Morgunblaðið - 16.10.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983
Póstþjófnaður á Hvolsvelli:
Bréf fundust
á víðavangi
BIFREIÐ, sem stolið var í Reykjavík aðfaranótt föstudagsins, var notuð þegar
tveimur póstpokum, sem í voru almenn bréf og ábyrgðarbréf, fé og tóbaki var
stolið á Hvolsvelli sömu nótt. Bifreiðin, sem er Volvo, árgerð 1979, með einkenn-
isstanna R-731, fannst stórskemmd f Selási í fyrrakvöld og fundust bréf f henni
frá pósthúsinu á Hvolsvelli. Fjölmörg bréf fundust á víðavangi frá Þjórsá allt
vestur undir Selfoss og voru lögreglumenn að týna þau upp eitt af öðni á
föstudag. Ljóst er að fjölmörg bréf hafa glatast. Þykir sýnt að þjófarnir hafi tekið
bréfín upp á leiðinni til Reykjavíkur, væntanlega til þess að ganga úr skugga um
hvort fé væri í þeim og síðan kastað þeim einu af öðru á leiðinni.
Þjófamir brutust inn í verslunina
Björk á Hvolsvelli og stálu þaðan
tveimur póstpokum með ábyrgð-
arbréfum og almennum bréfum,
sem áður sagði. Ekki er ljóst hvort
fé var í þeim. Þá komust þeir yfir 15
til 20 þúsund krónur og tóku um 10
karton af sígarettum. Póstpokarnir
og féð var látið liggja í versluninni
og mun langferðabílstjóri hafa átt
að flytja póstinn til Reykjavíkur
daginn eftir, en fyrir féð átti hann
að kaupa áfengi fyrir nokkra íbúa á
Hvolsvelli, samkvæmt heimildum
Mbl. Einnig var brotist inn í félags-
heimilið Hvol. Þaðan var sígarett-
um stolið og rótað var til f skrifstofu
sveitarstjóra.
Á Hvolsvelli er pósthús með
rammgerðum geymslum og þykir
mikil óforsjálni af Pósti og síma að
láta póstinn liggja svona á glám-
bekk. Samkvæmt heimildum Mbl.
voru póstpokar aftur geymdir í
versluninni í fyrrinótt, þrátt fyrir
þjófnaðinn aðfaranótt föstudagsins.
Mbl. reyndi ítrekað að ná í póst-
meistarann á Hvolsvelli í gær en án
árangurs. Embætti sýslumanns á
Hvolsvelli vinnur að rannsókn máls-
ins. Enginn hafði í gær verið hand-
tekinn vegna máls þessa. Rannsókn-
arlögregla ríkisins biður alla þá,
sem kunna að hafa orðið vara við
ferðir Volvo-bifreiðarinnar vin-
samlega að láta sig vita.
„Á réttri leiö“
Fundaherferð Sjálf-
stæðisflokksins:
Fundur í
Keflavík
Tónlistarhús:
Stofnfund-
ur í dag
STOFNFUNDUR samUka um bygg-
ingu tónlistarhúss á fslandi verður
haldinn í Súlnasal Hótels Sögu í
dag, sunnudag, og hefst klukkan 15.
Fyrir fundinn leikur Blásarakvintett
Reykjavíkur í anddyri hótelsins.
í frétt frá undirbúningsnefnd
samtakanna segir að markmið
nefndarinnar sé að koma upp al-
hliða húsi til tónlistarflutnings
hér á landi sem allra fyrst. í frétt-
inni segir ennfremur: „Nefndin
vill sérstaklega taka fram að tón-
leikahús þarf nauðsynlegan undir-
búningstíma sem ekki er fjárfrek-
ur en tekur a.m.k. næsta ár. Und-
irbúningsnefnd hefur starfað í
sumar að lóðarathugun, forsögu
um hvaða rými eigi að vera í hús-
inu, kynnt sér tónleikahús, undir-
búið fjáröflun og fjölmargt annað.
Frá þessu öllu verður nánar skýrt
á stofnfundinum."
Geir Hallgrímsson
GEIR Hallgrímsson utanríkis-
ráðherra er ræðumaður á fundi í
Keflavík á mánudagskvöld, en
fundurinn er sá fimmti í fund-
arherferð Sjálfstæðisflokksins
„Á réttri leið“.
Geir Hallgrímsson mun á
fundinum ræða störf og
stefnu ríkisstjórnarinnar og
þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjaneskjördæmi
mæta á fundinn og fjalla
einnig um árangurinn, sem
náðst hefur í efnahac'smálum
vegna aðgerða ríkisstjórnar-
innar og hrofurnar framund-
an.
