Morgunblaðið - 25.04.1984, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
93. tbl. 71. árg.
MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Umsátriö í Lundúnum:
Persónulegur fulltrúi
Gaddafys brottrækur
Lundúnum, 24. apríl. AP.
Lundúnum, 24. mpríl. AP.
BRETAR RÁKU í dag úr landi persónulegan fulltrúa Moammars Gaddafy
Líbýuleiðtoga, Abdul Ghadir Baghdadi, einum degi eftir aö hafa rekið úr
landi annan háttsettan embættismann líbýska sendiráðsins í Lundúnum.
I>etta eru afleiðingar af stjórnmálaslitum landanna á sunnudaginn í kjölfarið
á skothríðinni úr sendiráðinu fyrir páskahelgina, þar sem ensk lögreglukona
lét lífið og nokkrir líbýskir námsmenn, andstæðingar Gaddafys, særðust.
Umsátur bresku lögreglunnar
um líbýska sendiráðið hélt áfram í
dag og Bretar létu einnig verða af
hótunum um að hafa Líbýumenn í
landinu undir smásjá, með því að
stöðva átta namsmenn á leið frá
Vilja ekki „tilbiiinn frið“
Nikósíu, Kýpur, 24. upríl. AP.
Forsætisráðherra frans, Hussein
Musavi, sagði í dag, að franir væru
andvígir „tilbúnum friði“ í
Persaflóastríðinu, ekkert nema
fullnaðarsigur Irans í einhverri
mynd kæmi til greina, því myndu
þeir berjast áfram, til síðasta manns
ef með þyrfti.
Orð ráðherrans komu í kjölfarið
á ferð Richard Murphys, aðstoðar-
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
sem fer með málefni Miðaustur-
landa, til Egyptalands og nokk-
urra Persaflóalanda, þar sem
hann reifaði ýmsar hugmyndir
Bandaríkjastjórnar sem leitt gætu
til friðsamlegrar lausnar á deil-
unni. „Ferð þessa manns gefur öll-
um mögulegum og ómögulegum
samsærum byr undir báða vængi,
erindi hans var ekkert annað en að
klekkja á islömsku byltingunni i
þágu heimsvaldastefnu sinnar og
síonista,“ sagði Musavi. Hann
bætti við: „Að sjálfsögðu eru íran-
ir ekki til viðtals um slíkt, við ætl-
um að sigra í þessu stríði."
Barist var af og til í Persaflóa-
stríðinu og mannfall á báða bóga.
Gumuðu báðir af sigrum og
mannfalli í liði andstæðinganna.
Einkum var barist nærri borginni
Basra.
Forsetahjónin bandarísku, Ronald og Nancy Reagan, svömluðu um hríð í volgum sjónum við Hawaii
Símamynd AP.
Reagan til Kína á morgun:
„Höfum frið og vin-
áttu að leiðarljósi“
Hnnnlnln 91 nnríl AP
Honolulu, 24. apríl. AP.
„VIÐ HÖLDUM til Kína með frið og vináttu að lciðarljósi, við verðum að
eiga gott samstarf við vini okkar til að friður haldist á Kyrrahafsslóðum. í
hópi þeirra vina eru Kínverjar,** sagði Ronald Reagan, forseti Bandaríkj-
anna, í samtali við fréttamenn áður en hann steig upp í flugvél sem flytja átti
hann áleiðis til Guam, en þaðan heldur hann til Kína á morgun.
Reagan er fjórði Bandaríkjafor-
setinn sem heimsækir Kína og ræð-
ir þar við ráðamenn. Á undan hon-
um fóru Richard Nixon, Gerald
Ford og Jimmy Carter. Reagan
sagði enn fremur við brottförina, að
ferð sín endurspeglaði „þann
þroska sem sambúð ríkjanna hefur
náð að undanförnu". Þá sagði Reag-
an að ekki væri launungarmál að
Bandarikin vildu eiga sem best
| samskipti við Kína, þeir vildu binda
vináttubönd sem hjálpað gætu til
að stemma stigu við „herskárri út-
þenslustefnu Sovétríkjanna", ein»
og hann komst að orði.
Háttsettir bandarískir embætt-
ismenn sögðust í dag vera vongóðir
um árangurinn af ferð forsetans,
margt gott gæti leitt af henni, til
dæmis samkomulagsdrög að sam-
vinnu um notkun kjarnorku í þágu
framleiðslu svo eitthvað sé nefnt.
