Morgunblaðið - 18.02.1983, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1983
Messur á sunnudaginn
SAURBÆJARKIRKJA Hvalfjarð-
arströnd: Kirkjukór og sóknar-
prestur Akraneskirkju koma i
heimsókn á sunnudaginn og
annast kvöldguösþjónustu kl.
20.30.
PATREKSKIRKJA: Messa á
sunnudaginn kl. 14. Organisti
Öjvind Solbakk. Barnamessa kl.
11. Sr. Þórarinn Þór.
BÍLDUDALSKIRK JA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Nk. mánu-
dagskvöld verður Biblíulestur á
prestsetrinu kl. 20.30. Sr. Dalla
Þórðardóttir.
Guðspjall dagsins:
Matt. 4.:
Freisting Jesú.
ESKIFJARDARKIRK JA: Á morg-
un, laugardag, barnastund kl.
10.30. Sóknarprestur.
REYÐARFJARÐARKIRKJA:
Barnastund á sunnudag kl.
10.30. Sóknarprestur.
KIRKJUHVOLSPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í Hábæjarkirkju
á sunnudag kl. 10.30. — Guðs-
þjónusta í Kálfholtskirkju kl. 14.
Sr. Sváfnir Sveinbjörnsson pró-
fastur prédikar og kirkjukór
Fljótshlíöarkirkju syngur. Eftir
guðsþjónustu verður kirkjukaffi í
Ási, þar sem sr. Sváfnir svarar
spurningum um ræðuefniö. Auð-
ur Eir Vilhjálmsdóttir.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 14
á sunnudaginn. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Almenn
safnaðarguðsþjónusta. Messa á
sunnudaginn kl. 14. Organisti
Einar Sigurðsson. Sr. Heimir
Steinsson.
Kirkjur á landsbyggöinni
Bjarni Sæmundsson heggur ölduna í brslu norður af landinu.
Morgunblaðiö Kafn Olafsson.
Hrygningarstofn loðnu
mældist 220 þúsund tonn
Lítið hægt að mæla
af smáloðnu vegna
íss á vestursvæðinu
Hjálmar sagði, að athuganir
sem gerðar voru í fyrra bentu til
þess, að unnt verði að leyfa ein-
hverjar veiðar næsta haust og vet-
ur. Þær athuganir, sem ætlunin
var að gera nú á þeim hluta
stofnsins sem hrygnir 1984 mis-
tókust, eins og áður er sagt, og
bættu þvi engu við fyrri þekkingu.
Tillögur um aflakvóta fyrir næsta
veiðitímabil verða því sennilega að
bíða bergmálsmælinga næsta
haust eins og venja hefur verið.
ÁKLEGl'M loðnuleiðangri á rann-
sóknaskipunum Bjarna Sæmunds-
syni og Árna Kriðrikssyni er nýlega
lokið. Vegna illviðris fók leiðangur-
inn lengri (íma, en fyrirhugað var og
reyndar tókst ekki að kemba allt
svæðið, sem ætlunin var að fara vfir.
Samkvæmt upplýsingum, sem fram
komu í samtali við Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðing í gær mæld-
ist hrygningarstofn loðnunnar um
220 þús tonn, en forsenda þess, að
einhverjar veiðar yrðu leyfðar í vetur
voru 400 þúsund tonna stofn. Að-
spurður um hvenær líklegt væri að
loðnuveiðar yrðu leyfðar sagði
Hjálmar, að tillögur um það yrðu
sennilega að bíða loðnurannsókna á
komandi hausti.
Leiðangurinn nú hófst er Bjarni
Sæmundsson fór til leitar úti af
Austfjörðum 14. janúar, en vegna
veðurs var lítið hægt að gera
framan af. Árni Friðriksson bætt-
ist síðan við og í lok janúar var
stærð hrygningargöngunnar úti
fyrir Austfjörðum um 220 þúsund
tonn, samkvæmt bráðabirgðaút-
Leiðangursstjórarnir Hjálmar Vilhjálmsson og Páll Reynisson bera sam-
an bækur sínar á Eskifirði.
