Morgunblaðið - 03.06.1983, Side 10
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA?
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1983
FERÐALÖG
Ferðafélag íslands:
Fimmti göngudagur
ferðafélagsins
á sunnudaginn
í kvöld veröur farið í helgarferðir
í Þórsmörk og á Eyjafjallajökul. Á
morgun kl. 13 veröur fyrsta
Bláferö Utivistar, en þetta er ný
tegund feröa sem veröa af og til á
laugardögum í sumar. Fyrsta ferö-
in verður, eins og nafniö bendir til,
út í bláinn, þar sem þátttakendur
giska á hvert fariö veröur. Kl. 8 á
sunnudagsmorgun er dagsferö í
Þórsmörk.
Aðrar dagsferöir sunnudagsins
eru liöur í kynningu Útivistar á
Hengilssvæöinu. Kl. 10.30 veröur
ganga um Marardal á Hengil og kl.
13 er gönguferö í Innstadal, sem er
einn af Hengladölum. í báöum
þeim feröum veröur gengið úm úti-
legumannaslóöir og síöan endaö í
baöi í heita læknum í Innstadal.
Brottför í feröirnar er frá BSÍ,
bensínsölu.
Á miövikudagskvöldið 8. júní kl.
20 verður kvöldganga og steina-
leitarferð um Esjuhlíöar og á
fimmtudagskvöldiö 9. júní verður
kynningarkvöld aö Borgartúni 18.
Þar veröa kynntar feröir sumars-
ins, sérstaklega Hornstrandirnar.
Útivist:
Fyrsta „Blá-
ferðin“ í sumar
Á sunnudaginn er 5. göngudag-
ur Feröafélags íslands. Göngu-
feröir eru alla sunnudaga á áætlun
Ferðafélagsins og því alltaf tæki-
færi til þess að taka þátt í göngu-
feróum, en hversvegna þá göngu-
dagur? Tilgangur er sá aö kynna
fólki þessa skemmtilegu tóm-
stundaiöju aö ganga á tveim jafn-
fljótum út í náttúrunni í góöum fé-
lagsskaþ. Valin er létt gönguleiö,
hæfilega löng (12 km) kringum
Heigafell og er þar sléttlendi, sem
gengiö er. Áætlaður tími í gönguna
er 3 klst. Ekiö veröur aö Kaldár-
seii, þar sem er gott bílastæði og
er fólk á eigin bílum velkomið meö
í gönguna, en brottfarartímar frá
Umferöarmiöstööinni eru kl. 10.30
og kl. 13.
j kvöld kl. 20 er fariö í Þórs-
mörk. Gist í húsi og fariö í göngu-
ferðir meö fararstjóra.
Miövikudaginn 8. júní er skóg-
ræktarferö í Heiömörk kl. 20. Nán-
ari auglýst i félagsiífi blaöanna.
SAMKOMUR
Safnaóarfólag Áskirkju:
Flóamarkaður
um helgina
Safnaöarfélag Áskirkju veröur
meö flóamarkaö til styrktar kirkju-
byggingunni á morgun, laugardag-
inn 4. júní milli kl. 10 og 19, og
sunnudaginn frá 13 til 19. Flóa-
markaöurinn verður haldinn í kjall-
ara kirkjunnar.
Menningarmiðstöðin
við Gerðuberg:
Hússtjórnarmenn
athugið!
Mánudaginn 6. júní efnir Menn-
ingarmiðstööin til fræöslu- og
kynningarfundar fyrir hússtjórnir í
Breiöholtini.
Á fundinn koma Siguröur Guö-
jónsson frá Húseigendafélaginu og
Hjörleifur Kvaran, skrifstofustjóri á
skrifstofu borgarverkfræöings.
Þeir flytja stutt framsöguerindi og
svara fyrirspurnum.
Fundurinn hefst kl. 20.30. Allir
velkomnir og eru hússtjórnarmenn
eindregiö kvattir til þess aö mæta.
