Tíminn - 08.08.1965, Blaðsíða 8
TÍMINN
SUNNUDAGUR 8. ágúst 1965
Verrazano-Narrows-brúin nýja,
sem liggur yfir háfnarmynni New
York borgar milli Brooklyn og
Staten Island, hefur verið kölluð
„allra brúa stórfenglegust.“ Brú
þessi, sem hefur mesta haf allra
brúa heims, er vissulega í sér-
flokki, og er um leið methafi í
ýmsu fleiru, Stálmagnið, sem fór
til smíði hennar, myndi, til dæm-
is, nægja til byggingar þriggja
Empire State bygginga (hæsta hús
heimsins, 102 hæðir), og lengd
víranna, sem hver er að sverleika
svipaður og venjulegur blýantur, í
fjórum aðalstrengjum, myndi ná
um það bil sex sinnum kringum
hnöttinn.
Auk þess að vera eitt undra-
verðasta verkfræðiafrek sögunn-
ar er Verrazano-brúin sennilega
eit! mesta byggingalistaverk
vorra tíma. Hin tignarlega Verr-
azanobrú gnæfir 68 m. yfir The
Narrows — Þrengslin — eina fjöl
förnustu siglingaleið veraldar, þar
sem 13.000 skip fara um árlega,
Brúin er nýtt hrífandi mannvirki,
er jrlendir gestir í Ameríku sækj
asi eftir að skoða. Frelsisstyttan
skammt frá er eins og lítil brúða
við hlið brúarinnar
Nafnið ber brúin til minningar
um :ið florentískur landkönnuð-
u> liovanni da Verrazano, er
sigkii lindir frönskum fána, varð
fyrstuj Evrópumanna til að sigla
inn i New York flóa. Verrazano-
brúin stendur einnig sem minnis-
varði um mikilmenni, sem ekki
þtv f að sækja ýkja langt aftur í
tímann — manninn, er gerði frum
drætúna að henni, Othmar H.
Ammann, 85 ára — hinn síðasta
mikilla brúasmiða 20. aldarinnar,
og ef til vili mesta brúaverkfræð-
kig allra tíma.
Aðrir afreksmenn og stofnanir,
sem hér koma við sögu, eru brú-
arsmíðafyrirtæki, verkfræðingar
þeirra og starfsmenn, er fram-
kvæmdu verkið eftir uppdráttum
Ammanns fyrir 20 milljónum doll
ara :egri fjárhæð en upphaflega
va ' fiuð, en hún nam 325 millj
óu dollara — og sex vikum
fyri en ráðgert var. Brúarsmíð-
innPdvtó< 3öki«f?át'"læþl4Kif"''fímm
áru'tn. - ÞahmiMmíií-istörfuðúid vSS
hana 12.000 manns.
Allt viðkomandi Verrazano-
brúnni er eftirtektarvert. Fyrst og
fremst er það auðvitað aðalhaf
hennar, sem hangir í stálvírum
festum í fjóra aðalstrengi. Á mið-
hluta brúarinnar eru sex ak-
greinar tveggja hæða steinsteyptar
brautir, sem þola umferð 48 millj-
óna farartækja árlega. Tveir
tveggja súlna brúarturnar, boga-
laga efst, halda uppi burðarstrengj
um. Hvor brúarturnanna er á hæð
við 70-hæða byggingu.
Aðalhaf brúarinnar milli turna
er 1.298 metrar á lengd — 18,2
metrum lengri en fyrri „heims-
metahafi" hengibrúnna, Golden
Gate-brúin í San Francisco. Enn-
fremur má geta þess, að hengi-
þungi Verrazano-brúarinnar á
hvert lengdarfet er 75 af hundraði
meiri en Golden Gate-brúarinnar.
