Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 11
Hrunamannahreppur:
Samkeppni um
flugeldasölu
Sydra I>angholti, 6. janúar.
ÓVENJUMIKIÐ var um nugelda
hér um áramótin, ekki síst á Flúð-
um, enda kepptust nú tveir aðilar
um að selja flugelda til styrktar
starfsemi sinni; björgunarsveitin
Snækollur og Flúðakórinn. Má
næstum undrum sæta, hve þjóðin
ver miklum fjármunum til flugelda-
skota, nú þegar sagt er að pyngjan
sé léttari en endranær.
Ungir og aldnir munu þó hafa
haft mikla ánægju af þessu, en hið
sama verður ekki sagt um hunda
og hesta, þeir hafa ekki sömu
ánægju af þessu „fírverki" öllu. —
Eru þess meira að segja dæmi, að
útigangshross hafi stokkið á fjöll
á gamlárskvöld.
Að venju var hér haldin ára-
mótagleði í Félagsheimilinu eftir
miðnætti á gamlárskvöld, og var
skemmtunin sæmilega sótt, þótt
færð væri tekin að þyngjast. í
kvöld er síðan ætlunin að dansa út
jólin á þrettándafagnaði að venju,
í Félagsheimilinu á Flúðum.
— Sig. Sigm.
Grunaðir
um akstur
undir áhrif-
um fíkniefna
TVEIR ungir menn voru teknir að-
faranótt þriðjudagsins grunaðir um
akstur undir áhrifum fíkniefna. Þeir
voru teknir á bifreið í Þingholtunum
og sendir í blóðprufu. Við yfirheyrsl-
ur daginn eftir játaði annar þeirra að
hafa sprautað í sig amfetamíni.
Báðir hafa mennirnir oft komið
við sögu fíkniefnamisferiis hér á
landi. Annar þeirra var tekinn um
verslunarmannahelgina í sumar
og hafði þá sprautað í sig amfeta-
míni, sem er örvandi fíkniefni, og
hefur neysla þess mjög farið í vöxt
á undanförnum misserum.
MORGUNBLAÐIÐ..SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1984
Veiðimenn — Veiðifélög
Tilboð óskast í stangaveiði á vatnasvæði Hvolsár
og Staðrhólsár í Saurbæjarhreppi, Dalasýslu.
Bæði lax- og silungsveiði. Gott veiðitiús.
Tilboð skulu hafa borist fyrir 20. janúar 1984 til
formanns veiöifélagsins, Ingibergs J. Hannesson-
ar, Hvoli, Dalasýslu, sem jafnframt veitir nánari
upplýsingar í síma 93-4933.
Stjórn Veiðifélagsins
^Dale .
Larneeie
námskeiðið
Kynningarfundur varður miövikudaginn 11. janúar kl. 20.30 að
Síöumúla 35, uppi. Allir volkomnir.
Námakeiðið gotur hjálpaö þér:
• Að öðlaat moiri trú é sjálfan þig og hæfileika þína.
• Aö byggja upp jákvæðara viðhorf gagnvart lífinu.
• Að né betri samvinnu við starfsfélaga, fjölskyldu og vini.
• Að þjálfa minniö á nðfn, andlif og staðreyndir.
• Að læra að skipuloggja og nota tímann botur.
• Að byggja upp moiri ðryggi við ákvaröanatöku og lausn
vandaméia.
• Að skílja betur sjélfan þig og aðra.
• Að auka hæfiloika þína, að tjé þig betur og með meiri érangri.
• Að né betra valdi é sjálfum þér í ræöumennsku.
• Að öðlast meiri viöurkenningu og virðingu sem einstaklingur.
• Aö byggja upp meiri ðryggi og hæfni til leiðtogastarfa.
• Að eiga auðvaidara með að hitta nýtt fólk og mæta nýjum
verkefnum.
• Að verða hæfari í þvf, aö fé ðrvandi aamvinnu fré ðörum.
