Morgunblaðið - 08.06.1983, Síða 6

Morgunblaðið - 08.06.1983, Síða 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 Líísgildin og börnin eftir Þóri Kr. Þórðarson prófessor Fyrir nokkru var ég spurður þess, hvaða markmið kristindómurinn setti um uppeldi barna í starfi fóstra á leikskólum og dagheimilum. Ég svaraði því til, að þetta væri spurn- ing um það, hver væru hin kristnu lífsgildi. Með línum þeim sem hér fara á eftir vii ég leitast við að svara þessari spurningu með því að ræða fyrst meginþátt kristinnar trúar í þessu efni og síðan að benda á tengsl við sköpun, endurlausn, fyrir- gefningu, frelsi og land og tungu. Kristinn siður hefur haft mót- andi áhrif á einstakiinga og þjóðir allt frá upphafi vega kristinnar sögu. Þegar kristinn siður ruddi sér braut til áhrifa meðal þrótt- mikilla, heiðinna þjóða norður- álfu, mýkti hann skap manna, lægði ofstopa, dró úr hefnigirni og gæddi allt líf þjóðanna siðfágun. Vér íslendingar getum séð átök- in milli árásarhneigðar og ofstopa annars vegar og mildi kristins sið- ar og viðhorfa hins vegar í Sturl- ungu. Og raunar tvinnast þetta tvennt í sálarlífi allra manna — og barna — sem á annað borð eru „eðlilegir" einstaklingar: kraftur- inn, og árásarhneigð honum sam- fara, og þörfin fyrir ástúð og kær- leika. Kristin mannsskoðun geldur jákvæði sitt við hinu heilbrigða eðli mannsins, en hún bendir á hneigð mannsins til þess að neita allri ábyrgð á heill meðbræðra og systra. Kristin viðhorf viðurkenna manninn eins og hann er og reyna alls ekki að bæla hann, hvorki til- finningalíf hans né hneigðir, en benda samt á, að líf mannsins er líf í baráttu, er miðar að því að leiða fram hið góða. Þessi siðrænu viðhorf kristin- dómsins eru í ætt við öll heilbrigð uppeldisfræðileg viðhorf og upp- eldislegt starf. En kristinn boðskapur er ekki uppeldisfræðileg, þjóðfélagsleg umbótakenning. Væri hann það einvörðungu, myndi hann byggja á manninum, á möguleikum hans til betrunar og á þeim kröftum sem með manninum sjálfum búa. Kristin trú leggur að vísu höfuð- áherslu á manninn. En það er maðurinn skapaður af Guði, manneðlið eins og það verður, þeg- ar það hefur sameinast kristseðl- inu, sem kristindómurinn leggur til grundvallar. Og svo kemur annað til. Kristin kenning er boðskapur um Guð skapara og endurlausnara, — um Guð sem leiðir fram allt líf og er lífið sjálft, og um Guð sem leysir manninn undan þeim heljarbönd- um sjálfhverfrar eigingirni og árásarhneigðar, sem hann er hnepptur í, eins og öll saga styrj- alda og átaka ber vott um. Og þegar dýpst er skyggnst, þegar spurt er um hinsta og innsta kjarna kristinnar trúar, er hann trúin á hinn upprisna Drottin Jes- úm Krist, sem kemur til móts við mann og konu og barn, birtist sem lífgefandi kraftur er sigrar dauð- ann og gefur líf í þessari veröld og hinni komandi. í þeim skilningi er kristin trú á manninn. „Maður- inn“ er hinn upphafni og uppljóm- aði Kristur, sem hefur fengið dýrð sína af Föðurnum, og dregur til sín hinn jarðneska mann og gefur honum hlutdeild í dýrðarlífi sínu, lífi kærleikans og vonarinnar og gleðinnar í samfélagi við sig. Mað- urinn verður sannur maður þá fyrst, er hann hefur sameinast Kristi í vitund sinni, bæn og lífi öllu. Hinn upprisni Kristur mætir manninum í kristinni guðsþjón- ustu. Þess vegna er guðsþjónustan þýðingarmesta verk kristinna manna. En hún er ekki fyrst og fremst sunnudagsguðsþjónusta safnaðarins. Kvöldbæn barnsins Þórir Kr. Þóróarson og hins fullorðna, dagleg iðkun lesturs og bænar eru undirstaða þess, að sunnudagsguðsþjónustan sé rækt. En hún er hápunktur til- beiðslunnar, þar sem söfnuður kristinna manna á samneyti um hinn mikla leyndardóm lífs, dauða og upprisu Drottins í heilögu alt- arissakramenti. — En hvernig ber að skilja þessa undirstöðuþætti kristinnar trúar útfrá spurningunni um upp- eldisstarf, fóstrustörf, uppeldi barna á