Úr leiðangri hafrannsóknaskipanna. Skipverjar á Bjarna Sæmundssyni
berja ís af skipi sínu um 100 sjómílur NNA af Langanesi.
unin að kanna svæðið útaf Vest-
fjörðum, þar sem ljóst var orðið,
að mest af smáloðnunni hefði
haldið vestur í Grænlandssund að
þessu sinni. ís hafði hins vegar
komið inn á vestursvæðið í norð-
anáhlaupi, sem gerði meðan á leið-
angrinum stóð, og því var ekki
hægt að kanna svæðið sem skyldi.
Út af Víkurál fannst þó talsvert af
smáloðnu, en á þeim slóðum varð
ekki vart kynþroska loðnu svo
neinu næmi. Virðist því ljóst, að
aðeins ein hrygningarganga hafi
verið á ferðinni.
reikningum. Fyrir austan Gerpi og
norðan Langaness virtist engin
loðna á ferðinni.
I athugun fyrir Norðurlandi
reyndist ekki vera loðna á ferð-
inni, utan að lítið eitt var af smá-
loðnu við Kolbeinsey og út af
Sléttugrunnshorni. Síðan var ætl-
Hjarðarhagi — sérhæð
Góð um 130 fm sérhæð á 2. hæð í fjórbýlishúsi við Hjarðarhaga. 3
svefnherb., þar af eitt forstofuherb. Þvottaherb. á hæðinni. Góðar
suðsvestur svalir. Bílskúr.
Engihjalli — 3ja herb.
Mjög rúmgóð og falleg íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi. góðar innréttingar.
Þvottaherb. á hæðinni. Suður svalir.
Hamraborg — 3ja herb.
Góð 3ja herb. íbúö á 4. hæð í Hamraborg. Góðar innréttingar. Gott
útsýni. Bílskýli.
Kópavogur — einbýlishús
Húsiö er um 90 fm að grunnfleti hæð og ris. Á hæðinni er stofur, 1
herb., eldhús og bað. Uppi: 3—4 herb. og fl. Bílskúr um 35 fm.
> Mjög góöur ræktaöur garður. Teikn. á skrifstofunni.
Fífusel — 4ra—5 herb.
Góð 4ra herb. íbúð á 1. hæð við Fífusel. Aukaherb. í kjallara. íbúðin
er ekki alveg fullgerð en vel íbúðarhæf. Mjög gott verö með góöri
útb. Einkasala.
Vesturbær — í smíðum
Mjög fallegt einbýlishús viö Frostaskjól. Húsið er á 2 hæðum með
innbyggðum bílskúr. Samtals um 230 fm. Teikn. á skrifstofunni.
Vantar 3ja herb. höfum kaupanda að 3ja
herb. íbúð helst með bílskúr
í Kópavogi, Reykjavík eða nágrenni. Má þarfnast standsetningar.
EignahöUin Hverfisgötu76
Skúli Ólafsson
Hilmar Victorsson viöskiptafr.
Fasteigna- og skipasala
Viötalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæöisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl.
10—12. Er þar tekiö á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö að
notfæra sér viötalstíma þessa.
VHhjélmur Emar
Laugardaginn 19. febrúar veröa til viötals kl.
10—12 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Einar
^Hákonarson.
Djúpslökun
&
spennulosun
Læröu hvernig djúpslökun getur hjálpaö þér til
aö:
• ná aöhliöa vööva- og taugaslökun
• fyrirbyggja höfuöverki, vöövabólgu o.fl.
• yfirvinna kvíöa, svefntruflanir og óöryggi
• ná betri árangri í námi og starfi
• bæta sjálfsímyndina og tjáningarhæfni
Djúpslökunarkerfið er taliö meðal áhrifaríkustu aöferða til
vööva- og taugaslökunar, en þaö þyggir á tónlistarlækn-
ingum, beitingu ímyndunaraflsins, sjálfsefjun og öndun-
artækni.
Fræöslumiðstööin Miögarður Bárugötu 11 býöur upp á
ítarlega kennslu í djúpslökunarkerfinu:
Helgarnámskeiö: 11.—13. feb., 18.—20. feb. og 25.—27.
feb. Námsefni og tveir kvöldfundir fylgja meö. Jafnframt
vikulegir hóptímar í slökun.
Einkatímar: Tvisvar í viku í átta vikur, klukkustund í senn.
Jafnframt vikulegir hóptímar.
Kennari: Guömundur S. Jónasson.
Skráning og upplýsingar í síma: 12980 milli kl.
10—18.
/HIÐG/1RÐUR