Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1985 Góð, en neist ann vantar Hljómplötur Siguröur Sverrisson The Firm The Firm Atlantic/Steinar Sem einlægur aðdáandi bæði Bad Company og Led Zeppelin beið ég afar spenntur eftir út- komunni á plötu The Firm, þar sem þeir eru í broddi fylkingar Paul Rodgers, fyrrum söngvari Bad Co., og Jimmy Page, fyrrum gítarleikari Led Zeppelin. Við fyrstu heyrn varð ég fyrir nokkr- um vonbrigðum, en þau hafa að mestu leyti horfið við frekari spilun. Þó fer ég ekki ofan af þeirri skoðun að einhvern neista vantar á þessari plötu. Allir vita um hæfileika Jimmy Page á gítarinn og viðurkenna snilli hans. Sömu sögu er líkast til að segja um Paul Rodgers, einhvern besta blússöngvara breska poppsins á framanverð- um síðasta áratug. Með þessa vitneskju að leiðarljósi átti mað- ur e.t.v. von á meiri ferskleika þótt kannski sé ekki raunhæft að gera kröfur til fertugra rokkara að þeir sýni skyndilega á sér nýja hlið. Tónlistin á þessari fyrstu plötu Firm er ótrúlega hrá sam- steypa tónlistar Bad Company og Led Zeppelin, þ.e. eins og tónlist Zeppelin var undir það síðasta. Ég er meira að segja ekki frá því að áhrif Rodgers séu sterkari en Page á þessari plötu. Auk þeirra Rodgers og Page eru það Chris Slade/trommur og Tony Franklin/bassi, sem skipa Firm. Slade er gamalreyndur í „bransanum" en Franklin þekki ég lítið. Verð þó að segja að mér finnst bassa„sándið“ hjá honum ekki hæfa þessari tónlist. Slíkt er þó ekkert annað en smekks- atriði. Eflaust má líta á þessa fyrstu plötu Firm sem hálfgerða frum- raun þótt meðlimirnir séu allir vel skólaðir. Hún er áheyrileg en vafalítið á Firm eftir að senda frá sér heilsteyptari plötu, end- ist henni aldur til. Samstarf stórstirna vill oft ganga brösótt, en aðdáendur Rodgers og Page vonast eflaust eftir langlífi Firm. Það geri ég einnig og bíð framhaldsins. Hestasögur Bókmenntlr Sigurjón Björnsson Erlingur Davíósson: Með reistan makka. 4. bindi. Sögur af hestum. Bókaútgáfan Skjaldborg, Akureyri, 1984. 246 bls. í þessu bindi, sem er hið fjórða í röðinni, segja 14 hestamenn frá samskiptum sínum við hesta og ýmsu er hestamennsku varðar. öllum þeim sem hestum unna er kært að lesa vel gerðar frásagnir hestavina, og víst má margt af þeim læra sem reynsluna hafa. Ég hygg að þeir sem þannig eru sinn- aðir, fái sig seint fullsadda af slík- um lestri. Enda er vissulega af nógu aö taka í hinu hestauðga landi okkar. Það leynir sér ekki að allir þeir sem í þessa bók rita eru miklir hestavinir og búa yfir góðri reynslu. Sá djúpi hlýhugur sem streymir frá nálega hverri síðu bókarinnar hlýtur að ylja um hjartarætur. En hvað þarf að auki til þess að bók geti talist góð bók? Um það eru að sjálfsögðu skiptar skoðanir. Persónulega leita ég hér ekki að frásögnum af ferðalögum, upptalningu áningarstaða, lýsingu á veðurfari, móttöku á sveitabæj- um og annarri fyrirgreiðslu. Ekki hef ég heldur beinlínis áhuga á lýsingum manna á hestakaup- mennsku sinni, né heldur varðar mig um kappreiðar og verðlauna- veitingar, ættbókarfærslur hrossa, félagsmálasýsl hesta- manna eða „hrossapólitík". Þess háttar efni er að sjálfsögðu allra góðra gjalda vert, en ég tel þó að það eigi fremur heima í sérhæfð- um tímaritum hestamanna. Hér óska ég fremur eftir nærfærnum og vel gerðum lýsingum hrossa. Hross eru persónur. Hvert hross hefur sinn persónuleika, sína skapgerð, sína vitsmuni, sem birt- ist með ýmsu móti í hegðun þeirra, ferli öllum og samskiptum við manninn. Þá vil ég fræðast um með hvaða hætti maðurinn laðar fram og ræktar samvinnuhæfni, vináttu og gleði þessa göfuga dýrs. Enda þótt víða sé komið til móts við óskir sem þessar í bókinni, finnst mér hún engu að síður allt- of höttótt. Einstaka þættir eru skínandi góðir og eftirminnilegir svo sem frásögn Nývarðs Jónsson- ar af Gránu sinni. Er það með því betra sem ég hef lengi lesið. Hvort tveggja er að saga Gránu er merkileg, og eins hitt að Nývarð kann vel að segja sögu. Góð þótti mér einnig frásögnin af Randver í þætti Jóns Hólmgeirssonar. Og víða er í bókinni að finna skínandi frásagnir þó að þættirnir séu e.t.v. ekki alltaf með neinum ágætum sem heild. En enda þótt ég hefði ánægju af að lesa þessa bók, vil ég ekki draga fjöður yfir það að mér þykir hún verulega gölluð. Gallarnir eru að- allega fólgnir í því að ritstjórinn hefur ekki unnið nægilega vel úr |>eim efnivið sem hann hafði undir höndum eða gat aflað sér. Suma þættina hefði þurft að semja upp á nýtt, fella sumt burt, bæta ann- ars staðar inn í til að dýpka frá- sögnina, breyta áherslum o.s.frv. Það er vitaskuld hlutverk ritstjóra og því ekki við hina ágætu heim- ildamenn að sakast. Steindur gluggi HöUu í Hvera- geröis kirkju N JL ^ ýi steindi kirkjuglugg- inn í Hveragerðis- kirkju ris innan frá að sjá upp af altarinu, 13 m á hæð og 1,60 á breidd eða ámóta hár og 4-5 hæða hús. Höfundur gluggans Halla Haraldsdóttir myndlistarmaður úr Keflavík lýsti honum svo við vígslu- athöfnina: „Myndin er uppbyggð á táknrænan hátt, neðsti hluti mynd- arinnar, sem að vísu lendir bak við altarið, á að sýna jarðhita og gufu, sem Hveragerði er þekkt fyrir, þar inni í eru tilhöggnir og greyptir rauðir gler- steinar sem tákn elds í iðrum jarðar. Síðan kem- ur stílfærð Krists- mynd og efri hluti myndar- innar sýnir blóm og gróanda staðarins og allra efst er stjarna sem tákn birtu og vonar og kross sem bæði merkir hinn helga kross, svo og að Hveragerði er hér í þjóðbraut. Myndin er víða hand- máluð og skyggð og brennd við 700 gráðu hita.“ Mynd- ina, sem birtist hér með í litum af Hveragerðis- glugganum tók Fritz Oidtman við vígslu- athöfnina, en hann var hér staddur við upp- setningu myndarinnar sem listiðnaðarverkstæði hans hafði unnið í Þýska- landi. Einnig er hér mynd af lista- • konunni Höllu Haraldsdóttur við vinnu sína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.