heimilum, þroska þeirra og vellíðan? Sköpunin Samkvæmt kristinni trú er Guð það vit og afl og skapandi líf sem er upphaf allra geima og heima. Allt líf geimanna stefnir til hans, hins æðsta kærleika. Náttúruvís- indalegar rannsóknir sýna aðeins hina „tæknilegu" hlið á tilurð heimsins, en trúin sér merkinguna og tilganginn, sem í öllu lífi felst, og játar, að það líf sé Guð, um leið og hann stendur utan þessa nátt- úrulífs og endurnýjar það. Öll skapandi athöfn, einnig skapandi athöfn barnsins í föndri, er því partur af Guðs skapandi lífi og gleði. Þar sem eðli sköpunar Guðs er að breyta ruglingi og óskapnaði í líf, form og gleði, er barnið þátt- takandi í slíku lífi, þegar það gleðst við að búa eitthvað til, gefa því form og líf, sem var áður lífvana og formlaust. Endurlausnin „Endurlausn" er mikið og þungt trúfræðilegt hugtak sem er hlaðið merkingu, jafnt úr forneskju sem úr nútíma, og snertir við rótum allrar mannlegrar tilveru. Endur- lausn merkir lausn undan því sem fjötrar, heftir, bælir, tefur, deyðir, myrkvar. I Kristinni trú eru „sköpun" og „endurlausn" tvö hugtök sem tákna eitt og hið sama, frá tveimur sjónarhornum séð. í sköpun sinni hvern dag leys- ir Guð „óskapnaðinn" undan form- leysinu og gefur líf og gleði. í hinni nýju sköpun í Kristi leysir Guð manninn undan hinni köldu hendi dauðans í einkalífi, í dag- legri önn, í félagslegu samlífi manna. Hann gefur líf, von gleði, þrótt, kjark og framsækni til feg- urra lífs, til fullnægju lífsins. Þessi er merkingin sem býr í krossdauða og upprisu Drottins. Barnið, ekki síst á yngstu árum, lifir þessi tvö hvel tilverunnar, leiðindi og ama annars vegar og gleðileikinn hins vegar. Það er uppeldishlut- verk í sjálfu sér „að kenna barn- inu, að leiðindin tilheyra dagleg- um kjörum manna" (Br. Zoéga), þau eru skugginn í mynd lífsins, og stundum erum við í skuggan- um. Oft þarf að þreyja, þótt vald skuggans sé mikið, því að ljósið skín framundan. Og leikur og skapandi starf hrekur burt dep- urðina. „Að hafa ofanaf fyrir barninu" er jákvætt hlutverk, en það verður neikvætt, ef það leiðir til þess að barnið kynnist ekki mun skugga og birtu, það er blekkt til að halda, að engin endurlausn sé til; lífið sé dans á rósum og það sé ónáttúrlegt og óeðlilegt ástand, að manni geti Góð vara — breytt tíska Halldór Einarsson sagði, að það væri einkum tvennt sem orskaði hina miklu eftirspurn eftir fram- leiðslu fyrirtækisins: „Við höfum lagt áherslu á að vanda vöruna og höfum því notið viðskipta við sömu aðila ár eftir ár, og svo kem- ur einnig til breyttur klæðaburð- ur. íþróttafatnaður hvers konar, sem fyrir tiltöulega skömmu var aðeins notaður af keppnisíþrótta- mönnum, er nú orðinn að einskon- ar tískufatnaði. Trimmgallar og íþróttafatnaður er nú notaður af fólki á öllum aldri, án tillits til þess hvort viðkomandi stundar íþróttir eða ekki. — Eitthvað helst þetta þó að líkindum í hendur við aukinn áhuga fólks á útivist og hreyfingu." — Hvað með íþróttafélögin, kaupa þau innlendar vörur, eða eru fjölþjóðleg merki ráðandi á þeim markaði? „Iþróttafélögin eru með okkar elstu og stærstu viðskiptavinum. Flest íþróttafélögin — önnur en þau sem keppa í fyrstu deild — skipta við okkur, og þau koma ár eftir ár. í fyrstu deild gegnir hins vegar öðru máli, því þar gefa er- lendu framleiðendurnir oft bún- ingana í auglýsingaskyni. En hvað önnur lið varðar, þá erum við stærstir á þeim markaði. Við höf- um átt mjög góð samskipti við íþróttafélög um allt land, og þótt aðrir viðskiptavinir hafi komið til á seinni árum, þá eru það sam- skiptin við íþróttahreyfinguna, sem mestu máli skipta." — Er einhver augljós hagnaður af því fyrir íþróttafélög, að skipta við innlendan aðila fremur en er- lendan, ef verð og gæði eru svip- uð? „Já, það tel ég, og reynslan hef- ur raunar sýnt að svo er. Það hef- ur til dæmis oft komið fyrir, að skemmst hafa eða