Morgunblaðið - 08.01.1984, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1984
41
Julio Iglesias heimsótti Spán sídastliðið haust og hélt þar átta hljómleika.
Diana Ross og Julio Iglesias skála á Klaine’s-veitingastaðnum fræga í New
York eftir að hafa sungið saman inn á plötu, sem væntanlega kemur út í
janúar á næsta ári.
Tony Renis. Vinsældir þessarar
plötu eru fyrirfram tryggðar.
Julio Iglesias hefur nú starfað
í 7 ár í Bandaríkjunum. Hann
býr á Miami og er einn tekju-
hæsti söngvari í heimi. Hann
þeytist á milli ríkja í einkaflug-
vél þótt ekki sé nema til þess að
taka upp eitt lag. Meðal frægra
samstarfsmanna Julio eru Al-
bert Hammond og Richard
Perry.
Plötur Julio seljast í milljón-
um eintaka í Japan, Þýskalandi,
Brasilíu og í löndum S- og Mið-
Ameríku, svo ekki sé minnst á
Spán. Vinsældir söngvarans eru
ótakmarkaðar í latnesku Amer-
íku og hann er frægur í flestum
löndum Evrópu; á Norðurlönd-
um, í Þýskalandi, Frakklandi,
Portúgal ... Julio hefur heim-
sótt fsrael og haldið þar hljóm-
leika. Á hann miklum vin-
sældum að fagna eftir þá dvöl.
Julio Iglesias hefur sungið inn
á um 20 hljómplötur. Lögin sem
hann flutti á hljómleikunum á
Spáni í haust hafa öll verið gefin
út tvöföldu albúmi.
Orðsending
frá íslenzkum heimilisiðnaði
Bókin Tvíbandaöir vettlingar verður kynnt í verzl-
uninni í Hafnarstræti 3.
Kristín Jónsdóttir handavinnukennari leiöbeinir
meö prjón á tvíbönduðum vettlingum þriðjudaginn
10. janúar kl. 10—12 og fimmtudaginn 12. janúar
kl. 10—12.
Innritun og upplýsingar í síma 11784 mánudaginn
9. janúar kl. 9—12.
Islenzkur heimilisiðnaður.
Enn sést
ekkert til
Andropovs
Moskvu, 6. janúar. AP.
ÆÐSTA ráð rússneska sovétlýðveld-
isins kom saman í dag til árlegs vetr-
arfundar. Átta félagar úr stjórnmála-
ráði kommúnistaflokksins voru
viðstaddir setningu fundarins, en at-
hygli vakti að í þeim hóp var ekki
Júrí Andropov, aðalritari kommún-
istaflokksins.
Fjarvera Andropovs mundi þó
undir eðlilegum kringumstæðum
ekki teljast fréttnæm, því fyrir-
rennari hans Leoníd Bresnjef
mættu óreglulega á fundi æðsta
ráðs Rússlands.
Andropov, sem er 69 ára að
aldri, hefur ekki sést opinberlega
síðan 18. ágúst sl., eða í fjóra mán-
uði, og er talið að heilsa hans sé
slæm.
Tannsmiöur
óskast
á tannlæknastofu nálægt miöborginni, heilan eöa hálfan
daginn.
Umsóknir sendist augld. Mbl. f. 11. jan. merkt: „Tann-
smiður — 1725".
Útsala — Útsala
Útsalan hefst í fyrramálið, kjólar, dragtir, blússur,
pils. Stórkostleg verðlækkun.
Dragtin,
Klapparstíg 37.
No. 1. Verð 1983 kr.
No. 2. Verð 1695 kr.
No. 3. Verð 1983 kr.
No. 4. Verö 1570 kr.
Kuldaskór
úr vatnsvörðu
leðri
No. 5. Verð 1280 kr.
No. 6. Verð 995 kr.
No. 7. Verð 1645 kr.
Meira en venjuleg verslun