Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983
53
Þeir 8em þátt tóku í ferðinni til Bandaríkjanna fyrir framan verksmiðju Coldwater í Maryland. Lengst til vinstri er Guðni Gunnarsson, verksmiðjustjóri.
hægt að bregðast mun fyrr við
breyttum markaðsaðstæðum,
með því að leggja áherslu á aðrar
framleiðsluvörur. Síðast en ekki
síst, þá eru tollar á hráefnum
mun hagstæðari en á fullunninni
vöru.
Fiskur er lúxusvara í Banda-
ríkjunum og verðlagður sam-
kvæmt því. Til dæmis um það, er
kjúklingur sex sinnum ódýrari út
úr búð þar en þorskur. Söluaðil-
um okkar í Bandaríkjunum hefur
tekist að skapa góða gæðaímynd
Fiskur er lúxusvara
í Bandaríkjunum
m
Gísli Jón Hjaltason
af íslenskum fiski í Bandaríkjun-
um og það ásamt nokkuð stöðugu
verði og aðföngum á fiski, hefur
gert það að verkum að staða
okkar á markaðnum þar er sterk.
Vinnuaflskostnaður í Banda-
ríkjunum er sáralítill hluti heild-
arverðs framleiðsluvörunnar og
þess vegna er aðaláherslan lögð á
bætt gæði og bætta nýtingu hrá-
efnisins. Það kom okkur nokkuð
á óvart, að hve miklu leyti fyrir-
tækið er rekið frá degi til dags,
en ástæða þess er sú, að það er
erfitt að ákveða hvað framleitt
er hverju sinni, langt fram í tím-
ann, vegna breytilegra markaðs-
aðstæðna.
Það vakti athygli hversu mikil
áhersla er lögð á góða nýtingu
hráefnisins. Allt er bókstaflega
nýtt, til dæmis er úrsagið nýtt i
bollur. Annars kom á óvart hvað
framleiðslutegundirnar eru fjöl-
breyttar. Alls eru framleiddar
262 tegundir ef allt er talið og
þær sem við brögðuðum á,
smökkuðust mjög vel. Þarna er
því um mjög margbreytilega
framleiðslu að ræða,“ sagði Gísli
Jón að lokum.
Oll fjárhæðin nægir
fyrir fimm auglýsingum
„EINN af þeim stöðum sem við
heimsóttum í Bandaríkjunum voru
verksmiðjur Coldwater Seafood í
Maryland. Þar tók Guðni Gunnars-
son, forstjóri verksmiðjunnar, á
móti okkur og sýndi okkur verk-
smiðjuna. Þetta er önnur af tveim-
ur verksmiðjum Coldwater í
Bandaríkjunum og sú stærsta sinn-
ar tegundar í heiminum," sagði
Gísli Jón Hjaltason, sem sagði frá
heimsókninni til Coldwater.
„Starfsfólk verksmiðjunnar er
um 300 og starfar það á 11 fram-
leiðslulínum við framleiðslu á
150 ólíkum fiskréttum. Hin verk-
smiðjan er staðsett við Everett
rétt utan við Boston, en aðal-
stöðvar Coldwater í Bandaríkj-
unum eru í Rowathion í Connec-
ticut. Þaðan er daglegum rekstri
stjórnað og gerðar áætlanir um
innkaup, framleiðslu og sölu.
Heildarsölukerfinu í Bandaríkj-
unum er stjórnað þaðan, en því
er skipt niður í sölusvæði, þar
sem ákveðinn sölustjóri eða um-
boðsmaður sér um söluna á sínu
svæði. Framleiðsluvaran, sem er
flök og fiskréttir, er ýmist seld
til stórra stofnana eða smásölu-
fyrirtækja. Stærstu veitinga-
húsakeðjur í Bandaríkjunum,
sem eru með fisk á boðstólum,
eru meðal viðskiptavina Cold-
water. Dreifingin fer fram með
þeim hætti að vöruflutningabílar
búnir kælitækjum, flytja fram-
leiðsluvöruna daglega víða um
Bandaríkin til umboðsmann-
anna, sem sjá um að koma henni
til neytenda. Eftir að við höfðum
skoðaða verksmiðjuna fengum
við að bragða á ýmsum tegund-
um framleiðslunnar og síðan
voru umræður og fyrirspurnir.
Þeirrar spurningar var meðal
annars spurt, hvers vegna verk-
smiðjurnar væru staðsettar er-
lendis, en ekki heima á íslandi.
Aðalrökin eru þau að fólk kaupir
fremur fullunna vöru en hráefni
og einnig er minni flutnings-
kostnaður við það að flytja út
hráefni en fullunna vöru. Þá er
Frá heimsókninni til Sameinuóu þjóóanna. Lengst til vinstri er Hörður
Helgason, fulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum.
„Einn af þeim stöðum sem við
heimsóttum í ferðinni var skrifstofa
Flugleiða í Bandaríkjunum. Þar
sagði Sigfús Erlingsson, sem stjórn-
ar umboðsskrifstofu Flugleiða þar,
okkur frá rekstri Flugleiða á Atl-
antshafsflugleiðinni og almennt frá
samkeppninni í fluginu á þeirri
leið,“ sagði Erna Hauksdóttir.
„Flugleiðir eiga í mjög harðri
samkeppni á þessari flugleið við
önnur flugfélög, eins og kunnugt
er af fréttum undanfarin ár. Þrátt
fyrir það hefur orðið aukning á
farþegaflutningum hjá Flugleið-
um, sem gefur ástæðu til bjartsýni
þrátt fyrir erfiða samkeppnisað-
stöðu að ýmsu leyti, enda hafa
þeir boðið upp á ódýrt flug með
allri þjónustu og hafa það fram
yfir ýmis önnur flugfélög að fljúga
til Luxemborgar, sem er mjög
miðsvæðis í Evrópu og auðvelt að
komast þaðan hvert á land sem er.
Það er hins vegar áhyggjuefni
banni um tíma, þegar þar að kem-
ur.
Samkeppnin á hinum banda-
ríska markaði er gífurlega hörð og
þar skipta auglýsingar mjög miklu
máli. Flugleiðir hafa hins vegar
ekki fjármagn til að taka að veru-
legu leyti þátt í þeirri samkeppni
og sem dæmi um það má nefna að
öll sú fjárhæð sem ætluð er til
auglýsinga hjá Flugleiðum á hin-
um bandaríska markaði, nægir að-
eins fyrir fimm stuttum sjón-
varpsauglýsingum á besta aug-
lýsingatíma.
Sigfús sagði að þeir legðu nú
áherslu á að bæta þjónustuna og
væru í því augnamiði að taka upp
ókeypis drykki um borð í flugvél-
unum og fleira í þeim dúr. Þeir
væru að öllu samanlögðu nokkuð
bjartsýnir á framtíðina," sagði
Erna að lokum.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
MorKunblaðið/ Emilía
Erna Iiauksdóttir
að Bandaríkjastjórn hefur bannað
notkun DC-8 flugvélarinnar, sem
notuð er í þessu flugi, frá og með
árinu 1985, en von er til þess að
undanþága verði veitt frá þessu