Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1984 Útsala — Útsala Allt á aö seljast þar sem verslunin hætt- ir. Verslunin Sísí, Frakkastíg 12. ^IVÉIADEILD SAMBANDSINS Ármúla 3 Reykjavík Síml38 900 Minning: Ólafur Sveinsson frá Mælifellsá Fæddur 10. nóvember 1895 Dáinn 29. desember 1983 Ómeðvitað setur mann hljóðan, þó hægt sé að gera sér grein fyrir því að eftir annasaman dag og starfsama athafnaæfi kemur kvöld og nótt hinnar eilífu hvíldar. Hinn aldni vinur minn ólafur Sveinsson var borinn í þennan heim að Mælifellsá í Skagafirði þann 10. nóvember 1895. Eftirlif- andi kona hans er Stefana Guð- mundsdóttir frá Lýtingsstöðum í sömu sveit. Þau hjón eiga eina dóttur, Þórunni, sópransöngkonu, gift Gylfa Sigurlinnasyni, skrif- stofumanni, og búa þau í Hafnar- firði. Þeirra börn eru Stefana, Ólafur, Rakel og Þröstur. Ég kynntist ekki Ólafi og Stef- önu persónulega fyrr en á síðari árum í starfi félagsmála, en þau hjón voru gerð að heiðursfélögum Skagfirðingafélagsins í Reykjavík árið 1965. Við fyrstu kynni varð mér strax ljóst að þar voru vinir er gott var að leita til og mann- kostafólk. Öll málefni Skagfirð- inga heima og heiman voru Ólafi mjög hugleikin enda var hans heimili opið öllum Skagfirðingum og mörgum öðrum ef þeir áttu á annað borð erindi til höfuðborgar- innar enda mannmargt á stund- um. Þar var reisn og höfðingskap- ur í fyrirrúmi. Allt starf Skagfirðingafélagsins í Reykjavík og velgengni þess var Ólafi mikið hjartans mál, hann var sívakandi og starfandi leynt og ljóst. Frá honum stafaði smit- andi kraftur er hafði svo mjög já- kvæð áhrif á alla er honum kynnt- ust. Hann var ráðhollur og fram- sýnn og fyrstur til að stofna hús- byggingarsjóð til að félagið eign- aðist eigið húsnæði. Um árabil barðist hann fyrir þessu áhuga- máli. 1976 varð Drangey, félags- heimilið Síðumúla 35, að veru- leika. Ég minnist þess hve andlit hans ljómaði og augun drógust nokkuð saman en úr þeim stöfuðu tindrandi neistar. Það var mjög hans siður að koma málum þannig fyrir, að hann gaf en aðrir nutu. Sérstak- lega minnist ég þeirrar rausnar- legu gjafar er hann færði félaginu, stóra fjárhæð til húsbyggingar- sjóðsins á 80 ára afmæli sínu, og sýndi það hve stórbrotinn hann var í öllu. Hann var endurskoð- andi félagsreikninga um áratuga- skeið og fá voru þau málefni fé- lagsins er máttu verða til góðs, að hann legði því ekki lið á einn eða annan hátt. Margt fleira er geymt í minni hugans er hugsjón lifir og lýsir þeim sem eftir eru. „Skín við sólu Skagafjörður skrauti búinn fagur gjörður." Með félags- og félagakveðju að lokinni jarðvist hér, með yfirsýn um fjörðinn skaga. Ástkær eiginkona, Stefana Guð- mundsdóttir, stóð ætíð af heilum hug við hlið manns síns og tók sama þátt í störfum og málefnum sem hann og að síðustu vakti hún nætur sem daga við sjúkrabeð hans ásamt dótturinni Þórunni. Ég bið guð að styrkja ykkur og nánustu aðstandendur um alla framtíð. Blessuð sé minningin um Ólaf Sveinsson frá Mælifellsá. Gestur Pálsson Á morgun, mánudaginn 9. janú- ar 1984, verður útför Olafs Sveins- sonar kaupmanns Ásvallagötu 20, Reykjavík, gerð frá Dómkirkjunni kl. 13.30. Hann lést rúmlega 88 ára gam- all í Landakotsspítala eftir aðeins nokkurra mánaða dvöl þar en ýmsir kvillar og ellin höfðu hrjáð hann undanfarin þrjú ár. Ólafur fæddist 10. nóvember 1895 á Mælifellsá í Skagafirði. Móðir hans var Margrét Þórunn Árnadóttir, gull- og silfursmiðs Sigurðssonar frá Stokkhólma, ættaður af Suðurnesjum. Móðir Margrétar var Steinunn Arnórs- dóttir (ein af fjórum konum Árna) af Bólstaðarhlíðarætt. Faðir hans var Sveinn Gunnars- son, bóndi frá Mælifellsá og síðar kaupmaður í Reykjavík og á Sauð- árkróki, Gunnarssonar frá Skíða- stöðum, Laxárdal, (Skíðastaða- ætt) og Ingunnar Ölafsdóttur frá Mallandi á Skaga. Sveinn er ýms- um eldri Reykvíkingum kunnur er hann verslaði í Söluturninum á Lækjartorgi á árunum 1920—1930. Börn þeirra Margrétar og Sveins á Mælifellsá voru 15 að tölu, tvö dóu ung og upp komust 13 til fullorðins ára. Þau hétu: Mar- grét, Steinunn, Sigurlaug, Gunn- þórunn, Indíana, Lovísa, Hersilía, Pálmi, Sveinbjörn, Gunnar, Jón, Árni