Morgunblaðið - 21.04.1985, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1985
C 5
Gætum tungunnar
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Gætum tungunnar. Hið íslenska
bókmenntafélag, Reykjavík, 1984,
38. bls.
í formálsorðum segir frá því
hvernig þetta litla kver er til
komið: „Um nokkurt skeið birt-
ust daglega í Reykjavíkur-
blöðunum smáklausur undir
fyrirsögninni: Gætum tungunn-
ar. Þar var reynt með stutt-
orðum leiðbeiningum að sporna
við ýmsum málvillum sem skotið
hafa upp kollinum ýmist í fjöl-
miðlum eða á öðrum vettvangi
... Að tilraun þessari stóð fé-
lagsskapur, sem nefndir sig
Áhugasamtök um íslenskt mál.“
Formálann undirritar Helgi
Hálfdanarson sem ritari sam-
takanna.
í kveri þessu eru 200 klausur.
Nokkrar eru leiðbeiningar án
þess að málvillur séu tilgreindar.
En flestar fylgja sama formi.
Þær eru í tveimur liðum (nema
fleiri en einn möguleiki gefist
um seinni liðinn). f fyrri lið er
málvillan sýnd (Sagt var ....
Sést hefur .... Ritað var ..., f
blaði stóð ... o.s.frv.). í seinni
liðnum kemur svo leiðréttingin
Rétt væri Betra væri ...,
slenskulegra væri ..., Mál-
venja er ..., Snotrara mál þætti
..., Sumir segja fremur ...
o.s.frv.).
Sumar málvillurnar eru svo
auðsæjar að fáir aðrir en bögu-
bósar ættu til að steyta á þeim
skerjum. Aðrar — og þær eru
fleiri — fela í sér gildrur sem
margir, þótt málfærir teljist,
falla einatt í. Kverið er þannig
hinn nytsamasti lestur. Ættu
allir sem láta sér annt um að
tala og rita vandað mál að grípa
til þess sem oftast og hafa það
hendi nærri. Þá væri ekki fjarri
lagi að ýta því að skólafólki og
nota það í skólastarfi.
Nú þykir mér ósennilegt að
þessi merku áhugasamtök hafi
látið staðar numið, þegar þessi
tvö hundruð málblóm höfðu ver-
ið lesin. Vafalaust eiga þau
meira í fórum sínum. Því væri
æskilegt að fá frá þeim annan
ritling innan tíðar og síðan þann
þriðja. En líklega er skynsam-
legt að hafa skammtana ekki
stóra í hvert sinn.
Annars verður svartsýnum
körlum eins og mér stundum á
að spyrja hvort tilraunir til að
varðveita þokkalega rétt málfar
séu ekki unnar fyrir gýg. Svo ört
virðist réttri málnotkun hraka.
Jafnvel fólk sem setið hefur í ís-
lenskum skólum um árabil skrif-
ar stundum svo að nálega óskilj-
anlegt er. Það er hvorki íslenska
né nokkurt annað tungumál.
Meira að segja tekur fólk, sem
fyrir nokkrum áratugum hefði
verið talið nálega óskrifandi, að
sér að ritstýra tímaritum. Hinar
smáskrítilegu dönskuslettur,
sem verið var að rífa úr okkur í
menntaskóla hér fyrrum, eru
orðnar hégóminn einber hjá því
sem stundum sést nú (t.a.m. að
segja ekki og skrifa „prufa",
heldur „reyna"). Og það sem ver-
ra er: Fáir kippa sér upp við hið
hörmulega málfar, nema ein-
staka sérvitringur. Mér dettur í
hug eitt snilliyrðið, sem virðist
hafa hlotið vinsældir í Ríkisút-
varpinu og ég hef ekki orðið var
við að neinn finndi neitt athuga-
vert við. Það er orðið „smellur"
sem líklega á að vera þýðing á
enska orðinu „hit“ (átt við dæg-
urlagatónlist, sem verður mjög
vinsæl, þ.e. hittir í mark). Að
vísu er rétt að stundum kemur
smellur þegar hitt er (að vísu fer
það eftir því með hverju er skot-
ið), en þó ekkert frekar en þegar
skotið geigar. Smellurinn getur
því ekki verið neinn mælikvarði
á vinsældirnar!
En hvað um það. Viðleitni
áhugasamtakanna er lofsverð,
og eins og áður sagði er óskandi
að framhald verði á. Þessi bók-
arútgerð þeirra er aukin heldur
svo hófsamleg að hún verður
varla útgefendum að fjörlesti þó
að tímarnir séu erfiðir.
SEM BREYTTIST
Á EINNINÓTTU
Þú getur skemmt þér
stórkostlega í Glasgow, borg-
inni sem breyttist á einni nóttu.
Þótt þér dauðleiðist
sekkjapípumúsík,
finnist skotapils hallærisleg og gamlir kastalar óspennandi, þá
er fjölmargt annað í Glasgow sem gæti heillað þig upp úr
skónum og gert þig að aldavini skoskrar menningar og
lífshátta.
Glasgow er nútímaborg á gömlum grunni. Þangað er aðeins
um 2 klukkustunda flug með Flugleiðum frá íslandi. Þessi
nágrannaborg okkar á sér vaxandi aðdáendahóp hérlendis. Þökk
sé viðmóti Skotanna, kránum, veitingahúsunum, næturklúbbunum,
diskótekunum, verslununum, ágætum söfnum og skemmtilegri
menningu.
- Skoski ballettinn, Skoska óperan, Skoska sinfónían og Skoska
þjóðleikhúsið hafa aðsetur í Glasgow!
- í Glasgow eru 16 fyrsta flokks diskótek, og auðvitað tugir af verri
gerðinni!
- Glasgow státar af 36 veitingahúsum, þar sem matur og þjónusta
eru í hæsta gæðaflokki!
- Glasgow er draumastaður sælkera og lífsnautnamanna. í
borginni eru hvorki fleiri né færri en 80 vínstúkur, ölkrár og litlir
matsölustaðir sem hægt er að mæla sérstaklega með. En þá
eru ótaldir staðir sem heiðarleqir Skotar geta ekki mælt með!
Þú átt varla kost á ódýrara sumarleyfi en ef þú flýgur með
Flugleiðum til Glasgow. Þar býðst gisting á vönduðum hótelum fyrir
hlægilegt verð og í verslunum borgarinnar eru vörurnar á mun
lægra verði en í London.
Gleymdu öllu sem þú hélst að þú vissir um Giasgow! Skemmtileg borg meó lágan aógangseyri
GLASGOW
LtlTIO FREKARI UPPLÝSINGA
A SÖLUSKRIFSTOFUM FLUGLEIÐA,
HJÁ umboðsmönnum og ferða-
SKRIFSTOFUM.