Morgunblaðið - 25.04.1984, Page 19
M0RGUNBLAÐtt>, -MIBVIKUDAGUR 25. A-PRÍL-1984
lö
Fundur um
bjórmálið
STEFNIR, félag ungra sjálfstæð-
ismanna í Hafnarfirði, efnir til
umræðufundar um bjórinn í Gafl-
inum, Dalshrauni í Hafnarfirði á
morgun, fimmtudaginn 26. apríl,
klukkan 20 til 22.
Frummælendur á fundinum
verða Páll V. Daníelsson andstæð-
ingur bjórsins og Jón Magnússon,
lögfræðingur, flutningsmaður
bjórfrumvarpsins á þingi. Fundar-
stjóri verður Oddur H. Oddsson,
en að loknum framsöguerindum
verða frjálsar umræður.
Stefnir held-
ur tónleika
KARLAKÓRINN Stefnir í Mos-
fellssveit heldur árlega tónleika sína
í Hlégarði, Félagsgarði í Kjós og
Fólkvangi nú á næstu dögum. Fyrstu
tónleikarnir eru í kvöld í Hlégarði
og hefjast klukkan 21.
í Félagsgarði í Kjós verða tón-
leikarnir á föstudag 27. apríl
klukkan 21 og mánudaginn 30.
apríl klukkan 21 í Fólkvangi.
Sunnudaginn 29. apríl verða tón-
leikarnir í Hlégarði endurteknir
klukkan 15.
Vísnasöngur í
Norræna húsinu
MIÐVIKUDAGINN 25. aprfl kl.
20.30 sameinast Norrænu félögin í
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og
Keflavík um að efna til skemmtunar
með þeim félögum á Gaflinum við
Reykjanesbraut í Hafnarfirði.
Hér eru í heimsókn á vegum
Norræna hússins, Dönsku vinafé-
laganna, Norræna félagsins og
Vísnavinafélagsins dönsku lista-
mennirnir Benny Andersen og
Poul Dissing.
í fréttatilkynningu frá Norrænu
félögunum segir:
„Benny Andersen er einn af
ástsælustu skáldum Dana, f. 1929,
og hefur gefið út fjölda bóka í
bundnu og óbundnu máli fyrir
börn á öllum aldri. Þá samdi hann
einnig tónlist við Svantes-vísur
sínar sem eiga óhemju vinsældum
að fagna um öll Norðurlönd.
Poul Dissing er kunnur vísna-
söngvari og gítarleikari, sem náði
hylli m.a. með söng sínum á göml-
um viðkvæmnisdanslögum og hef-
ur starfað með mörgum þekktum
listamönnum eins og Freddy
Fræk, Beefeaters, Benny Holst að
ógleymdum Benny Andersen.
Mjög kunnur er hann fyrir sér-
kennilega túlkun sína á Svantes-
vísum.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir."
i
Flugleiðir ogSAS
opnanýiaileiðir
fyrír landkönnuði!
Framhaldsflug frá Kaupmannahöfn tækniundrinu, standa á Rauöa to'rginu, kynnast könnun, sjá Flugleiðir um að flytia ykkur til
Ef þú ert landkönnuður sem stefnir í frumbyggjum Amazon-landsins eða telja bjór- Kaupmannahafnar, á almennu ferðamanna-
fjarlæga heimshluta er bæði fljótlegt og nota- krárnar í Munchen? - Þegar félög eins og gjaldi, eða á „SAGA CLASS', ef þú vilt lifa lúxuslífi
legt að f|júga með Flugleiðum til Kaupmanna- Flugleiðir og SAS leggjast á eitt, áttu vísa þægi- á leiðinni. Síðan getur þú verslað í fríhöfninni á
hafnar. Þar býður SAS þér framhaldsflug til lega og ógleymanlega ferð. Kastrup, áður en þú heldur áfram út f heim, í
áfangastaða um víða veröld. Ekkert flugfélag Enn á gý er borgin við sundið orðin dyr hinu þekkta EUROCLASS-farrými SAS-flugfélags-
flýgur til eins margra áfangastaða frá Kaup- islendihga að umheiminum. ins eða „First Business Class' farrými, t.d. til
mannahöfn og einmitt SAS. Það er næstum Singapore eða Tokyo.
sama hvað þig langar að kanna, Flugleiðir og „EUROCLASS" og „SACA CLASS":
SAS gera þér það fært. Langar þig að Ijúka upp Vellíðan á ferðalögum Fluglelðir og SAS velta þér óteljandi ferða-
leyndardómum Austurlanda, átta þig ájapanska Þegar þú og þínir halda af stað í land- tækifærll
FLUGLEIDIR
Gott fólkhjá traustu félagi