• Að né meiri valdi yfir éhyggjum og kvfða ( daglegu lífi.
• Að meta aigin hæfileika og setja þér ný persónuleg markmið.
82411
nuBifl Einkaleyfi á islandi
STJÓRNUNARSKÓLINN
NAMSKEIÐIN Konráö Adolphsson
ENSK VIÐSKIPTABREF
Námskeiöiö er ætiaö riturum sem þurfa að semja og skrifa ensk viðskiptabréf.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Tilgangur námskeiðsins er.að gera þátttakendur hæfari í að rita ensk viðskiptabréf,
með það fyrir augum að auka gæði þeirra.
Efni: Hvað er viðskiptabréf? Mikilvæg tæknileg atriði við gerð viðskiptabréfa. Ensk
málfræði og setningafræði. Uppsetning og útlit brófa. Æfingar. Mismunur breskra
og bandariskra viðskiptabréfa.
Leiðbeinandi: Dr. Terry Lacy. Doktor í fólagsfræði frá Colorado State University.
Kenndi viðskiptaensku við Department of Technical Journalism í Colorado State
University. Starfar nú sem stundakennari í ensku við heimspekideild Háskóla
Islands og er annar höfundur ensk-íslenskrar viðskiptaorðabókar.
Tíml: 16.-19. janúar kl. 9-12.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafólags
Ríkisstofnana styrkja félagsmenn sína til þátttöku á þessu námskeiði. Upplýsingar
gefa viðkomandi skrifstofur.
SÖLUMENNSKU
NÁMSKEIÐ
Námskeiðið er einkum ætlað sölumönnum í heildsölum og iðnfyrirtækjum.
Tilgangur námskeiðsins er að kynna þau atriði sem sölumenn þurfa að tileinka sér
til að ná sem bestum árangri í starfi.
Á námskeiðinu verður fjallað um lögmál og aðstæður íslenska markaðarins,
söluaðferðir og skipulagningu markaðssóknar. Rædd verða helstu vandamál sem
sölumenn mæta og hvaða tækni má beita við lausn þeirra. Gerð verður grein fyrir
vinnubrögðum sem sölumenn geta tamið sér í því skyni að auka eigin afköst.
Leiðbeinandi: Haukur Haraldsson. Stundaði nám í félagsfræðideild Háskóla
íslands, en starfar nú sem markaðsfulltrúi hjá Amarflugi h/f.
Tími: 16.-18. janúar kl. 14-18.
26.-28. mars kl. 14-18.
Verslunarmannafélag Reykjavikur og Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafólags
Ríkisstofnana styrkja félagsmenn sínatil þátttöku á þessu námskeiði. Upplýsingar
gefa viðkomandi skrifstofur.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
STJÓRNUNARFÉIAG
ISIANDS
SÍÐUMÚLA 23
SÍMI 82930
SKUTLAÐU ÞER TIL KANARÍ 25JANÚAR
Veðurguðirnir á Kanarí eru í sumarskapinu um þessar mundir,
því þar suðurfrá er sól og hiti. í beinu framhaldi af kulda-
legum veðurkortum og ófærð hér heima á Fróni
þessa dagana ákvað Kanaríklúbburinn að
auðvelda fólki að komast suður í sólina
Við bjóðum frábær greiðslukjör í ferð-
ina 25. janúar: 5.000 krónur út og
eftirstöðvar til 5 mánaða. Verðið er frá
25.589 kr. fyrir 3 vikur, miðað við 2
í hótelíbúð. Við bjóðum úrval frábærra
gististaða; hótelíbúðir, hótelherbergi
eða smáhýsi. Við fljúgum í beinu leigu-
flugi til Las Palmas og þar tekur Auður
fararstjóri á móti fólki og sér um að allir
hafi það sem best.
Skutlaðu þér með þann 25.!
if
V/•
GOTT FOLK
URVAL ÚTSÝlí Samvinnuferóir Landsýn FLUGLEIDIR