Morgunblaðið - 25.04.1984, Síða 28
'28
' MÓFtótlWBLÁÖÍÐ,' MltiVlIÍÓÓAGltR 25. A'RRÍL l'9é4
Grásleppuhrogn
Kaupum fersk grásleppuhrogn eins og undanfarin
ár.
Mótttaka í Verbúö 1 viö Tryggvagötu (móti Hafnar-
búöum).
Opnunartímar: Alla róörardaga (einnig helgidaga).
8.00—12.00
15.00—19.00
21.00—22.00
Jón Ásbjörnsson, heildverslun, sími 11747.
r
WIKA
Þrý stimælar
Allar stæröir og geröir
^ðfyHrflaDiyisKLair
Vesturgötu 16, sími 13280
^Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
Tölvuborð
stööluð eöa sérsmíóuó
að óskum kaupanda
Ása Sigurðar-
dóttir — Minning
Fædd 26. janúar 1895.
Dáin 12. aprfl 1984.
Allt frá bernsku, í meira en
hálfa öld, minnist ég með ánægju
og þakklæti Ásu Sigurðardóttur,
mágkonu og bestu vinkonu móður
minnar, hressilegs viðmóts henn-
ar og mannlegrar reisnar í blíðu
sem stríðu.
Ása fæddist að Kjarna í Arn-
arneshreppi í Eyjafirði þann 26.
janúar 1895 og var því á nítugasta
aldursári þegar hún lést. Hún var
af þeirri þróttmiklu kynslóð ís-
lendinga sem oft er kennd við
aldamót, kynslóð sem ólst upp við
að vinna hörðum höndum langan
vinnudag, en hefur að kalla skilað
okkur frá miðöldum til atómaldar
á viðburðaríku æviskeiði.
Foreldrar hennar voru Sigurður
Jón Sigurðsson, útvegsbóndi á
Hjalteyri, og Margrét Sigurlína
Sigurðardóttir.
Eins og flestra annarra ís-
lenskra kvenna á hennar tíð var
meginstarf Ásu að annast heimili
og sjá um uppeldi barna.
Ung að árum giftist hún Jens
Ebeneser Eiríkssyni, stýrimanni
og skipstjóra frá Hóli í Onundar-
firði. Eignuðust þau þrjú börn:
Baldur Eirík, múrarameistara,
Braga Sigurð, sem dó á barnsaldri,
og Önnu Margréti, húsmóður í
Reykjavík. Jens, sem var atorku-
samt hraustmenni, lést vorið 1923.
Fóru þá erfiðir tímar í hönd fyrir
unga ekkju með tvö börn á fram-
færi, tæpra tveggja og fimm ára
að aldri.
Nokkrum árum síðar giftist Ása
aftur. Seinni maður hennar var
Steinarr St. Stefánsson, sveitungi
hennar úr Eyjafirði. Munu margir
Reykvíkingar minnast hans sem
verslunarstjóra Kaupfélags Borg-
firðinga við Laugaveg, en því
starfi gegndi hann um nær fjórð-
ung aldar. Síðar starfaði hann
lengi sem fulltrúi hjá Búvörudeild
SÍS. Steinarr var búfræðingur að
mennt og allt til hinstu stundar
átti ræktun rík ítök í huga hans og
hjarta. Hann lést vorið 1980.
Þau Ása og Steingrímur eignuð-
ust fimm börn. Tvær stúlkur
misstu þau með árs millibili,
skömmu eftir fæöingu, en synirnir
eru Leifur, vélfræðingur, Atli,
blaða- og fréttamaður, og Bragi
Jens, lögfræðingur og saksóknari.
í erfiðleikum, þegar mjög reynir
á, kemur dugnaður og þolgæði oft
betur í ljós en þegar allt leikur í
lyndi. Ása fór ekki á langri ævi
varhluta af þungbærum örlögum.
