Morgunblaðið - 08.01.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.01.1985, Blaðsíða 1
4HorrtunIiIní>iíi B 1 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANtJAR 1985 HANDKNATTLEIKUR Jóhann Ingi gerir þaö gott ytra! V Sjá nánar/BS. Sigurður fer til Englands í lok vikunnar — NÚ ER endanlega ákveöiö aö ég fer út til Englands í lok vik- unnar og þá vœntanlega til aö skrifa undir samninginn hjá Sheff. Wednesday. Eftir því sem ég kemst nœst þá mun vera gengið frá atvinnuleyfinu mér til handa í lok vikunnar. Leikmannasambandiö hefur samþykkt þaö svo og enska knattspyrnusambandiö. Þaö er því aöeins formsatriöi sem eru eftir, sagöi Siguröur Jónsson, er Mbl. ræddi viö hann í gærkvöldi. — Ég hlakka til. Þaö veröur gaman aö fara til Englands og hefja æfingar af fullum krafti. Þetta er spennandi verkefni sem veröur gaman aö takast á viö, sagöi Sig- uröur. — ÞR • Pálmar Sigurösson stóö sig best í Noregsferðinni. „Góð ferð til Noregs“ — segir Einar Bollason, landsliðsþjálfari í körfubolta — FERÐIN TIL Noregs kom vel út, og skilaöi góöri æfingu fyrir landsliöiö. Fyrri leikur okkar gegn Norömönnum var hreint út sagt frábær af okkar hálfu. Við töpuðum aö vísu meö tveimur stigum, 91—89, en frammistaðan var góö. Síöari leikurinn var slakari af okkar hálfu. Viö töpuöum 94—79. ívar Webster veiktist fékk flensu, og gat ekki leikiö af fullum krafti. Það munaö miklu um þaö, sagöi Einar Bollason, landsliös- þjálfari, er Mbl. haföi samband viö hann í gær. Staöan í hálfleik í síöari leiknum var 51—40, stigahæstu menn fs- Einn meö 12 rétta í 19. leikviku Getrauna kom fram einn seöill meö 12 réttum og var vinningur fyrir rööina kr. 342.765, en meö 11 rétta voru 38 raöir og vinningur fyrir hverja röö kr. 3.865. lands í þeim leik voru Pálmar meö 26 stig, ívar 13, Jón, KR, 11 og Valur 9 stig. Aö sögn Einars eru Norömenn með mjög sterkt liö og eru komnir í sama flokk og Svíar og Finnar. Reyndar sigruöu Norð- menn Svía meö 12 stigum í lands- leik fyrir skömmu og sýnir þaö styrkleika þeirra. — Viö munum halda áfram á sömu braut. í þessari ferð vorum viö meö fimm nýliöa og þeir fengu allir aö spreyta sig. Þaö er sam- dóma álit landsliösnefndarinnar aö reyna sem flesta og sér í lagi unga og efnilega körfuboltamenn. Sterkur fimm manna kjarni er fyrir hendi og þaö þarf aö byggja vel upp í kring um hann, sagöi Einar. — ÞR. Kðrfuknattielkur „Hætti knattspymu- iðkun þegar keppnis- tímabilinu lýkur“ — segir Magnús Bergs atvinnuknattspyrnumaður hjá Braunschweig — ÞAD var í kringum mánaöa- mótin nóv.—dea. sem ég fór aó hugsa alvarlega um aö hætta al- veg knattspyrnuiökun. Þegar ég var svo heima á íslandi um jólin í fríi tók ég endanlega ákvöróun. Ég mun hætta allri knatt- spyrnuiökun þegar yfirstandandi keppnistímabili lýkur. Ég mun snúa mér aö verkfræöinni, (Magnús er læröur verkfræöing- ur). Ég hef engan áhuga á því aó koma nálægt þjálfun knattspyrnu hér á þessu stigi málsins, sagöi Magnús Bergs atvinnuknatt- spyrnumaöur hjá v-þýska liöinu Eintracht Braunschweig. Magnús Bergs, sem er mjög reyndur knattspyrnumaöur og hef- ur leikið marga landsleiki fyrir Is- land, hefur veriö atvinnumaöur í fimm ár. Hann hóf feril sinn hjá Borussia Dortmund, hélt síöan til Tongeren í Belgíu, fór þaöan til Spánar og lék meö 2. deildar liðinu Santander, og loks fór hann aftur til V-Þýskalands og er núna á samningi hjá Eintracht Braunschweig. — í aöra röndina hef ég og fjöl- skyldan heimþrá, svo er fjölskyld- an aö stækka og þaö spilar inní þá ákvöröun mína aö hætta knatt- spyrnuiökun. Þá er þaö ekkert launungarmál aö ég hef átt viö meiösl aö stríöa í baki og fótum. — Ég hef verið atvinnumaður í fimm ár, þaö hefur veriö góöur skóli. Upphaflega áttu árin aö verða tvö. En það teygöist úr þessu. Þaö er mjög gaman aö hafa upplifaö þetta og engin eftirsjá í því aö hætta. — Liöi Braunschweig hefur gengiö frekar illa í vetur, ég hef veriö settur inná í leik og leik en leikiö þá sem miöherji. Sú staöa passar mér ekki vel aö mínu mati. Ég er alveg ákveöinn í því aö hætta, þetta er engin skyndi- ákvöröun, sagöi Magnús. — ÞR. Liverpool gegn Spurs í bikarnum Sjá nánar/B12 Cruyff „óæskilegur“ á velli Ajax Sjá nánar/B12 • Magnús sést hér ásamt eigin- konu sinni, Jóhönnu, og ungri dóttur þeirra á Spáni í fyrravetur. • Eitt af þeim liöum sem Magnús hefur leikið meö á atvinnuferli sínum sem knattspyrnumaöur er spánska félagiö Racing Santand- er. Magnús lék meö því liói í fyrravetur — áóur en hann hélt til Þýskalands þar sem hann er nú meö Eintracht Braunschweig. Á myndinni hér til hægri má sjá Magnús — lengst til hægri í fremri röð — meö félögum sínum í Santander-liöinu { fyrravetur. Líöið var þá í annarri deiid en vann sig upp í þá fyrstu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.