Morgunblaðið - 25.04.1984, Page 37

Morgunblaðið - 25.04.1984, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1984 37 ómetanlegur skóli, jafnframt því sem hann og félagar hans unnu þar þau vísindaafrek, sem lögðu grunninn að síðari tíma rannsókn- um og þekkingu á stóru sviði bú- fjárræktar og halda munu nöfnum þeirra lengi á lofti. En dýrmætust hygg ég hafi orðið honum sú lífs- reynsla, sem hann öðlaðist, reynslan af því hverju vilji og vinnusemi fengu áorkað, þrátt fyrir fátækleg ytri skilyrði. Hann lét aldrei aðstöðu- eða peninga- leysi aftra sér frá að ráðast í þau verkefni, er hann taldi þarfleg og hafði áhuga á. Sl. átta ár hef ég notið þess láns að vera náinn samstarfsmaður Halldórs Pálssonar, og ásamt fjöl- skyldu minni tíður gestur á heim- ili þeirra Sigríðar. Aðstoð hans við mig í framhaldsnámi var ómetan- leg og verður aldrei fullþökkuð. Halldór var óhemjuduglegur mað- ur, en jafnframt kröfuharður til þeirra sem með honum unnu. Sjálfur var hann alltaf tilbúinn að fórna frítíma sínum, hvort heldur var til eigin starfa eða í þágu sam- verkamanna. Hann vildi aldrei fresta viðfangsefnum, treysti því ekki að morgundagurinn yrði lengri en dagurinn í dag. Þrátt fyrir krefjandi störf á skrifstofu sinni, var heimilið honum annar vinnustaður. Þar sat hann um kvöld og helgar við útreikninga eða ærbókafærslur og hafði yndi af þeim störfum. í lífi Halldórs var aldrei dregið tjald milli vinnu og tómstunda. Hann hvíldi sig aldrei svo djúpt að hugurinn hvarflaði ekki að starfinu. Skap- gerð hans var stórbrotin og oft óútreiknanleg. Hann var ákaflega glaðvær maður, gerði sér far um hið spaugilega í lífinu og átti auð- velt með að hrífa fólk með frá- sögnum sínum og mannlífsmynd- um. Hann sagðist aldrei hátta svo að kvöldi, að ekki gæti hann hlegið að einhverjum atvikum dagsins. Halldór gat funað upp út af smá- munum, en við stærri áföll sá eng- inn honum bregða. Hann talaði framan í fólk, gat verið stóryrtur og sagt mönnum óspart til synd- anna, hafði andúð á yfirdreps- kurteisi og átti því ekki við allra skap. Fljótur var hann til fyrir- gefningar, og aldrei varð ég þess var, að hann bæri langvarandi kala til nokkurs manns. Samstarf okkar Halldórs hefur frá upphafi fléttazt vináttu og nánum samskiptum við þau Sig- ríði bæði. Á heimili þeirra höfum við kona mín og dóttir tíðum notið höfðinglegra veitinga, gleði og velgjörða hvers konar. Sigga frænka mín er einstök mann- kostakona, margfróð og skemmti- leg og á sinn þátt í því ekki síður en Halldór hversu ánægjuleg öll okkar kynni hafa verið. Þau hjón- in voru samhent, heimili þeirra fallegt en látlaust og sambúð þeirra óvenju ástrík. Þau tuttugu ár, sem Halldór lifði við skerta heilsu hefur Sigríður annazt hann af slíkri alúð og snilld að með ólík- indum er. Fyrir hennar umhyggju hélt hann starfsorku sinni svo lítt skertri og svo lengi sem raun varð. Á þessari stundu er okkur Möllu efst í huga þakklæti til þessara ágætu hjóna og sú ósk, að minn- ingin um Halldór og allar þeirra ánægjustundir megi styrkja Siggu í söknuði hennar. Sigurgeir Þorgeirsson. Það mun áreiðanlega ekki ríkja sama glaðværðin í fjárhúsunum á Hesti, þegar gemlingarnir verða brennimerktir í vor eins og undan- farin ár. Dr. Halldór Pálsson fyrrverandi búnaðarmálastjóri, t Faðir minn, ÞÓR HÓLMKELSSON, Klapparstíg 5, Ketlavík, varö bráðkvaddur að morgni mánudagsins 23. apríl. Magnea Þórsdóttir. t Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, GUÐNÝ SIGRÍDUR KJARTANSDÓTTIR, Víðihvammi 24, Kópavogi, lést að morgni skírdags. Jarösett veröur frá Fossvogskapellu föstudaglnn 27. apríl kl. 16.30. Inga Sigríður Kristmundsdóttir, Þorleifur Kj. Kristmundsson, Þórhildur Gísladóttir, Elín Gísladóttir, Sigríöur Hjartardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Faöir okkar. RAGNAR KRISTJÁNSSON, vörubifreiöastjóri, andaöist 21. apríl. Ólafur Ragnarsson, Kristján Ragnarsson, Þorvaldur Ragnarsson. t Móðir okkar og tengdamóöir, LAUFEY BRYNOÍS JÓHANNESDÓTTIR, Garóastraati 43, andaöist