Morgunblaðið - 18.02.1983, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1983
Guörún Fema Ágústsdóttir
sundkona Ægi.
Markakóngar íslandsmótsins í
knattspyrnu, Sigurlás Þorleifs-
son ÍBV og Heimir Karlsson
Víkíngi.
■?. *=> <-^ •
Árni Sveinsson ÍA, leikmaöur
íslandsmótsins í knattspyrnu.
Oddný Árnadóttir frjálsíþróttakona ÍR.
Kristján Sigmundsson Vfkingi
leikmaöur íslandsmótsins í
handknattleik 1982.
Símon Ólafsson Fram, körfu-
knattleiksmaður varö bœöi
stigahæstur og jafnframt kjör-
inn leikmaður mótsins.
Iþróttaverðlaun Mbl.
afhent í dag:
Alfreö Gíslason KR, marka-
kóngur íslandsmótsins í hand-
knattleik.
Átta afreksmeim
verða heiöraðir
MORGUNBLAÐIÐ mun í dag heiðra átta
afreksmenn í íþróttum. í hófi í dag sem
fram fer að Hótel Loftleiöum mun Mbl.
veita viðurkenningar fyrir síðustu ís-
landsmót í knattspyrnu, handknattleik og
körfuknattleik. Jafnframt veröur tveimur
íþróttakonum veitt viðurkenning fyrir
góða frammistöðu í íþrótt sinni og góð
afrek.
Knattspyrna:
Árni Sveinsson var stigahæstur í
einkunnagjöf Morgunblaðsins fyrir
síðasta keppnistímabil í knatt-
spyrnu. Árni fékk samtals 126 stig
fyrir 18 leiki, sem gaf honum 700 í
einkunn aö meðaltali. Árni er mjög
vel að heiðrinum kominn, hann hefur
um langt árabil verið einn af fremstu
knattspyrnumönnum landsins og
gert garðinn frægan bæöi meö fó-
lagsliði sínu ÍA, svo og landsliöinu.
Þá verður markahæstu leik-
mönnum síöasta keppnistímabils
veitt viöurkenning. Markakóngar
uröu þeir Sigurlás Þorleifsson ÍBV
og Heimir Karlsson Víkingi. Þeir
skoruöu hvor um sig 10 mörk. Sigur-
lás er nú aö hljóta viöurkenningu frá
Morgunblaöinu i annað sinn, fyrir aö
vera markakóngur 1. deildar Is-
landsmótsins í knattspyrnu.
Handknattleikur:
Leikmaóur síðasta islandsmóts i
handknattleik varð Kristján Sig-
mundsson markvörður úr Víkingi.
Kristján var lykilmaöur í hinu sigur-
sæla liöi Víkings sem varö Islands-
meistari þriója áriö í röö. Kristján
hefur líka veriö einn af aöalmark-
vöróum landsliósins um langan tíma
og fer meó iandsliöinu í næstu viku í
B-keppnina í Hollandi.
Markakóngur síöasta Islandsmóts
LiinnmcH
í handknattleik varð Alfreð Gíslason
KR. Alfreó skoraði 109 mörk á síö-
asta keppnistímabili. Þaö sem er at-
hyglisvert viö þessa miklu marka-
skorun Alfreös er aö hann skoraöi
aöeins 28 mörk úr vítaköstum. Ai-
freö er nú ein aöalskyttan í islenska
landsiióinu í handknattleik og mikið
mun mæöa á honum í B-keppninni í
Hollandi. Þá er Alfreð einn af burð-
arásum KR-liösins, sem hefur veriö í
stööugri framför.
Körfuknattleikur:
Símon Ólafsson Fram var bæöi
kjörinn leikmaður síöasta Islands-
móts í körfuknattleik, og varö jafn-
framt stigahæsti leikmaöur mótsins.
Símon er einn af fremstu körfuknatt-
leiksmönnum landsins. Lykilmaður í
liói Fram og hefur leikiö fjölmarga
landsleiki. Símon skoraöi 393 stig í
síðasta Islandsmóti. Þá átti hann
mjög góöa leiki meö íslenska lands-
liöinu er þaö tók þátt í Evrópu-
keppninni í körfuknattleik á síöasta
ári. Á síðasta keppnistímabili varö
liö Simons, Fram, bæöi Reykjavíkur-
og bikarmeistari í körfuknattleik.
Tvær íþróttakonur
heiðraðar:
Þá veröa tvær íþróttakonur heiðr-
aöar. Þær Oddný Árnadóttir frjáls-
iþróttakona úr IR og Guórún Fema
Ágústsdóttir Ægi. Þær hafa báóar
unnið góö afrek á síöasta ári í
iþróttagreinum sínum og sett ls-
landsmet
— ÞR
Míklír baráttuleikír
í blakinu um helgina
BARIST verður á botni 1. deildar
um helgína þegar Víkingur, sem
nú er í neösta saati, heimsækir
Bjarma og UMSE norður í land.
Ef Víkingi tekst aö fá sín fyrstu stig
í þeirri för verður lokaspretturinn á
botninum spennandi, ef ekki þá er
nokkuö vist aö þeir falli. Leikurinn
viö Bjarma hefst að Ýdölum í kvöld
kl. 20.30 og á morgun leika þeir í
Skemmunni á Akureyri gegn
UMSE kl. 15. Strax aö þeim leik
loknum leika KA og Víkingur í 1.
deild kvenna og þær leika einnig á
sunnudeginum kl. 14, en þá í Gler-
árskóla.
I 2. deild karla er einn leikur og
er hann mjög mikilvægur. Fram
leikur gegn UBK og ef Fram vinnur
þá eru þeir aöeins tveimur stigum
á eftir HK, en eiga einn leik til
góöa. Ef UBK sigrar þá eru ná-
grannar þeirra úr Kópavogi, HK,
komnir með annan fótinn upp i 1.
deild. Leikur Fram og UBK er í
Hagaskólanum á morgun og hefst
kl. 16.30 en á undan þeim leika
Þróttur og Laugdælir í Bikar-
keppninni og hefst sá leikur kl. 14.