Morgunblaðið - 25.04.1984, Síða 38
rví* _ ........
38 MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1984
ingsins McMeekan og Argentínu-
mannsins J.B. Vergés.
Halldór lauk doktorsprófi frá
Edinborgarháskóla vorið 1938.
Doktorsritgerð hans „Meat Qual-
ities in Sheep with Special Refer-
ence to Scottish Breeds and Cross-
es“ var tímamótaverk í sauðfjár-
rannsóknum. Þar bar hann saman
vöxt og kjötgæði 17 sauðfjárkynja
og blendinga, þar á meðal íslenska
fjárins með nákvæmri krufningu
og mælingu einstakra líkams-
vefja.
Annað stórvirki hans á sviði
búfjárrannsókna var ritgerð hans
„Effects of the Plane of Nutrition
on Growth and the Development
og Carcass Quality in Lambs",
sem hann lauk við 1950. Þessi rit-
gerð er reist á gögnum J.B. Verg-
és, er hann varð frá að hverfa
óuppgerðum í Cambridge í
stríðsbyrjun. í ritgerð þessari
sýndi Halldór fram á hvernig hafa
má áhrif á þroska líkamsvefja og
hlutföll skrokksins með mismun-
andi fóðrun. í búfjárvísindum
telst þessi ritgerð til „klassískra"
verka. Niðurstöðurnar þóttu svo
merkar, að þær urðu uppspretta
óteljandi rannsókna á þessu sviði,
sem hafa í öllum meginatriðum
staðfest upprunalegar kenningar
hans.
Á árunum 1954—57 kom út á
ensku þriggja binda ritverk um
lífeðlisfræði búfjár, „Progress in
the Psysiology of Farm Animals",
sem J. Hammond ritstýrði. Það
var engin tilviljun, að Hammond
valdi Halldór Pálsson til að skrifa
kaflann um vaxtarlífeðlisfræði í
þetta gagnmerka verk. Hann vissi
sem var, að Halldór bjó yfir meiri
þekkingu á þessu sviði en flestir
samtíðarmenn auk þess sem hann
var ágætlega ritfær og átti einkar
létt með að greina aukaatriði frá
aðalatriðum og setja kenningar
sínar og ályktanir fram á heill-
andi hátt.
Hér hefur aðeins verið getið
helstu vísindaritgerða Halldórs,
en auk þeirra skrifaði hann um
fjöldan allan af tilraunum og
rannsóknum í innlend og erlend
fagtímarit.
Árið 1942 var Halldór skipaður
fyrsti sérfræðingur Búnaðardeild-
ar Atvinnudeildar Háskólans í bú-
fjárrækt og jafnframt forstjóri
deildarinnar. Fyrir atbeina og
frumkvæði hans var Fjárræktar-
búið á Hesti stofnað árið 1943.
Hann taldi vonlaust að vinna vís-
indalega að kynbótum og hvers-
konar hagnýtum framleiðslutil-
raunum án þess að hafa tilrauna-
bú, þar sem hann og aðrir vísinda-
menn, sem kæmu til með að vinna
við stofnunina hefðu full umráð
yfir sauðfénu, bæði æxlun þess og
fóðrun og á hvern hátt það væri
notað í tilraunir og til rannsókna.
Markmið hans með starfsemi bús-
ins var að vinna að alhliða sauð-
fjárrannsóknum bæði vísinda-
legum og hagnýtum, þar sem allir
þættir sauðfjárbúskapar væru
teknir til meðferðar með því vægi,
sem hagnýtt gildi þeirra hefur.
