Alþýðublaðið - 27.11.1931, Side 2
2
ALPÝÐUBLAÐIÐ
Atvinnubætur. — Eyðslukrðfur.
Hvar er féð, sem bæjarsjóð vantar?
Sigurjón Á. Ólafsson gat pess
á fundinum í gær, a'ð hann hefði
sama dag átt tal við lækni einn
um ástandiö meðal allmennings.
Kvaðst læknirinn aldrei fyr hafa
orðið var við annað eins ástand,
pví að rnörg alpýðuheimili séu
þegar í nauð vegna atvinnuleysis.
Fáir menn eru jafnkunnugir kjör-
um almennings og aðstæöum á
alpýðuheimilunum og læknar eru.
Þarf pví ekki að efa, að lýsingj
pessa læknis sé sönn og rétt.
Enda er pað enginn nema kol-
svartur Morgunblaðsmaðiur, sem
ekki viðurkiennir hið afarslæma
ástand og nauðsyn pess, að hin-
um auðu höndum séu fengin verk
í hönd til að vinna og lifa af.
Er pað heldur ekki undarlegt
pótt nú sé mönnurn ljósara en
nokkru sinni fyr nauðsyn þess
að komið sé til hjálpar peim fjöl-
skyldum, sem vantar fæði, kiæði,
ljós og hita. Menn heilsuðu sumr-
Ínu í vor með tvær hendur tóm-
ar eftir „dauðan vetur“, togara-
stöðvun og litlar framkvæmdir.
Sumarið var bágborið, lítil bygg-
ingavinna, minkaðar opinberar
framkvæmdir — ekkert upp úr
sumrinu að hafa hvað síldarút-
veginn snerti — og svo þegar
1 hausti'ð kom: gengisfall, vöru-
hækkun og rneina atvinnuJeysi en
nokkru sinni hefir áður þekst hér
á Iandi.
Svona byrjar veturinn, kuldinn
og skammdegið.
Kröfur atvinnuleysingjanna um
vinnu, svo að þeir geti satt börn
sín og konur, eru svo sjálfsagðar,
að það lýsir úrkynjun hjá þeim
mönnum, sem andmæla þeim og
finst það ekki snerta sig hið
minsta, þótt hundruð barna,
kvenna og karla líði sáran skort.
Morgunbfaðið í dag reynir sem
það getur til að sverta verka-
Fáir Ijúga meini en helmingnnm
Áhætían og úfoerðormenn.
Morgunblaðið 25. nóv. finnur
hvöt hjá sér til að geta pess, að
4 togarar Kveldúlfsfélagsins hafi
selt samanlagðan afla sinn fyrir
900 stpd. og tapað á þessu 80
þúsundum króna, en minnist ekkj
á það, þegar Kveldúlfur lét þessj
sömu sikip hætta í fiebrúar síðast-
liðnum og batt pau fram á vertíð.
Þá seldi Skallagrímur fyrir
1024 stpd., Þórólfur 1525, Snorri
goði 1967 og Egill 2808 stpd.,
eða samanlagt 7324 stpd. — kr.
162 226,60. Nú hafa hásetar, sem
gera út Andra og Ver, staöfest
þau ummæli Alþýðublaðsins frá
í vetur, að ekki sé yfir 800 stpd.
kostnaður við ísfiskiferð. Ei'ns er
það líka vitanlegt, að Egil)
Skallagrimsson fiskaði að eins
menn og hallmæla kröfum peirra.
ÞaÖ er svo ósvífið í þessari við-
leitni sinni, að það segir alger-
Lega mngt frá fundi verkamanna
í gær. Og skýrsla þess urn af-
stöðu manna á fundinum er rang-
ari en flest það rangt, er Morg-
unblaðiÖ hefir skýrt frá/á sinni
stuttu æfi„ og er þó langt til jafn-
að. — Það kallar atvinnukröfur
verkamanna eijdslukröfur, og
hljóta allir sæmálega skynbornir
menn að sjá hve fráleitt þetta er
hjá blaðinu, en jafnframt svívirði-
legt.
En þessi afstaða blaðsins er
skiljanleg pegar pess er gætt, að
það er með henni að reyna að
draga fjö,ður yfir það ófremdar-
ástand, sem ríkir í stjórn pessia
bæjar.