Ég nefni missi þriggja barna í
frumbernsku, svipleg örlög barna-
barna, missi eiginmanna og loks
langvarandi veikindi og miklar
þjáningar. En þá brást ekki ótrú-
legur dugnaður og hin hressa
lund. Mannleg reisn Ásu í erfið-
leikum hlaut að vekja aðdáun
allra sem til þekktu.
Það fylgir hárri elli að verða að
sjá á bak vinum og samferða-
mönnum. Móðir mín kveður nú
bestu vinkonu sína með þökk og
þungum trega.
Blessuð sé minning Ásu Sigurð-
ardóttur.
Flosi Hrafn Sigurðsson
í dag er gerð frá Dómkirkjunni í
Reykjavík útför Ásu Sigurðar-
dóttur, ekkju Steinars St. Stefáns-
sonar, fyrrverandi verslunarstjóra
og lengi starfsmanns Sambands
ísl. samvinnufélaga, en heimili
þeirra hjóna stóð lengst af á Hof-
teigi 14 hér í borg.
Ása lést í Borgarspítalanum 12.
apríl sl. og skorti þá aðeins tæpt
ár í nírætt. Æviárin voru því orðin
mörg og lífsstarfið langt. Á miðri
ævi hafði hún komið upp fimm
mannvænlegum börnum og þá átti
hún enn eftir þrek og móðurkær-
leik, sem entist henni til þess að
rækja móðurhlutverk á nýjan leik
um margra ára skeið. Þess gerast
að vísu mörg dæmi, að ömmur
þessarar þjóðar taki að sér nýtt
hlutverk, þegar börn þeirra sjálfra
eru komin upp og þar með lokið
hinu hefðbundna ævistarfi móður-
innar, en enga þekki ég sem örlög-
in færðu stærra viðbótarverkefni
á þessum vettvangi en Ásu Sigurð-
ardóttur. Þegar sonur hennar,
Leifur, varð fyrir því sviplega
áfalli að missa konu sína unga,
gerðist hún um sinn forsvars-
manneskja tveggja heimila, um
leið og hún gekk sex ungum son-
ardætrum sínum í móðurstað.
Þegar forsjónin færði henni þetta
viðbótarhlutverk á leiksviði lífs-
ins. hafði hún eitt ár um sjötugt.
Ása Sigurðardóttir var af ey-
firskum ættum. Voru foreldrar
hennar Sigurður Jón Sigurðsson,
bóndi og útvegsmaður á Kjarna í
Arnarneshreppi, og kona hans,
Margrét Sigurlína Sigurðardóttir.
Var Ása þriðja elst af 10 börnum
þeirra hjóna. Til fermingar var
hún í fóstri hjá afa sínum og
ömmu í föðurætt, sem einnig
bjuggu að Kjarna; þau hétu Sig-
urður Konráðsson og Valgerður
Magnúsdóttir.
Ása var tvígift. Var fyrri maður
hennar Jens Eiríksson, skipstjóri,
ættaður frá Hóli í Önundarfirði.
Missti hún hann eftir átta ára
sambúð. Einn son misstu þau í
frumbernsku, en upp komust son-
ur og dóttir. Sonurinn er Baldur,
múrarameistari, kvæntur Hólm-
fríði Eyjólfsdóttur og eiga þau
einn son. Dóítirin er Anna Mar-
grét, gift Helga Kristóferssyni,
verslunarmanni; eiga þau þrjár
dætur og einn son.
Hinn 29. maí 1929 gekk Ása að
eiga seinni mann sinn, Steinar
Stefán Stefánsson, búfræðing,
Lokað
Skrifstofur okkar veröa lokaöar í dag miövikudaginn
25. apríl vegna jaröarfarar DR. HALLDÓRS PÁLS-
SONAR, fyrrverandi búnaðarmálastjóra.
Búnaöarfélag íslands.
Lokað
Rannsóknastofnun landbúnaöarins veröur lokuö í
dag, miövikudaginn 25. apríl frá kl. 10—12, vegna
jaröarfarar DR. HALLDÓRS PÁLSSONAR.
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
Keldnaholti.