Enda þótt fjárveitingar ríkis-
valdsins til rannsóknastarfsemi
fyrir atvinnuvegina hafi ætíð ver-
ið af skornum skammti og af ýms-
um skammsýnum mönnum álitið
að þeim fjármunum væri á glæ
kastað, sem í slíkt færu, tókst
Halldóri að reisa þar ný 300 kinda
fjárhus þegar árið 1945. Skipu-
lagði hann þau sjálfur og þóttu
þau mjög nýstárleg á þeim tima
og urðu að ýmsu leyti fyrirmynd
að nútíma fjárhúsbyggingum. Með
tilkomu þessarar aðstöðu fékk
Halldór tækifæri til að stunda
skipulegar rannsóknir og kynbæt-
ur og nýta þar með hina víðtæku
þekkingu sína í þágu sauðfjár-
ræktar landsmanna. Ymsar rann-
sóknir Halldórs á Hestfénu hafa
vakið verðskuldaða athygli og bor-
ið nafn staðarins víða um heim, •
enda hafa heimsóknir erlendra
búfjárfræðinga verið tíðar að
Hesti sl. 30 ár. En það voru ekki
aðeins erlendir gestir, sem komu
að Hesti, heldur lagði Halldór
mikið kapp á allt frá fyrstu tíð að
laða þangað bændur og ráðunauta
og alla þá, sem á einhvern hátt
höfðu áhuga á sauðfjárrækt, og
kynna þeim starfsemina og skipt-
ast á skoðunum. Voru fjárhúsin á
Hesti oft vettvangur skemmti-
legra og fjörugra umræðna um
sauðfjárrækt og mun margur
bóndinn, sem heimsótt hefur Hest,
minnast þess.
Sem kunnugt er, gegndi Halldór
mörgum mikilvægum embættum
fyrir íslenskan landbúnað, en
þrátt fyrir mikið annríki gaf hann
sér ætíð tíma til að fara upp að
Hesti t.d. við vigtanir fjárins,
gestakomur o.þ.h. og um sauðburð
og við smölun og förgun að hausti
dvaldi hann þar dögum saman.
Það gat hann gert án þess að það
kæmi niður á öðrum embættis-
verkum hans, því óleyst verkefni
hrönnuðust aldrei upp á skrifborði
Halldórs Pálssonar.
Halldór unni Hesti mikið og
vildi veg búsins sem mestan og
fátt gladdi hann meir en þegar
starfsemi þess gekk vel. Þótt Hall-
dór hafi átt marga vinnustaði á
starfsferli sínum, þá held ég að ég
geti fullyrt, að enginn vinnustaður
var honum jafnkær og fjárhúsin á
Hesti. Meðan heilsa hans leyfði
tók hann þar þátt í öllum störfum
sem lutu að sauðfé, smalaði, rúði,
markaði og brennimerkti. Það var
í senn lærdómsríkt og skémmti-
legt að vinna með Halldóri. Við
vinnu, hvort sem var við fjárrag
eða skrifborð, var hann kappsfull-
ur og skorpuharður og gekk með
áhuga að hverju verki. Hann var
allra manna skemmtilegastur og
umræðuefni skorti hann aldrei.
Honum var nautn að ræða um
skepnuhöld og búskaparlag
bænda, kunni urmul af sögum úr
öllum Iandshlutum bæði af stór-
bændum, kotbændum og lausa-
mönnum og kunni svo vel með þær
að fara að mesta unun var á að
hlýða. Hann bjó yfir fróðleik, sem
virtist nálega ótæmandi bæði um
samtíðarmenn og fyrri tíðar,
merkilega sem ómerkilega. Hall-
dór var hófsamur í öllum lifnað-
arháttum, nýtinn og hagsýnn og
fyrirleit alla sýndarmennsku,
prjál og tildur. Hann var hispurs-
laus í framkomu og sagði mönnum
umbúðalaust skoðanir sínar og gat
því stundum hrundið viðkvæmum
mönnum frá sér með óvarkárni og
ónærgætni í orðum en ég hygg að
fæstir hafi erft það við hann.
Þeir, sem leggja út í lífið með
stórræði í huga eiga sjaldnast
óblöndnum vinsældum að fagna.
Halldór mun og nokkuð hafa
kennt á því, bæði fyrr og síðar, og
er slíkt ekki umtalsmál. Hitt er
miklu meira virði, hve margir
urðu til þess að trúa á og nýta sér
þekkingu hans íslenskum land-
búnaði til hagsbóta.
Halldór kvæntist árið 1946 eft-
irlifandi konu sinni Sigríði Klem-
ensdóttur frá Húsavík og var
hjónaband þeirra óvenju ástríkt.
Ekki voru síður ánægjuleg kynni
mín af Sigríði en Halldóri enda er
hún einstökum mannkostum búin,
fjölfróð og skemmtileg. Halldór
fékk fyrst hjartaáfall í ársbyrjun
1964. Eftir það þurfti hann að
temja sér annan lífsmáta en áður,
sem ekki var honum eiginlegur,
jafn kappsfullum manni og hann
var. Sigríður þekkti vel skapgerð
Halldórs og vissi sem var, að væri
hún ekki í nálægð væri hann vís
til að ofgera sér og öðrum ekki
ætlandi að hafa taumhald á hon-
um. Hún var sivakandi yfir heilsu
hans og átti áreiðanlega drýgstan
þátt í því hversu vel honum gekk
að komast yfir mörg og erfið áföll.