Bæinn vantar 300 pús. krónur
til að leggja fram gegn tiHlagi
ríkisins til atvinnubóta, en pó er
enn á aðra milljón kr, óina-
heímt af útsvörum.
Og menn furðar á þessu því
meir, þegar pað kemur í ljós,
að stærstur hluti pessarar upp-
hæðar liggur hjá sumum tekju-
og eigna-mestu mönnum pessa
bæjar, og sumir, t. d. Helgi Magn-
ússon & Co. og Hallgr. Ben. &
Co., sem verzla við bæinn og fá
reikninga sína greidda, peir
skulda stórar útsvarsupphæðir —
og á sama tíma sem Mgbl. og í-
haldsliðið lætur eignamenn bæj-
arins komast upp með petta og
annað eins, pá spyrnir það gegn
því, að bærinn gæti þeirrar
skyldu sinnar að reyna að varna
því, að fátæk alþýðubeimili, ör-
yggislaus, eignalaus, tekjulaus,
allslaus, svelti.
Þetta er víst menning sú, sem
„sjálfstæðismienn" og betri borg-
arar telja samboðna siðuðum
mönnum. **
nokkra daga og lét afla sinn í
Snorra, en fór ekki til útlandaj
með fiskinn. Ætti það því eklti
að vera nema hálfur kostnaður
á við hin skipin, svo að sarnan-
lagður kostnaður við þessi 4 skip
ætti ekki að fara fram úr 2800
stpd. og þar frá dragast 900 stpd.,
sem þeir seldu fyrir. Tapið af
þessari ferð skipanna er þá 1900
stpd. — kr. 42 085,00, en ágóð-
inn af þessum 2 ferðum allra
skipanna verður þá (með því að
gera aðra ferðina 3200 stpd., en
hina 2800 stpd.) 1324 stpd. eða kr.
29 326,60.
SjómctnmféLagi.
Vœringjar halda skemtun á
morgun kl. 8V2 í samkomuhús-
inu við Laufásveg 13 (Betaníu).
Fandnrinn í gær.
Um atvinnnleysismálin.
Fundurinn um atvinnulieysis-
málin, sem verkamannafélagið
Dagsbrún boðaði til í gær í Iðnó,
hófst kl. 2, og stýrði formaður
Dagsbrúnar, Héðinn Valdimars-
son, honum. Héðinn talaði fyrstur
og snéri sér eingöngu að því að
lýsa nauðsyn aukinnar atvinnu í
bænum1, og útiiti fyrir því, að ht-
vinnubótavinna yrði framkvæmd.
Lýsti hann baráttu verkamanna
gegn atvinnuleysinu og fyrir at-
vinnubótum og gangi þess máls
innan bæjarstjórnarinnar. Lagði
hann og ýmsar fyrirspurnir fyrir
forsætisráðherra, sem einn var
mættur á fundinum úr ríkisstjóm-
inni, um afstöðu ríkisstjórnarinn-
ar til framkvæmda á þeim at-
vinnubótum, er þing síðast liöið
sumiar veitti fé til.
Til máls tóku á eftir Héðni Sig-
urjön Á. Ólafsson, Ólafur Frið-
riksson, Stefán Jóhann Stef-
ánsson, Guðjón Benediktsson,
Sigurjón Gunnarsson, Ágúst Jós-
efsson, Einar Olgeirsson, Þor-
steinn Pétursison og Jens Páls-son,
Tryggvi forsætiisráðherra svar-
aði fyrirspurnum þeim, er Héðinn
lagði fyrir hann, og auk þess
ýmsum öðrum fyrirspurnum, er
ræðumenn höfðu beint að honum;
en mörgurn þótti forsætisráðherra
©kki skýr í svörumi.
Mátti þó á honum skilja, að
hann myndi flýta fyrir því, að
neglugerðin um atvinnubótiaviinn-
una væri samin, og lofaði því,
að hann skyldi leggja fram at-
vinnubótafé á móti tillagi bæjar-
ins, jafnskjótt og bæjarstjórnilni
lýsti yfir því, að hún hefði féð að
sinni háífu. Kvað hann og sjálf-
sagt, að fjölskyldumenn gengju
fyrir um að fá vinnuna. — En
forsætisráðherra kvað það mjög
sienniliegt, að hann léti einhver
skllyrði fylgja þeirri reglugerð,
sem samin verði um atvinnubóta-
vinnuna, Mintist hann í því saim-
bandi á lægra kaupgjald eða
styttri vinnutíma.