og Ólafur sem var næst- yngstur þeirra en kveður nú síð- astur af þessum stóra systkina- hópi. Hann ólst upp á Mælifellsá 1 og átti þar heima í þrjá áratugi, stundaði ýmis störf utan heimilis, meðal annars kaupavinnu, vega- vinnu og vetrarakstur fyrir bænd- ur á sleðum sem hestum var beitt fyrir. Þessar ferðir voru áhættusamar og erfiðar í vetrarveðrum en stundum fylgdi þessum ferðum mikill gleðskapur þegar margir urðu samferða á leið frá Sauð- árkróki. Hljómaði raddaður söngur frá áningarstöðunum og voru Mæli- fellsár-bræður þar góðir kraftar, sérstaklega er þeir Sveinbjörn og Pálmi voru með í ferðinni. Árið 1926 (annan í jólum) gift- ust Ólafur og Stefana Guðmunds- dóttir frá Lýtingsstöðum í Tung- usveit. Heimili þeirra var aðeins eitt til tvö ár á Lýtingsstöðum, því Stefana kenndi þess sjúkleika er NÚ ER FROST OG SNJÓR Á FRÓNI... EKKERT fr' SNJÓSLEÐAR ÞEYSAST UM LANDIÐ 25% verðlækkun BF1H400 ... i Getum nú boöiö þennan vökvadrifna stálþræl á mjög góöu veröi. Lokkur 400 kN. Plötuklippur. Stangarjárnsklíppur. Prófíla- járnsklippur. Geirskurðar- hnífur. Allt í einni vél. Að hika er sama og tapa. G. J. FOSSBERG VÉLAVERZLUN HF. Skúldgötu 63 - Reykjavik Sími 18560 erfitt var að lækna í þá daga og þurfti því að dvelja á Kristneshæli í Eyjafirði. Þá flutti Ólafur til Akureyrar og stundaði þar skipasmíðar. Að tveimur árum liðnum lá leiðin til Sauðárkróks, þar fékkst hann við húsasmíðar m.a. og byggði þar húsið Blómsturvelli (tvær hæðir og ris) sem nú er Skagfirðinga- braut 8. Ekki reyndist heilsufar Stefönu sem vonað var og varð hún að hverfa aftur á Kristnes- hæli u.þ.b. eitt ár í viðbót, síðan lá leið þeirra hjóna til Reykjavíkur eða árið 1934 og þá fór Ólafur að versla í Söluturninum við Arnar- hól í Reykjavík. Þau hjónin áttu heimili á ýmsum stöðum í Reykja- vík þar til þau byggðu sitt eigið hús (1950—1952) að Ásvallagötu 20 hér í borg. 10 árum áður byggðu þau veglegt sumarhús fyrir sunn- an Skógræktarstöðina í Skagafirði og skírðu staðinn Fagrahvol sem bar nafn með rentu því bæði voru húsið og lóðin í kring mjög mynd- arlega gerð sem sýndi fegurðar- skyn og höfðingslundu húsbænd- anna. Öllum þeim er heimsóttu fjölskylduna á Fagrahvoli mætti sérstök hlýja og góðvild ásamt höfðinglegum veitingum sem margir Skagfirðingar og aðrir gestir minnast með þakklæti. Árið 1937 fjölgaði í fjölskyldunni um einn — Þórunni eða Doddu er ýmsir þekkja sem Þórunni Ólafs- dóttur sópransöngkonu, m.a. þekkt fyrir að hafa sungið „Hall- arfrúna" með Skagfirsku söng- sveitinni. Eiginmaður hennar er Gylfi Sigurlinnason forstjóri ferðaskrifstofu Flugleiða, þau eru búsett í Hafnarfirði og eiga fjögur mannvænleg börn: Stefönu, ólaf, Rakel og Þröst sem eru sólargeisl- ar á heimili afa og ömmu á Ás- vallagötunni. Eins og títt er um Skagfirðinga var Ólafur hestamaður og átti fal- lega hesta sem töltu með fjöl- skylduna um grænar grundir átt- haganna þegar þau dvöldu í sumarleyfinu á Fagrahvoli. Þá hljómaði stundum söngur þeirra feðginanna, svo sem: „Mitt barns- legt glaðnar geðið og gyllir landið sól, nú kátt skal verða kveðið, sem komin væru jól.“ Við sem í sveitinni dvöldum minnumst margra gleðistunda þegar þessi glaðværa fjölskylda kom í heimsókn. Að leiðarlokum er margs að minnast frá langri lífsbraut Ólafs og allt er það samofið þeirri góð- vild, hógværð, glettni, heiðarleika og höfðingsskap sem var svo ríkt auðkenni í fari hans. Við söknum þess að lyfta ekki lengur glasi með Óla Sveins frænda mínum en við eigum líka aðeins bjartar minningar frá liðn- um samverustundum í góðra vina hópi á Ásvallagötu 20. Þar ríkir alltaf hið góða and- rúmsloft eins og í Skagafirði. Eft- irlifandi konu hans sem svo vel hefur staðið við hlið manns síns og hlúð að honum í veikindum hans og ávallt miðlar öðrum af mann- gæsku sinni votta ég samúð mína og minnar fjölskyldu svo og ann- arra í fjölskyldu hins látna og öðr- um vandamönnum og óska þess að þau gleðina finni aftur í endur- minningunni. Sveinn S. Pálmason frá Reykjavöllum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.