Við fráfall Halldórs Pálssonar
hefur íslenskur landbúnaður
misst einn af sínum bestu og
dugmestu forystumönnum. Ég
kveð hann með þakklæti og virð-
ingu og votta Sigríði dýpstu sam-
úð mína og fjölskyldu minnar.
Blessuð sé minning hans.
Stefán Sch. Thorsteinsson
t
Maöurinn minn,
GENE DU PONT,
andaöist á heimili sínu Oakland, Kaliforníu 18. þ.m.
Guörún A. Jónsdóttir Du Pont.
t
Maöurinn minn.
B0RGE BILDS0E-HANSEN,
Sporöagrunní 6,
lést i Landspítalanum á páskadag. Sálumessa fer fram frá Krists-
kirkju, Landakoti, föstudaginn 27. apríl kl. 13.30.
fna Bildsoe-Hansen.
t
HALLDÓR GUNNLAUGSSON,
tv. hreppstjóri og bóndi ó Kiöjabergi,
lést í Landspítalanum í gærmorgun 24. apríl.
Systkinabörnin.
t
Eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóöir,
SIGRÍÐUR LILJA JÓNSDÓTTIR,
Skipholti 26,
sem lést 18. apríl, veröur jarösungin frá Kirkju Óháöa safnaöarins
við Háteigsveg föstudaginn 27. apríl kl. 13.30.
Tómas Sigurþórsson,
Guójón Tómasson, Kristín fsleifsdóttir.
Sigurþór Tómasson,
Tómas Tómasson,
Guörún Elín Kaaber.
Ruth Ragnarsdóttir,
t
Eiginmaður minn og faöir okkar,
SÆMUNDUR PÁLSSON,
múrari,
Byggðarenda 16,
veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 26.
apríl kl. 13.30. Blóm afbeöin.
Guórún Oddsdóttir og börn.
t
Utför systur minnar og mágkonu,
GUÐRÚNAR BJÖRNSDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 25. þ.m. kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Jóhanna Björnsdóttir, Valdimar Helgason.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, fósturfaöir, tengdafaöir og afi,
EIRÍKUR ÁGÚSTSSON,
kaupmaöur,
Bólstaðarhlíö 12,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 25. apríl kl.
15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir en þeim sem vildu minn-
ast hans er bent á líknarstofnanir.
Ingigeröur Guðmundsdóttir,
Ágúst G. Eiríksson, Ingveldur Valdimarsdóttir,
Grétar N. Eiríksson, Þorgeróur Arnórsdóttir,
Guömundur I. Eiríksson, Kristín Eggertsdóttir,
Reynir A. Eiríksson,
Unnur Jörundsdóttir
og barnabörn.
t
Útför systur minnar,
GUÐBJARGAR (STELLU) STEFÁNSDÓTTUR,
fyrrverandi matráöskonu
Sjúkrahússins á Patreksfiröi,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. apríl kl. 15.00.
Jarðsett veröur í Gufuneskirkjugaröi.
Fyrir hönd systkina,
Pólína Stefánsdóttir.
t
Útför
DR. EINARS ÓLAFS SVEINSSONAR,
prófessors,
veröur gerö frá Dómkirkjunni í Reykjavik fimmtudaginn 26. apríl kl.
15.00 e.h.
Þeim sem vildu mlnnast hans er bent á SlBS, Blindravinafélagiö
eöa aörar líknarstofnanir.
Sveinn Einarsson, Þóra Kristjánsdóttir,
Ásta Kristjana Sveinsdóttir.
Systir okkar,
t
ÁSRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR,
hjúkrunarkona,
Víóimel 19, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. þ.m. kl.
10.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuö en þeim sem vildu mlnnast
hennar er bent á líknarstofnanir.
Systkinin.
t
Elginkona mín,
ELÍNBJÖRG GEIRSDÓTTIR,
Smáratúni 1, Svalbarðseyri,
sem lést 17. þ.m. veröur jarösungin frá Svalbarösstrandarkirkju
25. apríl kl. 14.00.
Fyrir hönd barna, systkina, tengdabarna og barnabarna.
Pétur F. Jóramsson.