Alþýðublaðið - 04.12.1931, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 04.12.1931, Qupperneq 3
gfcÞXÐQBkJfÐSÐ 8 degi kl. 6,15 til 7,30, en á öðrunt tímum er einnig hægt a‘ð taka á wxóti skýrslum. Því fleiri skýrslur, pví öflugri rök eru það fyrir nauðsyn |)css, að b,æ]arstjórnin sinni málum þesisr ara kvenna á annan og betri hátt hieldur en hún hefir gert hingað tii. Er því fastlega skorað á állar þær konur, sem skilja nauðsyn þessa máls og eitthvað vilja sjálfar hjálpa til að hiinda hags- munakröfum fátækra kvenn í framkvæmd, að koma á skrifstof' una og gefa skýrslur. ,! Á fundi kvenna sem haldinn 'var í Nýja Bíó 28. f. m. voru sam- þyktar í einu hljóði eftirfarandi tillögur: 1. Fundurinn skorar á bæjar- stjóm Reykjavíkur að gera sitt ítrasta til þesis að finna ráð til þess að veita atvinnulausium kon- um vinnu engu síður en körlum og væntir að hún sjái sér fært að taka til greina uppástungur þær um atvinnubætur, sem kom- ið er fram með í bréfi því semi Kvenréttindafélagib hefir þegar sent bæjarstjórninni (1. og 2. lið). 2. Fundurinn skorar á bæjar- stjórn Reykjavíkur, að ákveða ríflega fjárupphæð á næstu fjár- hagsáætlun til styrktar efnaiitl- um konum, sem einar eiga fyrir ^börnum að sjá og bundnar ern við heimilisstörf sín,. Fundurimn fer fram á það, að Mæðrastyrks- nefndinni verði falið að úthluta fé þessu.“ Atvinnnbötafnndir. Fimtudaginn 26. f. m. var hald- inn fundur af atvinniuleysingjum í Iðnó. Auðvitað voru þar fleiri mættir en þeir einir. Var alvar- legasta mál samtíðarinnar á Is- landi — eins og raunar víðar —i rætt af fullri alvöru og í fuillri meiningu. Ýmsar tillögur voru samþyktar, og hlutu þær allar einróma siam- þykt fundarmannia. Slíkir fundir sem þiesisi hafa jafnan hina geysi- legustu þýðingu fyrir verkalýðihn í heild; þeir skýra málin, vekja menn til umhugsunar, hreyfa við lognmókandi yfrstétt og venju- lega upplýsist þá eitthvað, sem áður var ekki lýðnum fullljóst. (Samanber þegar lesin var á nefndum fundi skrá um útsvars- skuldir stórlaxanna reykvísku o. fl.) Enn fnemur hafa þessir fundir þau áhrif á bæjarstjórnir, að þeir ýta á eftir og hræða íhaldið til að taka verklýðsatvinnumálin til umhugsiunar. Þ,etta var líka rétti- lega fram tekið af einum fundar- m,an,ni nefnds fundar, Ól. Friðriks- syni. En ■— þessir fundir þurfa að haldast sem víðasit í bæjum og kauptúnum. Ég vil beina þeirrj áskorun til allra hér hlut að eig" andi að koma sem allra fyrst á íhjá sér fundi með atvinnuleysingj- um, þar sem verklýðurinn í saan- einaðri einni fylkingu, konur og karlar, ræðir vandamálin og gerif kröfur um réttlátan fram- gang mála sinna. Þetta á jafnt við um landmenn og sjómenn sem og konur. Það tjáir eigi að fljóta sofandi áö feigðarósi, lengur en nauð- syn krefur. Athugið þetta, verka- fólk! Ræðið mál yðar samcigin- lega og látið þetta eigi dragast! Þiað sameinar fylkingarnar og gefur mönnum að minsta kosti tilefni til að hugsa - og ef til vill að framkvæima. Ó. J. Hann er á móti vinnukonunum. Á bæjarstjórnarfundinum síð- asta bar Stefán Jóh. Stefánsson fram tillögu fyrir hönd Alþýðu- flokksmannanna um að aukanið- urjöfnunarvibbótin yrði láti'n falla niður á þeim útsvörum, er nærou minni upphæð en 100 krónum. Móti þessu reis Knud Zimsen, og tilfærði sérstaklega að engin ástæða væri til að gefa vinnu- konum eftir viðbótina. Var að heyra á borgarstjóra