferli
mannverunnar frá móöurkviöi
fram yflr grafarbakkann. Textar
hans eru mjög sórstæölr og
áhrifaríkir, en skiljast illa nema
textablaöiö sé haft um hönd.
Þessi plata Steina, Líf, er um
margt ákaflega óvenjuleg. Vlssu-
lega sér á parti i íslenskum
„poppheimi”. Hvort hún fellur
hinum almenna hlustanda í geö
er svo aftur allt annaö mál.
Rod Stewart
Rod Stewart/
Absolutely live:
Sá gamli sýnir
að enn er líf
Tvöföld hljómleikaplata frá
rokkaranum síunga, Rod Stew-
art, er vafalítiö kærkominn jóla-
glaöningur hjá aödáendum hans
og hver veit, kannski miklu fleir-
um?
Eg varö a.m.k. nokkuö hissa á
þessari plötu, sem sýnlr svo ekkl
veröur um vlllst aö karlinn er alls
ekki af baki dottinn. Á þessari
tvöföldu plötu syngur hann flest
vinsælustu laga sinna undanfar-
inn áratug meö sveit valinkunnra
hljómlistarmanna aö baki.
Stemmningin á tónleikunum er
virkilega „ekta“ og stundum slík,
aö karlinn þarf ekkert aö hafa
fyrir því að syngja sjálfur. Áhorf-
endur sjá um þá hliöina á köflum.
Sú saga fylgir þessari plötu aö
ekki hafi verið reynt aö „dubba"
neina galla, sem fram komu á
tónleikunum heldur hafi megin-
áherslan verlö lögö á aö koma
stemmningunni til skila. Þaö hef-
ur óumdeilanlega tekist þótt
vissulega séu brestir í hljóö-
blöndun. Bassatromman t.d.
óþarflega sterk og hljómurinn í
henni leiöinlega holur. Slíkt er
smotterí, sem spillir ekki ánægj-
unni af vel heppnuöu verki.
Magnús Eiríksson/
Smámyndir:
Samur við sig
en aðrir tímar
Magnús Eiríksson, sá ágæti
laga- og textasmiöur, hefur nú
skotiö upp kollinum á ný eftlr
nokkurra ára hlé úr „plötubrans-
anum”. Plata hans, Smámyndir,
kom út hjá Fálkanum fyrlr
skemmstu.
Þessi plata Magnúsar er alls
ekki sú besta, sem hann hefur frá
sér sent á ferlinum. Þarna eru aö
vísu nokkur prýöisgóð lög og
textarnir ágætir í gegn, en þaö er
eitthvaö sem vantar.
Þegar stjarna Magnúsar rels
sem hæst var fátt um skemmti-
lega íslenska tónlist á mark-
aðnum. Magnús hefur ekki
breyst svo mikiö frá þeim tíma,
en fjöldi góöra hljómsveita hefur
skotiö upp kollinum. Tilvist þeirra
gerir þaö einfaldlega aö verkum,
aö menn á borö viö Magnús
veröa ekki eins áberandi og áö-
ur.
Á þessari plötu reynir hann aö
fylgja eftir þeirri þróun, sem orö-
iö hefur jafnt í lagasmíöum sem
og hljóðfæraleik á undanförnum
árum. Tölvuhljóöfæri eru áber-
andi, en ekki notuö á ýkja fersk-
an hátt. Þetta er plata, sem ekki
höföar til unga fólkslns í dag og
þá er spurningin hvernig hún
kemur út fjárhagslega.
Bestu lög: Þorparinn, Hvaö um
mig og þig, Vals númer eitt og
Gúmmítarzan.
Magnús Eíríksson