Fundurinn verður í Stapa
og hefst klukkan 20.30.
Jón R. Ragnarsson
Halldór Úlfarsson
íslandsmeistarar
HALLDÓR Úlfarsson varð íslandsmeistari öku-
manna og Jón R. Ragnarsson Islandsmeistari að-
stoðarmanna í samanlögðum árangri allra rall-
keppna ársins 1983. Þessi úrslit voru ljós að loknu
síðasta ralli ársins, Bridgestone-rallinu, sem lauk í
gær. Úrslit í rallinu sjálfu urðu þau, að ómar og
Jón Ragnarssynir urðu í 1. sæti á Reno 5 Alpine
með samanlagt 12.11 mín í refsistig. í 2. sæti urðu
Halldór Úlfarsson og Tryggvi Aðalsteinsson á Toy-
ota Gorolla með 15.45 í refsistig. í 3. sæti Ævar
Hjartarson og Árni óli Hjartarson á Lödu 1600
með 17.55 í refsistig. Þess má geta að Ævar eignað-
ist dóttur 2 klukkustundum áður en rallið hófst. 23
keppendur hófu keppni, en 17 skiluðu sér í mark.
Keppnin gekk ekki alveg áfallalaust, því hætta
varð við lengstu sérleiðina yfir Kaldadal sökum
snjókomu. Þá voru keppendur komnir á hana
miðja áður en hætta varð við, en klukkustund áður
hafði annar undanfara rallsins og aðstoðarbílar
þátttökubíla farið yfir Kaldadal áfallalaust.
„Vann gegn okkar félagi
í kjaradeilu árið 1981u
- segir Magnús Gíslason, formadur Verzlunarmannafélags Suðurnesja
„VIÐ gátum ekki sætt okkur við að félagi í Félagi íslenzkra stjórnunar-
manna á Keflavíkurflugvelli og greiðir þar sín gjöld, sitji þing verzlunar-
manna. Þessi sami maður vann gegn Verzlunarmannafélagi Suðurnesja í
kjaradeilu, sem upp kom 1981. Hann reyndi að brjóta verkfall með því að
hafa áhrif á sína undirmenn í krafti stöðu sinnar. Verkfallsrétturinn er okkar
helgasti réttur og með framferði sínu braut hann gegn íslenzkum lögum.
Þessi maður mætir á þing I.andssambands íslenzkra verzlunarmanna sem
fulltrúi Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. Þar er fjallað um málefni verzl-
unarmanna. Þetta fínnst okkur siðferðislega ekki rétt,“ sagði Magnús Gísla-
son, formaður Verzlunarmannafélags Suðurnesja í samtali við blm. Mbl.
þegar hann var spurður um ástæðu þess að fulltrúar VS neituðu að sitja þing
Landssambands verzlunarmanna á Húsavík.
maður á Vellinum. Því er furðu-
legt að hann skuli vera í samtök-
um verzlunarmanna, því hjá
okkur ganga menn úr VS þegar
þeir fara upp fyrir ákveðna launa-
flokka," sagði Magnús Gíslason.
„Við gátum ekki þolað þetta.
Okkur er ekki kunnugt um að Fé-
lag íslenzkra stjórnunarmanna á
Keflavíkurflugvelli eigi aðild að
Landssamtökum verzlunarmanna
né Alþýðusambandi íslands. Þeg-
ar við sáum manninn, þá neituð-
um við að sitja þingið — allir full-
trúar VS voru sammála um það.
Þetta tilkynntum við Birni Þór-
hallssyni, forseti LÍV. Málamiðl-
anir voru settar fram, en þær voru
alls ófullnægjandi.
Við vissum ekki fyrirfram að
maðurinn sæti þingið — við telj-
um það lítilsvirðingu við verzlun-
armenn að maður, sem reynt hef-
ur að beita áhrifum sínum til þess
að brjóta löglega boðað verkfall,
sitji þetta þing. Að ég tali ekki um
þá lítilsvirðingu, sem hann sýndi
félögum í VS.
Þessi maður hefur viðhaldið
réttindum í VR. Hann er eini mað-
urinn í starfi hjá varnarliðinu,
sem er í VR — allir aðrir eru í
Verzlunarmannafélagi Suðurnesja
enda okkar félagssvæði. Þar fyrir
utan er þessi maður í Félagi ís-
lenzkra stjórnunarmanna; er yfir-
Vestmanneyingar tóku á ný sæti á þingi VMSÍ:
Létu undan eftir þriggja
fortölur Guðmundar J.
tíma
VeHtmannaeyjum, 14. október. Frá Ómari Vildimanwyni blm. MorjpinblaðHÍns.