Haf Verrazano-bníarinnar er í
rauninni svo mikið, að taka varð
til greina boglínu jarðar, þegar
brúarturnarnir voru reistir, Turn-
arnir urðu að stefna að miðpunkti
jarðar, til þess að þeir stæðu ná
kvæmlega beint fyrir aðdráttarafli
jarðar. En yegna 'þess, áð hér um
bil ein míía er milli turnanna,
varð áð hafa bogiimi jarðar með
í reikningnum, sem verrður til
þess, að 1- 5/8 þumlunga eða 3,6
sentimetra lengra bil verður milii
efstu hluta brúarturnanna en
grunna þeirra.
Það er öðru nær en að mið-
hluti brúarinnar sé hreyfingar
laus, þótt hann sé 51,000 smálest
ir að þyngd. Fellibylur gæti sveifl
að akbrautum brúarinnar 4,2
metra til hliðar og í miklum,
kulda, þegar stálstrengirnir, sem
halda brúnni uppi, herpast til
fulls, iyftist brúin 3 til 3,6 metra
hærra yfir sjávarmál en á heitum
miðsumardegi. En brúin er byggð
fyrir þessar sveiflur, rétt eins og
skýjakljúfarnir. Litið er á slíkar
sveiflur sem lítilræði, þegar svo
gríðarleg mannvirkj ,eiga * hlut.
Hvor brúarsporður er 370 metr-
ar á lengd. Frá enda til enda, þar
Iem - tfYdlifi byrjar Brooklyn-meg-
n og þar -til hún snertir Staten
sland, eru akbrautir hennar 2.039
metrar. Öll lengd brúarinnar, með
taldir aðliggjandi vegaspottar, er
4.176 metrar, eða um 4,2 km.
Hvor turnanna rís 210 m. yfir
sjávarmál, og það þurfti 27.000
smálestir af stáli í hvorn þeirra,
og 3 milljónir hnoðnagla og 6
milljónir bolta halda öllum í skorð
um. Þetta er jafn mikið stálmagn
og notað var í Empire State bygg-
inguna í New York.
Turnarnir standa þráðbeinir og
hvíla á undirstöðum í föstu sand-
lagi, án festingar. en eru óhagg-
anlegir vegna þunga síns einvörð-
ungu. Vírarnir, akbrautirnar og
turnarinir sjálfir eru samanlegt
135.000 voálestir að lóðréttri
þungd á grunn hvers turns Vír-
arnir, sem bruin hangn i, vega alls
38.290 smálestir og eru settir sam-
an úr 228.800 km. löngum, galvan
iseruðum brúarvír, en sú lengd
myndi ná rúmlega hálfa leið frá
jörðu til tunglsins.
Nákvæmlega 428 vírar samhliða
gera einn kaðalþátt, 61 slíkir þætt
ir voru þjappaðir saman með
vökvaafii í einn sívalan kaðal
0,9 m. í þvermál. Hvor kaðall er
2.196 m. langur.
Grunnfestingarnar á Staten Is-
land og Brooklyn, þar sem kaðl-
arnir eru festir, urðu að vera
nægilega traustar, til þess að þær
gætu naldið í við 110 smálesta
þunga brúarkaðlanna fjögurra.
Grunnfestingarnar eru þríhyrnd-
ir stallar 10 hæða háir, og í þeim
eru 700.000 lestir af stáli og sem-
enti.
Heildarþungi brúarinnar er ótrú
legur. eða 1.265.000 smálestir,
enda er hún þyngsta brú verald-
ar. Til samanburðar má benda á
Empire State-bygginguna, er vegur
365.000 smálestir.
Verrazano-brúin var hugsuð
sem feikna mannvirki í stóruni
dráttum. Árið 1954, er Ammann
var 75 ára, byrjaði hann fyrst að
gera lauslega útlitsdrætti af
brúnni. Otbmar H. Ammann fædd-
ist í Svisslandi, en kom
til Ameriku 1904 til að starfa við
brúarsmíði. Á 62ja ára starfs-
ferli hefur hann verið viðriðinn
smíði og áætlanir um margar fræg
ar brýr. Meðal þeirra eru Golden
Gate-brúin í San Francisco, en
hann var ráðunautur við smíði
hennar, George Washington-brúin
í New York City, sem hann gerði
uppdrætti að, Bayonne-brúin
milli New York og New Jersey,
sem er lengsta bogabrú í heimi,
og Mackinac Straits-brúin í Michig
an, sem hann einnig starfaði við
sem ráðunautur.