Norræna húsið:
Þáttur íslands
í menningarkynn-
ingunni í Banda-
ríkjunum
Menntamálaráöuneytiö og
Menningarstofnun Bandaríkjanna
á Islandi hafa í samvinnu unniö aö
uppsetningu yfirlitssýningar á
þætti islands í Norrænu menning-
arkynningunni í Bandaríkjunum.
Sýningin er í máli og myndum
og er nú til sýnis í Norræna húsinu
í Reykjavík, en veröur opnuö í
Keflavík föstudaginn 3. júní og
veröur þar til sunnudagskvölds 12.
júní.
Sýningin verður í nýja sýn-
ingarsalnum á 2. hæö viö Hafnar-
götu 62 og veröur opin frá kl. 16 til
22 daglega.
Frá Keflavík fer sýningin til Ak-
ureyrar og veröur ópnuö þar þann
17. júní í Amtsbókasafninu.
TÓNLIST
Þorlákshöfn:
Tónlistarhátíð
á sjómannadaginn
Á sjómannadaginn nk. sunnu-
dag, 5. júní, veróur haldin tónlist-
arhátíö á Þorlákshöfn. Samkoman
hefst kl. 17.00 í Þorlákshafnar-
kirkju og verður haldin í fjáröflun-
arskyni fyrir kirkjubygginguna. Á
tónleikum þessum, sem veröa hinir
fjölbreyttustu, koma fram eftirtald-
ir listamenn: Ágústa Ágústsdóttir
sópransöngkona, séra Gunnar
Björnsson sellóleikari, Sigríöur
Gröndal sópransöngkona, Sigurö-
ur I. Snorrason klarinettuleikari,
Páll Jóhannesson tenórsöngvari,
Sigríöur Ella Magnúsdóttir mezzo-
sópransöngkona og Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari.
Hveragerði:
Kórtónleikar
Skólakór Kársness- og Þing-
hólsskóla mun syngja í Hveragerö-
iskirkju á sunnudaginn kl. 17.
Orgelleikari er Marteinn H. Friö-
riksson, en stjórnandi kórsins er
Þórunn Björnsdóttir.
Logaland í
Borgarfirði:
Tónleikar
annað kvöld
Næstkomandi laugardagskvöld
4. júní, veröa haldnir tónleikar aö
Logalandi í Borgarfiröi. Þar flytja
þau Ágústa Ágústsdóttir sópran-
söngkona og séra Gunnar Björns-
son sellóleikari verk eftir innlenda
og erlenda höfunda. Viö pianóiö
veröur Jónas Ingimundarson
píanóleikari. Tónleikarnir hefjast
kl. 21.00.
Hlégarður:
Skemmtikvöld með
Álafosskórnum
Álafosskórinn í Mosfellssveit
verður með skemmtikvöld í Hlé-
garöi laugardaginn 4. júní. Á
dagskránni veröur söngur í léttum
dúr, tízkusýning og Pálssystur taka
lagiö. I hléi er boðiö upp á kaffi og
brauötertur. Hljómsveit leikur und-
ir söng kórsins og einnig fyrir
dansi, sem er lokaatriöi dagskrár-
innar.
Miöaverö er 100 krónur. Ein-
söngvari er Helgi Einarsson.
Stjórnandi Álafosskórsins er Páll
Helgason, en kórinn hefur sungiö
viöa í vetur. Meöal annars má þar
nefna kosningaskemmtun Sjálf-
stæöisflokksins og Framsóknar-
flokksins. Nú síöast söng kórinn
hinn 1. maí í Borgarnesi og á Akur-
eyri um hvítasunnuna.
Næsta sumar er fyrirhugaö aö
kórinn fari í söngferö til Sovétríkj-
anna.
Skáld og gjörningamenn. Ljétmifnd: lv»r Brynjóll*»on.
