Morgunblaðið - 08.01.1984, Qupperneq 8
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1984
Julio Iglesias, áður
knattspyrnumaður hjá
Real Madrid, nú einn
tekjuhæsti söngvari
heims
Julio Iglesias hefur ástæðu til þess
að vera kampakátur; hann er með-
al ríkustu og vinsælustu söngvara
heims.
Eg vil aðeins vera
skemmtikraftur
Krá Helgu Jónsdóttur. fréttaritara Mbl. í
Hurgos, Spáni.
llm 22% af allri sölu á hljóm-
plötum og snældum sem alþjóða-
fyrirtækið CBS gefur út koma frá
starfi eins Spánverja: Julio Iglesi-
as. Því hafa a.m.k. yfirmenn fyrir-
tækisins lýst yfir.
Fyrir 16 árum lagði Julio Iglesi-
as stund á lögfræði. Hann hafði
verið atvinnumaður með knatt-
spyrnufélaginu el Real Madrid en
lenti í bflslysi og meiddist á öðrum
fæti með þeim afleiðingum að
hann varð að leggja knattspyrnu-
skóna á hilluna fyrir fullt og allt.
Vegna hvatninga Töður síns, vina
og manna, er töldu hann efnilegan
söngvara, lét Julio til leiðast að
taka þátt í söngvakeppni Benidorm
’68 og flytja þar eigið lag og texta:
„La vida sigue igual“. Julio hafði
aldrei komið fram áður sem at-
vinnusöngvari og ætlaði ekki að
hafa kjark til þess að ganga fram á
sviðið. En nærstöddum vinum og
föður hans tókst að sannfæra hann
og Julio kom, sá og sigraði í keppn-
inni það árið.
Fljótlega bárust honum mörg
tilboð um að koma fram opin-
berlega. Ári eftir keppnina í
Benidorm tók Julio þátt í
söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva fyrir Spánar hönd.
Aðal markmið Julio var ekki
yndilega að sigra í keppninni
heldur ryðja sér braut á evr-
ópska markaðinum. Ekki urðu
margar hindranir á vegi hans.
Julio varð strax þekktur í Evr-
ópu og ekki leið heldur langur
tími þangað til hann hlaut frægð
og frama í S- og Mið-Ameríku.
Julio sá að það var ekki lengur
hagkvæmt að starfa fyrir Col-
umbia, sem hafði gefið út plötur
hans til þessa. Fyrirtækið var
„bara“ spænskt og ekki nógu
stórt né þekkt fyrir utan Spán.
Hann skrifaði undir samning
hjá alþjóðafyrirtækinu CBS,
kvaddi umboðsmann sinn, sem
hann var ekki nægilega sáttur
við, og réð nýjan. Sá hefur átt
mestan þátt í snilldarlega vel
skipulagðri kynningu á söngvar-
anum um allan heim.
Smátt og smátt hefur Julio
Iglesias tekist að öðlast allan
þann frama sem hann ásetti sér
í byrjun. Talið er að þess verði
ekki langt að bíða að Julio verði
„númer eitt“ á vinsældalistum í
Bandaríkjunum.
Það eina sem Julio Iglesias
sækist eftir í lífinu (að sögn
hans sjálfs) er að skemmta al-
menningi. Hann segist leggja sig
allan fram á hverjum tónleikum
til að áhorfendur skemmti sér
sem best.
Julio heimsótti Spán sl. sumar
(hafði ekki komið þangað í 2 ár),
og hélt alls átta tónleika víðs
vegar um landið í ágúst og sept-
ember. Faðir hans (auðugur
kvensjúkdómalæknir sem var
rænt af hryðjuverkamönnum úr
ETA 29. des. 1981 og sleppt 16.
jan. 1982) fylgdi syni sínum á
flestum tónleikunum. Julio hef-
ur sagt að hann hafi ekkert á
móti því að syngja í landi Baska;
„ef mér væri boðinn leikvangur
til þess að halda þar hljómleika."
Julio Iglesias eyðir að jafnaði
10 stundum daglega í upptöku-
stúdíói, frá kl. 16 síðdegis til kl. 2
eftir miðnætti. Hann segist
venjulega fara á fætur um hálf-
ellefu leytið og stunda íþróttir í
tvær stundir. Síðan fer hann aft-
ur í stúdíóið.
í undirbúningi er að Julio
syngi inn á hljómplötu með
Plácido Domingo. Julio hefur
verið líkt við Rodolfo Valentino;
hefur verið nefndur hinn nýi
Valentino. Hann segist ekkert
eiga skylt með þeim fræga leik-
ara þó það sé alltaf notalegt að
vera líkt við mann eins og Val-
entino.
Julio Iglesias getur stært sig
af því að vera eini maðurinn sem
komið hefur fram á Bernabéu-
leikvanginum, ekki sem knatt-
spyrnumaður (fyrir utan páfa,
sem heimsótti Spán fyrir ári síð-
an og ávarpaði þúsundir manna
á leikvanginum). Julio hélt einn-
ig hljómleika á Nou Camp-leik-
vangi el Barcelona þar sem hann
söng tvísöng ásamt Plácido
Domingo fyrir 70.000 áhorfendur
(kvenfólk í miklum meirihluta).
Á milli þeirra stóð enginn annar
en Maradona skælbrosandi að
vanda. t raun mátti segja að þeir
þrír „hafi átt heima þarna;“ Jul-
io var eins og áður segir knatt-
spyrnumaður með el Real Madr-
id og fimi óperusöngvarans með
knöttinn er vel þekkt.
Þann tíma er Julio Iglesias
dvaldi hér var lítið talað um
annað meðal Spánverja (sumir
dýrka hann, aðrir eru grænir af
öfund út af vinsældum hans) og
fjölmiðlar fylgdu eftir hverju
fótspori söngvarans. Og flestum
Spánverjum varð ljósara en
nokkru sinni fyrr að þeir eiga
enn eina heimsstjörnu (aðrar
eru Plácido Domingo og Severi-
ano Ballesteros). Eftir dvölina á
Spáni (40 dagar) hélt Julio í
hljómleikaferð til Ítalíu og
Frakklands. í París hélt söngv-
arinn upp á 40 ára afmælið sitt.
í janúar á næsta ári kemur út
plata sem Julio og Diana Ross
sungu inn á í ágústmánuði síð-
astliðnum. Tónlistin er eftir
w w w w 1
Allir eru velkomnir
á áramótaspilakvöld Lands-
málafélagsins Varöar aö
Hótel Sögu, Súlnasal, í dag,
8. janúar.
Húsiö opnaö kl. 20.
Spiluö verður félagsvist
og hefst hún kl. 20.30.
Stjórnandi: Hilmar Guö-
laugsson borgarfulltrúi.
Avarp:
Friörik Soph-
usson vara-
formaöur
Sjálfstæöis-
flokksins.
Tvær utan-
landsferðir,
Úræfaferð og
f jöldi stór-
glæsilegra
bóka meðal
verðlauna.
A. Jk.
Hinn óviöjafnan-
legi Ómar Ragn-
arsson lætur
gamminn geysa.
Magnús Kjart-
ansson og fé-
lagar sjá um
tónlist kvöldsins
og leika fyrir
dansi.
A. A