Morgunblaðið - 16.10.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.10.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 RollubKndur á brún gefa niður larab, sem komið er fram af, en niðri eru þrír tilbúnir á bát sem síðan selflytur féð ( stærri bát. Lömb og hrútar flutt á milli yfir f fiskibátinn, sem síðan flytur féð í land. Réttaö á bjargbrún og slakaö í bát Sauðfjárbúskapur hefur ávallt verið nokkur í Eyjum, en flestir sem sinnt hafa búskap á síðari ár- um vinna það verk í tómstundum. Alls eru nú um 500—600 fjár sett á hjá Eyjabænum, en nokkrir úr hópi rollubænda eru skipstjórar og útgerðarmenn, svo þeir bera með rentu nafnið útvegsbóndi eins og útvegsmenn í Eyjum hafa löng- um verið kallaðir, enda heitir þar Útvegsbændafélag Vestmanna- eyja. Á árunum fyrir gos var allmikið um sauðfé í Eyjum, en lengst af að meðaltali um 1.000 fjár. Allt sauðfé var flutt til fastalandsins í gosinu en girðingar á Suðurlandi þóttu halda illa fjallafénu, því út- eyjaféð er feikilega kraftmikið og býr yfir óhemju stökkkrafti. Sauðfé er í allmörgum úteyja Vestmannaeyja, auk Heimaeyjar, og I vetur verður útigangsfé í 5 eyjum. Meðfylgjandi myndir Sig- urgeirs eru úr smölun i Álsey, en nú er búið að smala allar úteyj- arnar og er það viðburður hvert haust hjá ungum sem öldnum, í senn bátsferð, bjargferð og smala- ferð. Nokkrir tugir Eyjamanna sinna búskapnum þótt ekki sé hann stór i sniðum, en enginn kúabúskapur hefur verið í Eyjum síðan fyrir gos utan það að aðkomumaður sem dvaldi árlangt í Eyjum keypti sér kýr og hafði hjá sér, þar sem hann taldi það heilsu sinni mikil- vægt að fá spenvolga mjólk. Nokk- uð er um hesta í Eyjum, refabú er þar og vísir að kanínubúi og síðan er slatti af hænsnum. Úteyjaféð þykir kjötmikið og bragðmikið og dilkaþungi í Álsey sl. haust var 16,9 kg að meðaltali og 17,25 kg nú í haust. í smöluninni í Álsey var lömb- um og hrútum skipað um borð, en 50 ær hafa vetursetu í eynni, einar á báti þar til kemur að fengitíma og hrútarnir verða fluttir út þang- að aftur. Sauðfjárbúskapurinn í Eyjum setur mikinn svip á þjóðlifið þar, því það eru bragðmiklir persónu- leikar sem stunda búskapinn í bland við aðra vinnu, en nábýlið og samvinna rollubænda er mikil, enda svæðið ekki ýkja stórt sem unnt er að athafna sig á í þessum búskap. Rollubændur heyja þar sem unnt er að heyja á Heimaey og hefur þessi búskapur hjálpað til að halda við ræktun túna eftir að hefðbundinn búskapur lagðist þar niður hjá allflestum fyrir gos. Þá hefur beit í fjöllum einnig hjálpað til við að viðhalda ræktun og hefta fok í björgum, en þess er ávallt gætt að ofbeita ekki. Það þarf samtaka lið til þess að smala í úteyjum því oft eru und- ankomuleiðir á syllur og bringi i bjarginu, en það þykir eftirsókn- arvert að komast í rollustúss í út- eyjum, upplyfting sem margir hafa gaman af þótt erfið sé. Sumir Eyjabænda stunda kyn- bætur með fé sitt, en öllum er það sammerkt að leggja mikla rækt og vinnu í búskapinn og á það við hvort sem um er að ræða til dæm- is skipstjóra, útvegsbændur, ið- naðarmenn, kennara eða lækna, en þessi þáttur landbúnaðar í Eyj- um hefur um alda skeið sett mik- inn svip á athafna- og félagslífið. - á.j. Á réttarveggnum, sem er heldur óvenjulegur, því þar liggur á hliðinni kamar þeirra Álseyinga. Áður fyrr var kamar þeirra steinnibba á bjargbrún í 20 metra hæð og Rgifag- urt útsýni, en það er ekki að spyrja að innreið menningarinnar. Á leið ( réttir, ekki ríðandi, ekki ak- andi, heldur á bát út í Álsey. Réttir í úteyjum eru bæði forvitnilegar og erfiðar, en umfram allt spennandi og þarna eru þeir Hallgrímur Júlíusson netagerðarmeistari með son sinn og aflakóngurinn Sigurjón Óskarsson með dóttur sína. Gunnar Árnason, einn af síðustu raunverulegu útvegsbændunum ( brúarglugganum á bát sínum, Árntý, í sóknarferð eftir fé í Álsey. Meðan hluti úteyjaliðsins smalaði hélt aflaklóin Sigurjón Óskarsson sig að trollneti sem notað var sem réttarveggur, óvenjuleg staða, bæði hjá skipstjóranum og netinu. Gunnar á Árntý kveður þessa ágætu á fyrir vetursetu. Það er svipmikið og harðgert féð í Eyjum. Golsi heitir þessi og er fjögurra vetra. Safnið kemur niður af ey, að réttinni niður undir húsi, bóli bjargveiðimanna um lundaveiðitím- ann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.