Alþýðublaðið - 17.09.1931, Side 3
A&BSÐUBKJíÐIÐ
3
Raftækjaverzlun. Sími 837. Austurstræti 12
Vlð vovam að taka upp miklar blrgðlr af rafljósatækjum f gær<
Verðið á nýju vðrunum er mun lægra en áður.
höfum
Til þess að samræma verð,
við lækkað eldra verð um 25 - 50
Ná er bægt að fá vandaðann borðlampa fyrir kr. 4,50 skermlansan.
Sterkir borðlampar með nýtizku skerm kosta krónur 8,00—12,00.
Verð er yfirleitt mikiu lægra en menn búast við, og hafa ýmsir
kvartað yfir fljótfærni sinni að kaupa annars staðar, áður en peir
kyntust verðlagi okkar.
Ýmsar af peim krónum, sem komu nú, eru gerðar sérstaklega fyrir
okkur og munu ekki kema f verðlistum eða fást f öðrum verzlunum.
Vörubirgðir okkar eru svo miklar og fijðlbreyttar ná, að yður er ó-
hætt að koma beint til okkar.
Við höfum pað sem yður vantar, og verðið er svo lágt, sem orðið
getur á pessu stfgi verðlækkunarinnar. Og við munum alt af fylgjast
með pegar verðlækkun verður.
/
Begnkáparnar
ódýrn
handa börnum og ungling-
um voru teknar upp í gær.
Einnig afar smekklegar kven-
kápur nýjar gerðir frá kr.
19,75 komið og lítið á.
Sokkabúðin,
Laugavegi 42.
Póstflnofetðir yfir Atlands-
•hafið.
Berlín, 16. sept. U. P. FB. Blöð-
in birta fregniir um það, að þegar
von Gronau sé heim kominn frá
Bandaríkjunum muni hann leggja
fyilr stjómina áætlun um reglu-
bundnar póstflugferðir milli
Pýzkalands og Bandaríkjanna.
Telur hann, að þegar búið sé að
útbúa lendingar- og benzínbirgða-
stöðvar, muni flugið taka 45
klukkustundir.
Hvað er að frétta?
Nœturlæknir er í nótt Magnús
Pétursson, Hafnarstræti 17, sími
1185.
Sextugsafmœli átti í fyrra dag
Jón Halidórsson trésmíðameistari.
Var honum haldið samsæti í gær-
kveldi á „Borg“.
Kristileg samkoma á Njálsgötu
1 kl. 8 í kvöld. Allir velkomnir.
Útvarpið í dag: Kl. 19,30: Veð-
urfregniir. Kl. 20,30: Söngvél. Kl.
zl: Veðurspá og fréttir. Kl. 21,25.
Söngvél.
20 ára gamáll maður réðst fyr-
ir nokkru inn í hið fræga mál-
verkasafn Dresdenar á Pýzka-
landi og rændi þaðan mynd eftir
Pietro Rotori. Ungi maðurinn
náðist, og kvaðst hann hafa orð-
ið svo ástfanginn af myndiinni, að
hann hefði ekki getað án hénnar
verið. Myndin var af stúlku.
Hnjggbrotnir biðlar hefna sín.
1 smábænum Czernowitz skamt
frá Bukarest giftist nýlega mesta
'blómarósin í bænum. Margir pilt-
ar höfðu beðið hennar, en hún
vísaði öllum á bug iengi vel þar
til hún gékk að aitatínu með
ungum manni að nafni Bilinzki.
— Þegar ungu hjónin komu heim
frá kirkjunni og ailir éða flest-
allir þorpsbúar voru samankomn-
ir á heimili foneidra briVðurinnar,
réðust tveir af hinum hrygg-
brotnu biðlum inn í veizlusalinn
og skutu mörgum skotum úr
byssum sínum. Foreldrar brúður-
innar féllu þegar um örend og
4 eða 5 veizlugestir særðust
hættulega, en brúðhjónin sakaði
ekki.
Landmœlingarnar. Mælinga-
mennirnir dönsku hafa í sumiar
lo'kið mælingum á mestum hluta
Suður-Þingeyjarsýslu og Eyja-
firði og undirbúið mælingar á
Sprengisandi. Eimn flokkur hefir
verið að mælingum á Ölafsfilrðii,
Héðinsfirði og Siglufirði. (FB.)
Húsabijggingar. Síðustu tvær
vikur hefir verið fengið leyfi
byggingarnefndar fyrir að eins
fjórum íbúðarhúsabyggingum hér
í Reykjavík.
Rafvirki hjá útvarpimu hefir Jón
Alexandersson verið löggiltur af
rafmagnsstjórn Reykjavíkur, á
meðan hann er í þjónustu út-
varpsins, enda fullnægi útvarpið
þeim löggildilnigarskilyrðum, sem
sraerta verzlun og iðnrekstur.
Kolaskip kom hingað í ímlorgun.
Veðrið. Kl. 8 í mongun var 10
stiga hiti í Reykjavík. tJtlit hér
um Suðvesturiand: Allhvöss suð-
austanátt og regn í dag, en snýsí
jsennilega í norðátnátit í nótt.
Indíánar enn skœðir. 1 eyði-
fcofa í Arizona hefir ung stúlka
nýiega fundist kyrkt. Þessd unga
stúlika hafði nýlega Lokið fullnað-
arprófi við Oolumbía-háskólann í
New York. Aðalnám.sgrein henn-
ar var rannsóknir viltra þjóð-
flokka og í margar vikur hafði
hún verið með þjóðflokki, er var
þektur að því að vera mijög
grimmlyndur. Unga stúlkan var
að viða að sér efni í doktorsrit-
gerð. Hún rannsaltaði sérstaklega
Komið aftur
Manchettskyrtur mjög
smekklegar en ódýrar.
Einnig FJibbar, hálfstífir
og stífir allar stærðir.
Sokkabúðin,
Laugavegi 42.
Nýkomið:
Stakar buxur handa
drengjum og ungling-
um, fjölbreytt úrval en
mjög ódýrt. Einnig
handa fullorðnum.
Sokkabúðin,
Laugavegi 42.
hinn vilta og sérkennitega danz
Indíánanna. Laugardiag nokkurn
fór hún meö ungum Indíána til
staðar nokkuð langt frá alfara-
leið. Þar ætlaði hún að horfa á
,,djöfladanz“ — og þaðan kom
hún ekki aftur. Nokkrum dögum
síðar fanst lík hennar. Lögreglan
hefir handtekið 53 Indíána við
Hvítá í Arizona, en allir neita
þeir því ákveðið að þekkja noklk-
uö til morðsins.