Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 1
PRENTSMIDJA MORG UNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1985 BLAD Graham Greene er orðinn áttræður. Hann átti afmœli í haust og í tilefni af því setti brugghúsið sem langalangafi hans stofnaði árið 1799 á boð- stóla sérstaka lögun af St. Edmunds-bjórnum sín- um með sérstöku hátíðarmerki á flöskunum. Það átti við hann og sömuleiðis hádegisverðurinn sem boðið var upp á í enskri sveit þar sem allt flaut í bjór. Að öðru leyti var afmœlisdagurinn ekkert sérstakur og það er heldur ekkert sérstakt að vera áttrœður. „Það er ekkert friðsamlegra og heldur ekkert öruggara, “ segir hann. Helzti ávinningurinn, segir hann, er kannski sá að áttræður maður nú á dögum getur eftir því sem á líður vænzt þess að sleppa við að enda ævi sína í kjarnorkustríði. Hin hlið málsins, heldur hann áfram, er sú að „mig langar ekki til að lifa sjálfan mig“ — en það er nú óviðkomandi kjarn- orkuvopnum. Þá er hann að tala um líkama sem enn er viðstaddur eftir að hugurinn er farinn á brott. Á stríðsárunum var nfræður frændi hans á Ieið í flotamálaráðu- neytið til að ræða hvort ástæða væri til að flytja hreindýr á skozku heiðarnar þegar hann datt undir járnbrautarlestina þar sem hún stóð á brautarstöð. Hann lifði það af. Þegar hann var 91 árs datt hann ofan úr tré. Hann Iifði það af líka. „Ég vil ekki verða svona gamall," segir Graham Greene og það er full ástæða til að trúa því að hann meinar það sem hann segir. Hann fjölyrðir ekki og velur orð sín vel. Hann heldur að bækur hans beri vott um meiri heiðarleika en ævi hans sem hafi þó verið sóma- samleg. Eftir að þriðja skáldsaga hans kom út á fjórða áratugnum lýsti gagnrýnandi einn honum sem eftirhermu Josephs Conrad og sagði að í bókum hans væri alltof mikið um likingar og yfirborðskenndan ljóðrænan texta. Þessi gagnrýni hafði mikil áhrif á Greene og nú talar hann eins og hann hafi verið að lesa hana í gær. Áhrifin voru ekki sízt í því fólgin að hann gerði sér far um að einfalda orð sín, jafnt í ræðu sem riti. Þessi sparsemi, yfirvegun og fjar- lægðarkennd eru ríkir þættir í „nýju bókinni" hans — „Tfundi maðurinn“ — en hún er uppkast að kvikmynd sem aldrei var gerð. Sag- an var skrifuð rétt eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk og er nú gef- in út sem „stutt skáldsaga“, eins og Graham Greene kýs að kalla það. Hann segist vera allánægður með þessa útgáfu enda þótt hann hafi fyrir löngu verið búinn að stein- gleyma þessu verki þar sem það hafi verið skrifað f Lundúnum fyrir Metro Goldwyn Mayer og það á „þrælkunarsamningi að heita má“, eins og hann tekur til orða. Greene fluttist frá Englandi til Ántibes á suðurströnd Frakklands skömmu eftir 1960. Þar settist hann að f venjulegri blokk sem stendur við venjulegt stræti og þar er hann enn. Flesta morgna situr hann við skrifborð sitt og hefur útsýni yfir smábátahöfnina, miðaldakastala og Miðjarðarhafið. Birtan og útsýnið eru ákjósanleg en auðvelda honum ekki endilega það sem hann er að fást við. Hann er óánægður með síðustu bók sfna, „Getting to know the General“ en hún fjallar um hinn látna forseta Panama, herforingjann Omar Torrijos. Greene segir að bókin hafi verið mjög ófullkomin, laus i bönd- um og hvorki afdráttarlaus ævi- saga, ferðabók né minningabók. GRAHAM GREENE ,Ég er hræddur við að lifa of lengi án þess að skrifa“ Það er of seint að iðrast en Greene segir að það sé skáldsagna- höfundum eðlilegt að fást um mis- tök sín er frá lfður. Honum finnst John Masefield orða það vel — „Undanhaldið mikla þar sem ekkert er vel gert“. Úr munni annars manns mundi þetta tal rithöfundar, sem hefur svo stórkostlegan orðstír, um að hann sé mislukkaður, hljóma vægast sagt yfirborðslega — en ekki þegar Greene segir það. Hann bendir á að eftir öll þessi ár, þegar einhverri vizku ætti að hafa skolað á land, þá sé viðkvæðið í nýjustu skáldsögu hans, „Monsjör Kíkóta“, ekki annað en efinn. Hann er ekki að skrifa um þessar mundir og það vandamál er engin tilviljun. Hann færir það f tal og segist vera niðurdreginn. Gestinum finnst óþægilegt að hlusta á rithöf- und segja að kannski sé hann út- brunninn og lætur einhver orð falla um það að líklega finnist öllum þeir vera dálitið útbrunnir á hverjum degi, í hverri viku, hverjum mánuði eða eitthvað í þá veru. ^Nei,“ segir Greene ákveðið og rödd hans er styrk. „Mig Iangar til þess en ég nenni þvf ekki,“ segir hann um skriftirnar. — Bagar það þig mjög mikið? „Já. Ég er hræddur við að lifa of lengi án þess að skrifa.“ Þagnirnar eru íþyngjandi. Greene heldur áfram. „Einu sinni hélt ég að ég væri búinn að vera. Það var eftir að ég lauk við „A Burnt-Out Case“. Það var ekki ánægjuleg tilhugsun: Nú er ég búinn að vera. En mér lízt ekki á að ég fari að skrifa enn eina núna.“ Greene lítur upp um leið og hann segir þetta. Augu hans eru fölblá og hann deplar þeim ekki. Munnurinn er sviplaus og tillitið kyrrlátt þegar hann gefur til kynna með hægð að umræðu um þetta efni sé lokið. Þannig bfður hann átekta og ger- __________Torfí Jónsson sýnir/2C__________ Steindur glugg[ HöUu í Hveragerdiskirk ju/4C Sýning FÍM/ 2C

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.