tapast bún- ingar úr búningasetti keppnisliðs, og þá ríður oft á miklu að takist að fylla í skarðið eins fljótt og mögu- legt er. Þetta getum við gert með örstuttum fyrirvara, útbúið peys- ur eða buxur ef á þarf að halda. Þetta er erfiðara fyrir þá sem flytja vöruna inn erlendis frá, og það hefur komið fyrir að við höf- um orðið að framleiða inn í sett frá heimsþekktum merkjum, fyrir fyrsta deildar lið hér. Annað tilfelli get ég nefnt, þar sem miklu skipti að hafa snör handtök við gerð íþróttafatnaðar. Þannig var, þegar Hamburger s.v. kom hingað að leika við Val fyrir nokkrum árum, að þeir kváðust ætla að leika í hvítum búningum, og ætluðu Valsmenn því að vera í sínum rauðu búningum. Rétt í þann mund sem liðin hlaupa inn á völlinn kemur svo í ljós að þjóð- verjarnir eru rauðklæddir en ekki í hvítum búningum eins og ráð- gert hafði verið! Valsmenn urðu því að víkja, fara í hvítan búning, því þeir voru á heimavelli. Nú voru góð ráð dýr, og ekki um ann- að að ræða en láta Henson útbúa nýja búninga í hvelli. Svo vel hitt- ist á að það var verið að vinna í verksmiðjunni, og starfsfólk var sett í verkið. Eftir aðeins örstutt- an tíma voru búningarnir komnir á Laugardalsvöllinn, og leikurinn gat hafist. — Þá kom hins vegar í ljós að gleymst hafði að gera bún- inga fyrir varamennina, og varð að kalla starfsfólk út aftur til þess, en vinnu hafði verið hætt á saumastofunni þegar búið var að senda tíu búninga fyrir útispilar- ana niður á völl. Eftir að fólkið hafði farið aftur í verksmiðjuna, og úbúið þar viðbótarbúninga, var þeim komið á völlinn, og var þá nokkuð liðið á síðari hálfleik; Þá fyrst hefði verið unnt að skipta varamönnum inná, en þetta hefði varla verið hægt með erlenda framleiðslu." Útilokað að hugsa um erlenda markaði þar sem við önnum ekki eftirspurn innanlands Rætt við Halldór Einarsson í Henson, sem ný- lega hefur stofnað dótturfyrirtæki á Selfossi „Til að anna sívaxandi eftirspurn höfum við nú opnað útibú á Selfossi — sjálfstætt dótturfyrirtæki, Hensel hf. — og um leið höfum við gert samkomulag við saumastofuna Fram- tak á Selfossi um framleiðslu á vörumerkjum Henson- sportfatnaðar,“ sagði Halldór Einarsson framkvæmdastjóri Henson í samtali við blaðamann Morgunblaðsins fyrir nokkru. „Fyrir utan þessa aukningu á Selfossi get ég svo nefnt,“ sagði Halldór ennfremur, „að við höfum bætt við kvöldvakt á saumastofunni hér í Reykjavík, og saumastofan Líbra framleiðir einnig fyrir okkur. Allt í allt eru það því um sjötíu manns, sem vinna við framleiðslu á Henson-fatnaðin- um um þessar mundir.“ Halldór Einarsson, framkvæmdastjóri Henson-sportfatnaðar, ásamt verk- stjóranum, Karitas Jónsdóttir. Þá var hægt að skipta inná! Varan á að auglýsa sig sjálf — Hvernig er sölu- og kynn- ingarstarfsemi háttað hjá þér? „Því er fljótsvarað, að hér eru ekki starfandi sölumenn, og við auglýsum vöruna ekki í fjölmiðl- um. Við viljum að varan auglýsi sig sjálf, og það hefur skilað þeim árangri að við önnum ekki eftir- spurn. Smám saman hefur okkur tekist að ná þeirri þekkingu og reynslu sem til þarf, og nú held ég ekki að okkar vara standi neinni erlendri vöru að baki, nema síður sé. — Það er liðin tíð, að búningar hlaupi eins og einu sinni gerðist. Þá komu Celtic-menn hingað frá Skotlandi og eftir að búið var að þvo búningana þeirra voru þeir notaðir á strákana í 5. flokki." — Hvað með útflutning, er í bígerð að selja vörur úr landi frá ykkur? „Við höfum selt fatnað til út- landa, svo sem til Noregs, Fær- eyja, Belgíu og víðar, og fram- leiðslan hefur líkað það vel að við gætum auðveldlega selt meira. Hér kemur hins vegar það sama til og með heimamarkaðinn, að við önnum ekki eftirspurn, og getum því ekki staðið í markaðsleit eða hugsað í stórum mörkuðum er- lendis. — Hér er erfitt að fá fólk til starfa, ekki síst í Reykjavík,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.