Einn ónafngreindur sagði: „ég held
að Kínverjar treysti okkur og vilji
heldur eiga okkur að sem vini held-
ur en hitt. Þeir iíta einnig á vin-
áttubönd við Bandaríkin sem mót-
vægi við umsvif Sovétríkjanna sem
farið hafa vaxandi."
Tripólí til Lundúna. Einum þeirra
var meinuð landvist að yfirheyrsl-
um loknum.
Mikil reiði ríkir meðal Breta
með framvindu mála, þar sem
stjórnmálaslitin og brottvísun
sendiráðsstarfsliðsins hefur það
trúlega í för með sér að morðingi
lögreglukonunnar verður ekki
framseldur. Þá er mikil reiði í
bresku stjórninni vegna greinar í
sovéska málgagninu Pravda þar
sem Bretar eru sagðir hafa átt
upptökin að skothríðinni og beri
því ábyrgð á dauða lögreglu-
konunnar ungu. Breski sendiherr-
ann í Moskvu, Iain Sutherland,
hélt í dag í utanríkisráðuneytið og
mótmælti formlega. Þar gerðist sá
óvenjulegi atburður að aðstoðar-
utanríkisráðherra Sovétrfkjanna,
Georgi Kornienko, sagði að grein-
in speglaði „ekki endilega“ afstöðu
sovéskra stjórnvalda og að greinin
í Prövdu hefði ekki verið birt í
þökk stjórnvalda.
Moammar Gaddafy ítrekaði í
dag, að Bretar bæru fulla ábyrgð á
hvernig komið væri. Utanríkis-
ráðherra Líbýu, Ali Abdusalam
Treiki, sagðist harma dauða
ungfrú Fletcher og stjórnmálaslit-
in, á hinn bóginn mættu Bretar
vita það, að ef þeir hefðu hugsað
sér að yfirheyra alla Líbýumenn
sem tengdust sendiráðinu eða ætl-
uðu til eða frá Bretlandi, myndi
slfkt hið sama ganga yfir Breta í
Líbýu.
Símamynd AP.
Fólk sem vinnur í næstu húsum við
sendiráð Líbýu mætti til vinnu í dag:
Undir lögregluvernd eftir húsþök-
um.
Holland:
Stjórnarkreppa
vegna eldflauga?
Huk, 24. apríl. AP.
NOKKUR óvissa ríkir í hollenskum
stjórnmálum og ýmsir tclja stjórn-
arkreppu vera þar í vændum vegna
viðhorfa stjórnarflokkanna til hinna
meðaldrægu kjarnorkuflauga NATO
sem koma á fyrir í landinu á næst-
unnL
Hollensk dagblöð greindu frá
því, að frjálslyndi Hægri flokkur-
inn hefði tekið þá afstöðu að hafna
með öllu öllum málamiðlunartil-
lögum og gefið í skyn að hann
myndi ganga úr stjórn ef flaugun-
um yrði ekki komið fyrir svo sem
talað hafði verið um og samþykkt.
Þessi viðbrögð eru vegna fregna í
síðustu viku þess eðlis, að ríkis-
stjórn Ruud Lubbers væri að leggja
drög að málamiðlunartillögu um
kjarnorkuflaugarnar vegna mikill-
ar andstöðu hollenskrar alþýðu.
Var frá því greint í hollenskum
blöðum og Lubbers neitaði því ekki,
að „hollensku“ flaugarnar yrðu
geymdar í öðrum NATO-löndum á
friðartímum, en fluttar flugleiðis
til Hollands kæmi til ófriðar. Hol-
lenska þingið verður að samþykkja
hvers konar ákvarðanir og breyt-
ingar og samsteypustjórn Lubbers
er sögð mjög klofin í afstöðu sinni
til kjarnorkuflauganna. Þær fyrstu
koma til Hollands í júní.
Hermaður
myrtur í
Londonderry
lk lfa.Ni. Londonderry. 24. aprfl. AP.
BRESKUR hermaóur var skotinn
til bana í Londonderry á Norður-
írlandi í gær, sá þriðji þar á þessu
ári. Fjórir félagar hans hlutu
brunasár í fyrirsátinni.
Hermennirnir fimm voru á
ferð í herbifreið, er hópur ung-
menna réðst að þeim með grjót-
og eldsprengjukasti. Kviknaði í
bifreiðinni og er þeir sluppu út úr
henni, hófu leyniskyttur skothríð
með fyrrgreindum afleiðingum.