þann 20. apríl. Jóhannes Örn Óskarsson, Ólöf Erla Kristinsdóttir, Jóhann Erlendur Óskarsson, Lydia Edda Thejll, Óskar Gunnar Óskarsson, Kolbrún Valdimarsdóttir. sem skapaði þann skemmtilega anda, er þar ávallt ríkti, er látinn. Ég átti því láni að fagna — láni sem seint verður fullþakkað — að vera náinn samstarfsmaður Hall- dórs við sauðfjárrannsóknir um tuttugu ára skeið. Ég kynntist Halldóri fyrst að ráði á hrútasýn- ingum á Austurlandi haustið 1961. Þessi fyrstu kynni mín vöktu þeg- ar í stað aðdáun mína á gáfum, áhuga, dugnaði og ósérhlífni Hall- dórs. Ég minnist þess þegar við komum í Heydali í Breiðdal að kvöldlagi, eftir að hafa verið á sýningum í Valla- og Skriðdals- hreppum fyrr um daginn, þar sem Halldór hafði mælt, vegið og dæmt á annað hundrað hrúta, þá beið okkar þar ein stærsta hrúta- sýning haustsins með um 96 hrút- um. Ég játa að mér fannst eigin- lega nóg komið af hrútum þennan dag, en það var greinilegt'að Hall- dór hafði komist í feitt, enda fal- legir hrútar í Breiðdal á þeim tíma. Sýningunni lauk skömmu eftir miðnætti, en þá var loks komið að þeim dagskrárlið, sem allir bændur biðu eftir, nefnilega ræðu Halldórs. Hann tyllti sér á garðaband og hóf að ræða um fjárrækt og búskap af þeirri list, sem enginn kunni nema hann, enda urðu hrútasýningar Halldórs ein helsta skemmtun bænda um leið og þær voru gagnmerk fræðsla um fjárrækt. Ég vissi aldrei svo dauflega samkomu, hvort sem var í fjár- húsum, á ráðstefnum eða í veisl- um, að Halldóri tækist ekki að vekja áhuga og gleði, honum fylgdi ávallt andríki, vit — og vit- leysa — ef sá gállinn var á honum. En vinnudeginum var hreint ekki lokið þótt komið væri fram yfir miðnætti. Eftir var að halda tvær afkvæmasýningar, á Gilsá og Gilsárstekk. Klukkan var langt gengin í fjögur að morgni þegar gengið var til náða á Gilsá. Onnur sýning átti að byrja kl. 9 morgun- inn eftir norður í Hjaltastaða- þinghá. Þannig hafði Halldór ferðast um landið á hverju hausti í 25 ár, fyrst á hestum, síðar í níðhöstum jeppum og haldið hrútasýningar við misjafnar aðstæður, stundum í þurrum fjárhúsum, en miklu oftar úti í blautum, forugum réttum í risjóttum haustveðrum, þar sem menn og skepnur óðu aurinn upp á miðjan legg. Ekkert aftraði hon- um frá að halda sýningu og kenna bændum fjárval. Olmur vilji hans til þess að hefja íslenska sauðfjár- rækt og landbúnað til vegs og virðingar var ódrepandi. Halldór Pálsson varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1933. Hann var ágætur námsmaður og jafnvígur á allar námsgreinar. Hann innritaðist i landbúnaðardeild Edinborgarhá- skóla sama haust og lauk þaðan BS-prófi vorið 1936. Vegna frá- bærs námsárangurs vann hann til tveggja ára styrks til framhalds- náms. Hann valdi vaxtarlífeðlis- fræði og kjötgæði sauðfjár sem rannsóknarverkefni, þar sem hann vissi að þar væri brýnna úr- bóta þörf vegna vaxandi útflutn- ings íslendinga á frystu lamba- kjöti og harðrar samkeppni á breska kjötmarkaðnum. I Edin- borgarháskóla bauðst honum ekki aðstaða til slíkra rannsókna, þar sem hér var um tiltölulega nýtt svið búfjárrannsókna að ræða. Um þessar mundir fór mikið orð af ágæti landbúnaðardeildar Cam- bridgeháskóla, einkum lífeðlis- fræðirannsóknum búfjár, er þar voru stundaðar undir forystu John Hammonds, hins fræga breska bú- fjárlífeðlisfræðings. Ég veit að Halldóri var mikið kappsmál að komast þangað og það tókst hon- um eftir nokkurt þóf. Þar stundaði hann rannsóknir sinar undir leið- sögn Hammonds. Landbúnaðar- deild Cambridgeháskóla varð á þessum tíma ein nafntogaðasta miðstöð búfjárrannsókna í heim- inum fyrir tilverknað hans og nemenda hans, ekki síst þeirra Halldórs Pálssonar, Nýsjálend- SJÁ NÆSTU SÍÐU Vegna sumarkomu og lengri sólargangs færum við nú vinnudaginn örlítið til á sólarhringnum. Við byrjum klukkan 8 á morgnana í stað 9 og lokum klukkan 16 í stað 17. Og þannig er ætlunin að hafa það fram að fyrsta vetrardegi. a* AUCBLÝSINGAÞJÚNUSTAN HF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.