Þegar rætt var um Verrazano-
brúna, meistarastykki hans, sagði
Ammann nýlega: „UppdrætHr að
brú miðast að miklu leyti við að
stæður á staðnum — svo sem stað
hætti, jarðfræðileg atriði og kröf-
ur um siglingar á þeim stað, sem
þarf að brúa.“ Othmar sagði og
að brúarsmiðurinn hefði samt
nokkurt svigrúm innan þessarra
takmarka til að láta eigin hæfi-
leika njóta sín. „Við brúarsmíði,“
hélt hann áfram, „eru fagurfræði-
leg atriði jafnmikilvæg og verk-
fræðileg smáatriði. Það er glæpur
að byggja ljóta brú.“
Við Verrazano brúargerðina hef
ur Ammann valið þann kostinn
að tengja brúarstöplana, eða turn
ana, saraan með bogalaga hliði að
ofan í stað þess að nota röð þver-
sláa og skástoða, eins og venja
hefur verið við smíði annarra
brúa, til að styrkja þær. Ammann
hafði fyrir hugskotssjónum, að ör-
lítið uppmjókkndi turnarnir
„bæru með sér grundvallaratriði
einfaldleikans og notagildis
þeirra.“ Og þetta er nákvæmlega
það, sem þeir gera.
Boglína hengikaðianna er höfð
grunn til að draga betur fram
svífandi svip brúarinnar. Hæð ská
stoðanna á brúnni er höfð í lág-
marki eða réttt nægileg til þess
að bifreiðir geti ekið eftir neðri
brautunum. Þetta fyrirkomulag
verður til þess að þarna hverfur
hinn þunglamalegi og stórgerði
svipur, sem einkennir sumar hengi
brýr.
Er að því kom að mála skyldi
brúna, krafðist Ammann þess, að
hún yrði máluð sem „líkust hafi
og himni." Það þurfti 145.000
lítra af sérstakri, grárri málningu.
til þess að brúin félli sem bezt
inn í hið náttúrlega umhverfi.
„Þetta eru fagurfræðileg atriði,1'
sagði Ammann, er hann lét í ljós
sjónarmið sín varðandi brúargerð.
Vandinn er sá, hve langt hægt er
að ganga í þvi að smíða eitthvað,
sem lítur vel út og er einnig
tæknilega rétt.“
Nú, þegar Verrazano brúarsmíð
inni er lokið, hefur Ammann var-
færnislega lýst sig ánægðan með
árangurinn — en heldur um leið
við hina óskrifuðu reglu brúar-
smiða að forðast að auglýsa sjálf-
an sig. Hann segir lítið meira en
„þetta er snotur brú og felur í
sér vissar verkfræðilegar framfar-
ir.“
Blaðaummæli voru á einn veg
og berorð — að brúin væri fagurt
og stórkostlegt mannvirki og fram
úrskarandi tækniafrek. Vafalaust
tekst Ammann að gera lítið úr
stærð brúarinnar með orðum sín-
um, en það er erfitt að ímynda
sér stærra mannvirki á að líta.
þegar horft er ofan af 70 -hæða
turnum hennar, eða af pramma
niðt á sjónum, eða er maður séi
hana úr fjarlægð ber? við sjóri
deildarhringinn
Miðhluti 'brúarinnar er 2,6 sinn
um lengri en á hinni frægu 81 árs
gömlu Brooklyn-brú, sem smíðuð
var af brautryðjandauum í hengi-
„Það er
1 glæpur að
m byggja Ijóta
brú“
m. 4W 4 Þetta er Othmar H. Amman, brúarsmiðurinn mikll.