Morgunblaðið - 25.04.1984, Side 21
• MORGVNBLAÐIÐ, MH)VTKUDAGUR 25. APRÍL1984
•21
Sovéska hernámsliðið í Afganistan:
Ný stórsókn í
Panjsher-dal
Nýju-Delhi, 24. apríl. AP.
Sovéska hernámsliðið í Afganist-
an hefúr hafiö nýja sókn á hendur
skæruliðum í Panjsher-dai en þeir
hafa áður hrundið sex slíkum sókn-
um. Eru þessar fréttir hafðar eftir
vestrænum sendimönnum í Nýju-
Delhi á Indlandi.
Sóknin hófst sl. laugardag með
sprengjuregni úr mikilli hæð en
tugþúsundir sovéskra hermanna
bíða þess að sækja inn dalinn.
Panjsher-dalur er 100 km langur
og hefur lengi verið eins konar
tákn fyrir andspyrnu iandsmanna
við innrásarliðinu. Það gerir Sov-
étmönnum erfiðara fyrir, að
skæruliðum tókst fyrir nokkrum
dögum að sprengja upp brúna yfir
Ghorband-fljót en um hana fóru
mestallir flutningar milli Kabúl,
höfuðborgarinnar, og Sovétríkj-
anna. Reyndu Sovétmenn að koma
bráðabirgðabrú yfir fljótið en
henni skolaði burt í vatnavöxtum.
Verða Sovétmenn nú að flytja
mestallt eldsneyti sitt með flug-
vélum.
Samkvæmt fréttum munu tug-
þúsundir sovéskra hermanna taka
þátt í sókninni en fátt afganskra
stjórnarhermanna. Sagt er, að
meira en 500 skriðdrekum verði
beitt í henni og mörgum tugum
þyrlna, orrustuflugvéla og
sprengjuflugvéla.
34 létust
Belgrad, 24. apríl. AP.
FÁNAR blöktu hvarvetna í hálfa
stöng í Júgóslavíu í gær, til að
heiðra minningu 34 námuverka-
manna sem létu lífið í metangas-
sprengingu á laugardaginn. Slysið
varð í námu í Vodnía í Serbíu og
er óttast að enn fleiri deyi áður en
yfir lýkur, því 14 manns slösuðust,
sumir mjög alvarlega.
Eldgos á Hawaii
Hraun streymir úr gíg sem er að myndast á Mauna Loa á Hawaii.
Eldgosiö hefur staðið yfír í rúman mánuð.
Innilegar þakkir færi ég öllum vinum og vandamönn-
um fyrir heillaóskir, gjafir og annan vináttuvott á átt-
rœðisafmœlinu.
Kærar kveðjur til allra.
Hafsteinn Halldórsson,
Rituhólum 9.
1984 1985
Nýtt happdrættísár
meðgölda stórravínnínga
Aðalvinningur ársins er fullgerð vernduð þjónustu-
íbúð á einni hæð að Boðahlein 15, Garðabæ.
í húsinu er fullkomið viðvörunarkerfi, sem tengt er
þjónustu- og öryggismiðstöð í Hrafnistu Hafnarfirði.
Húsið er 83,5 fermetrar með garðhýsi. Gangstéttar
upphitaðar.
Söluverðmæti 2,5 mUljónir króna -
Langstærsti vinningur á einn núða hérlendis.
Auk þess ellefu toppvinningar til íbúðakaupa
á 500 þúsund krónur,
100 bílavinningar, 480 utanlandsferðir og fjöldi
húsbúnaðarvinninga.
MIÐI ER MOGULEIKI
Sala á lausum miðum og endurnýjun ársmiða
og flokksmiða stendur yfir
^SZ&r
Happdrætti 84-B5
MALLORKA
Unaðsreiturínn i
í sttðrí
Þessi vinsæla ferðamannaparardís Miðjarðarhafsins
er alltaf jafn seiðmögnuð og lokkandr.
Atlantik býður góða gististaði og þjónustu í sérflokki.
Berið saman verð og gæði gististaðanna, sem í boði eru.
Við viljum að það fari vel um þig á Mallorka, þegar þú ferðast með okkur.
r»TCf*N»TI«
FERÐASKRIFSTOFA, Iönaðarhúsinu Hallveigarstigl. Simar 28388 og28580