Forsætisráðherra talaði tviisvar.
Reyndi hann í bæði skiftin að
sýnast sem velviljiaðastur í garð
verkamanna, en hvort sem menn
trúðu vingjarnlegum orðum hans
eða ekki, þá varð það öllum
ljóst, að hann vissi engin sköpuð
ráð í því hallærisástandi, sem
nú ríkir og virðist fara versn-
andi. Hann stóð uppi algerliega
ráðalaus og sló því fram ýmsuml
barnalegum ráðlieggingum til
verkamanna og sjómanna um að
gæta þess, að vera ekki um of
kröfuharðir við í hönd farandi
kaupdeilur eða samningaumleit-
anir. Virtist maðurinn óneitanlega
vera að hvetja verkamenn og sjó-
menn til að taka þegjandi við
kauplækkunartilraun vinnukaup-
enda. Ekki er það álit þess, er
þetta ritar, að þetta hafi veriðí
lævísleg tilraun til að vinna
vinnukaupendum í hag á kostnað
alþýðuheimilanna, heldur mun
Tryggva Þórhaílssyni hrjósa hug-
ur við því sem forsætisráðherra
og áhorfanda í stéttabaráttunini,
sem hann trúir sjálfur, að hann,
taki ekki þátt í með atvinnurek-
endum að horfia upp á pað í
vetur, að langvarandi verkbann'
bætist við þau vandræði, er fyr-
ir eru.
Nokkrar tillögur voru samþykt-
;ar á fundinum. Þar á meðal voru
þessar:
Fundurinn samþykkir að skora
á ríkisstjórnina að staðfesta 10 °/o
framhaldsniðurjöfnun bæjar-
stjórnar Reykjavíkur og jafnframt
leggja fram nú þegar að þriðj-
ungi fé til atvinnubóta á móts
við bæjarsjóð.“
Og enn fremur:
Fundurinn skorar á ríkisstjórn-
ina að ganga svo frá reglugerð
viðvíkjandi atvinnubótum, að
verklýðsfélögin skipi þá, ef ráða
menn í vinnuna.
Voru allar tillögurnar samþykt-
ar í einu hljóði.
Allir bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokksins mættu á fundinium. Að-
albjörg Sigurðardóttir, bæjarfull-
trúi „litla íhaldsins", mætti þar
og — en talaði ekki neitt um
þau mál, sem fyrir lágu. Aug-
lýsti hún að eins kvennafund.
Enginn mætti af bæjarfulltrúum
stóra íhaldsins nema Hjalti Jóns-
son, en hann fór á miðjum fundi,.
og ekki .mætti Knútur Zimsen.
Kosin var þriggja manna nefnd
til að fara með tillögur þær, sem
stílaðar voru til bæjarstjórnar, til
borgaxstjóra að fundi loknum, o.g
voru þrír atvinhuleysingjar kosn-
ir. Fóru þeir svo að fundintum
loknum til borgarstjóra, og
fylgdu þeim allir fundarmenn,
sem munu hafa verið tæplega
500 að tölu. Náðu atvin'nuleys-
ingjarnir tali af Knúti í skrif-
stofu hans, og lofaði hann að
leggja tillögurnar fyrir fjárhags-
nefndarfund, sem mun haldinn í
kvöld.
Síðan skýrði Guðjón B. Bald-
vinsson (en ekki Guðjón Bene-
diktsson, eins og Mgbl. siegir í
dag) fundarmönnum, sem biðu
svars úti fyrir, frá undirtektumj.
borgarstjóra.
**
Mansjúríudeilan
að lagast?
Eftir því sem Stimson utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna og Da-
wes sendiherra Bandarikjanna í
Lundúnum hafa skýrt frá, mun
Bandaríkjastjórnin styðja Þjóða-
bandalagið í því að leysa Man-
sjúríudeiluna. Virðist svo sem
bæði Japanar og Kínverjar ætli
að fallast á tillögur, sem nefnd
frá Þjóðabandalaginu hefir komið
fram með.