að hann skoðaði vinnukonur (sem þó á- reiðanlega hafa meiri þrældóm en nokkur önnur launastétt hér í Reykjavík) sem einhverja stór- launastétt. Þó ég efist ekki um að mörgum láglaunamönnum, sem hafa stóra fjölskyldu, þykj erfitt að greiða vinnukonukaup- ið, þá er það af því, að þeir hafa sjálfir oflágt þaup, en ekki af því að vinnukonur fái ofmikið. Það er beinlínis heimtað af þeim að þær séu þokkalega til fara, og fatnaður kostar töluvert. Það þarf líka hver stúlka að eiga vetrar- kápu og regnkápu, en þetta slitn- ar fljótt, því oft þarf að fara í þettia, því iðulega þarf að skvett- ast í bakaríið, eða til Silla. Af' sömu ástæðu er líka mikið skóslit, og hver neitar að ungar stúlkur þurfi líka að skemta sér. Þæl! þurfa líka að láta klípa sig og krulla og alt kostar þetta aura. Mig stórfurðar því á því, að borgarstjóri skuli vera svona mikið á móti vinnukonum, og skuli getá fengið af sér að verai að elta hverja þeirra með einnar krónu viðbót við útsvarið, því af þeim manni ’ bjóst ég ekki við neinum eltingaleik við kven- fólkið. Kalli. Gönguferd lokid. Pólverji að nafni Stahl og þýzk stúlka, hvort- tveggja af Gyðingaættum, sera voru á gönguför um Gyðinga- land, fundust myrt, ekki langt frá Jerúsalem. ^C<XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX^ Beztu ejyiipzkn cigarrettunar í 20 stk. pökk- um, sem kostar kr. 1,20 pakkinn, eru Soussa Glgareftur frá Nieolas Sonssa fréres, Elnkasalar á íslandi: Gairo. Tóbaksverzlun íslands h. f. XXXXXXXXXXXXXXX>DCKXXXXXXX Vetrarfrakkar ódýrir, í mjðg’ miblu [úrvali, fyrir börn og fnllorðna. Fóðraðir skinnhanskar, treflar, vetrarsjöl i mörg- um litum. finðsteinn Ejrjólfsson Laugavegi 34, — Simi 1301 Klæðaverzlun & saumastofa. lotlð tækifærið. Vetrarfrakkar á tækifœrisverði. Hatrosaíötin margeftlrspnrðn komin. Takið konurnar ykkar alvarfega. __ j Englendingur einn að nafni dr. Herbert Gray, sem er fræðimaö- ur og rithöfundur, sagði nýlega í fyrirlestri, er hann hélt í Lund- úrvum um hjónabandið, að or- sökin til þess að mörg hjóna- bönd yrðu óhamingjusöm væri sú, að mennirnir tækju ekki kon- ur sínar alvarlega, það er skoð-i uðu þær ekki sem sjájfstæöar verur. Þetta er mjög fróðlegt til þess að kynnast afstöðu Englendinga til kvenfólksins, og sýnir, hversu gersamlega öðrum augum við lít- um á það en þeir. Hér hefir aldr- ei heyrst að neinn hafi leyft sér að hlusta ekki á kvenmann, e£ honum þóknast að láta hlusta á sig. Bói. Hjálprœdisherinn heldur harna- leiksýningu annað kvöld kl. 8. Þiar verður fjölbœytt efnisskrá, m. a. 1. Smáfuglarnir. 2. |Ein_ kennishúfan og hatturinn.. 3. Hvað Afbragðs hangið kjöt, — Þingeysk. Osfar og smjör frá Mjólkursamlagi K.f. Eyfirðinga. Rikling, — vestfirzkan. Spaðkjöt út beztu sauðfjárhéruð- um landsins. Fryst dilka kjöt frá Hvammstanga. Samband ísl. samvinnufélaga. litlar stúlkur vilja gera, þegar þær verða stórar. 4. Ég elska Jesú nafn. Fjörsöngur. 5. Barn- ið við dyrnar á vinsölukránni m. fl. Frú Olsen kapteinn stjórn- ar sýningunni og lúðraflokkurinn spilar. lnngangur kostar 50 aura fyrir fullorðna og 25 fyrir börn. Otvarpid í dag: Kl. 16,10: Veð- urfregnir. KI. 19,05: Þýzka, 1. 0. Kl. 19,30: Veöurfrtegnir. Kl. 19,35. Enska, 1. fl. Kl. 20: Erindi: Heilsuvernd (Þorbjörg Árnadótt- ir). Kl. 20,30: Fréttir. Kl. 21: Söng- vélarhljómleikar.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.