Listatrimm Stúdentaleikhússins:
Ljóðlist og tónlist
í Félagsstofnun stúdenta
Sunnudaginn 5. júní og þriöjudaginn 7. júní, klukkan hálf niu,
veröur dagskrá tónlistar og Ijóöa í Félagsstofnun stúdenta viö
Hringbraut, á vegum Stúdentaleikhússins. Blásarakvintettinn leikur
verk eftir Mozart, Malcolm Arnold og Jacques Ibert, og aukalög eftir
pöntun. Skáldin Einar Ólafsson, Elísabet Þorgeirsdóttir og Ingibjörg
Haraldsdóttir taka Ijóöin saman. Þeir félagar Sjón og Einar Melax,
einu nafni Sjólax, munu fremja gjörning orös og æöis, tóna og hljóöa.
Dagskráin er liöur í Listatrimmi Stúdentaleikhússins sumarlö '83.
L)ó*mynd: lv*r Brynjólf»»on.
Blésarakvintettinn.
SÝNINGAR
Akureyri:
Sigfús Halldórs-
son sýnir
Sigfús Halldórsson, listmálari og
tónskáld, opnar málverkasýningu í
lönskólahúsinu á Akureyri nk.
laugardag, 4. júní.
Sigfús þarf ekki aö kynna fyrir
landsmönnum, svo þekktur er
hann fyrir myndir sínar og tónlist.
Aö þessu sinni sýnir hann 31
vatnslita- og pastelmynd, sem allar
eru frá Akureyri, m.a. allmargar af
þekktum eldri borgurum. Sigfús
sýndi síöast á Akureyri áriö 1967.
Sýning Sigfúsar á Akureyri
stendur til 12. júní og verður opin
virka daga frá kl. 4—6 e.h. en um
helgar kl. 2—6 e.h.
Norræna húsið:
Finnskur Ijós-
myndari sýnir
Föstudaginn 3. júní veröur
opnuö Ijósmyndasýning í anddyri
Norræna hússins.
Carl-Erik Ström frá Finnlandi
sýnir 30 sv/hv. Ijósmyndir og sækir
hann myndefniö aöallega út í nátt-
úruna, en sagt hefur veriö aö hann
leitist viö aö mynda hiö óvenjulega
og gera þaö venjulegt gagnstætt
öörum Ijósmyndurum.
Carl-Erik Ström er fæddur 1938
í Ekenás i Finnlandi. Hann hefur
fengist viö ýmsar listgreinar s.s.
höggmyndalist, tónlist og skrifað
tvær bækur.
Flensborg:
Ungir listamenn
sýna 110 verk
Um þessar mundir er haldiö há-
tíðlegt 75 ára afmæli Hafnarfjarö-
arkaupstaöar. f tilefni afmælisins
standa JC-Hafnarfjörður og af-
mælisnefnd bæjarins fyrir sýningu
á verkum ungra hafnfirskra lista-
manna í Flensborgarskólanum.
Á sýningunni sýna alls 22 lista-
menn, hundraö og tíu verk, sem
unnin eru á ýmsa vegu. Þar eru
m.a. olíumyndir, vatnslitamyndir,
teikningar, skúlptúr, grafík, gler-
myndir og Ijósmyndir.
Þá veröa einnig nú um helgina
sýningar á litskyggnum sem Árni
Stefán Árnason hefur tekiö í Hafn-
arfiröi og í nágrenni bæjarins. Sýn-
ingin, sem hófst á laugardaginn
28. maí og stendur til laugar-
dagsins 12. júní, hefur veriö fjöl-
sótt, en þegar hafa á annaö þús-
und manns komið á hana.
Sýningin er opin alla virka daga
frá kl. 17—23, en um helgar frá kl.
14—23.
Ásmundarsalur:
Sýning Evu
að Ijúka
Nú fer í hönd síðasta sýningar-
helgi á verkum Evu Benjamíns-
dóttur í Ásmundarsal við Freyju-
götu. Sýningin veröur opin í dag
frá 16 til 22 og á laugardag frá 14
til 22.
Eva hefur stundað nám viö
Museum School of Fine Arts í
Boston undanfarin ár. Þetta er
fyrsta einkasýning hennar, en hún
hefur áöur tekiö þátt í samsýning-
um bæöi hér heima og erlendis.