VIÐ LÁ að gestgjafarnir á Verka-
mannasainbandsþinginu sem hald-
ið er hér hættu við að sitja þingið.
Fulltrúar Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja, Jón Kjartansson,
formaður og Ármann Bjarnfreðs-
son gengu af setningarfundinum á
fímmtudagskvöld vegna deilna við
framkvæmdastjóra Verkamanna-
sambandsins um dráttarvexti af
sköttum til VMSÍ.
Stirt samband Verkalýðsfé-
lagsins í Vestmannaeyjum og
framkvæmdastjóra Verka-
mannasambands íslands endur-
speglaðist í þessari deilu.
Skömmu áður en þingið hófst
sendi Þórir Daníelsson, fram-
kvæmdastjóri VMSÍ, verkalýðs-
félögum í Eyjum bréf um að fé-
lagið skuldaði dráttarvexti við
sambandið. Þegar kjörbréfa-
nefnd, sem Þórir á sæti í hóf
störf á fimmtudagskvöldið til-
kynnti Þórir að Vestmanney-
ingarnir ættu ekki rétta þing-
setu vegna skuldarinnar og vísað
til 5. greinar laga sambandsins.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasam-
bandsins sté þá í pontu og sagði
ekki nema sjálfsagt að Vest-
manneyingarnir sætu þingið og
að rétt væri að deilumálið yrði
leyst á öðrum vettvangi, enda
um smávægilega upphæð að
ræða. Eyjamenn vildu ekki una
því að vera ölmusumenn og
gengu af þingfundi án frekari
málalenginga.
Síðar um kvöldið var haldinn
stjórnarfundur í Verkalýðsfélagi
Vestmannaeyja og þar gerð sam-
þykkt um að fulltrúar félagsins
sæktu þingið ekki frekar. Guð-
mundur J. Guðmundsson kom á
fundinn og ræddi við stjórnar-
menn Eyjafélagsins í um þrjár
klukkustundir. Tóku saman
höndum á endanum, eftir stífar
fortölur og með því að vísa til
óska fjölmargra þingfulltrúa um
að fá stjórn Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja að falla frá fyrri
afstöðu sinni. Mættu þeir Jón og
Ármann til þings í morgun — en
þá var enn þungt hljóð í þeim í
garð framkvæmdastjóra Verka-
mannasambandsins.
Um dráttarvexti af tveimur
greiðslum var að ræða og barst
að minnsta kosti önnur greiðslan
of seint vegna veikinda fram-
kvæmdastjóra og formanns
Verkalýðsfélagsins í Vest-
mannaeyjum.
Tíu daga
kirkju-
þing hefst
í dag
ÁRLEGT Kirkjuþing Þjóðkirkjunn-
ar kemur saman nú á sunnudag í
Hallgrímskirkju. Þingið hefst með
hátíðarguðsþjónustu kl. 14, þar sem
sr. Ólafur Skúlason vígslubiskup
prcdikar en síðan setur Pétur biskup
Sigurgeirsson þingið og Jón Helga-
son kirkjumálaráðherra fíytur ávarp.
Þingið mun standa í 10 daga, verða
þingfundir í safnaðarsal Hallgríms-
kirkju og er öllum frjálst að fylgjast
með þinghaldi.
Nú stendur yfir endurskoðun
kirkjulaga enda ýmsir bálkar
þeirra orðnir vel við aldur. Á
Kirkjuþingi verður m.a. fjallað
um frumvarp til laga um starfs-
menn þjóðkirkjunnar, sem Ár-
mann Snævarr hefur unnið, að
beiðni ráðherra, á vegum
kirkj ulaganef ndar.
Þá verður fjallað um reglur um
notkun safnaðarheimila, um
nefndarstörf þjóðkirkjunnar,
fræðslumál og kirkjueignir en
mörg mál liggja fyrir þinginu.
Á Kirkjuþingi sitja auk biskups
og ráðherra, 20 fulltrúar úr hinum
ýmsu kjördæmum landsins og eru
þar jafnmargir leikmenn sem
prestar. Auk þess kjósa kennarar
guðfræðideildar og prestar í sér-
þjónustu sína, fulltrúa á Kirkju-
þing. Vígslubiskupar eiga sæti á
Kirkjuþingi án atkvæðisréttar.
(Fréttatilkynning)