Alþýðublaðið - 28.09.1920, Blaðsíða 1
1920
Þriðjudaginn 28. september.
222. töiubl.
Ný tillag’a
um meðferð á Austurvelli.
Margir hafa fundið að því, að
Austurvelli væri of lítill sómi
•sýndur. Hann er nú töðuvöllur,
fallegur töðuvöllur. Tillögur um
aðra meðferð á honum hafa verið
margar og sundurieitar. Vafasamt
hvort nokkur þeirra heiði verið
æskilegri en töðuvöliurinn.
En uú skal skýrt frá tillögu,
sem að vísu tekur ekki fram töðu-
vellinum frá fegurðarsjónarmiði,
en sem er gagnólík öðrum tillög-
um sem eg hefi orðið var við.
Á Austurvelli á að búa til mynd
og líkingu af landinu okkar, Is-
landi. Hæfilegur mælikvarði mundi
vera x : 10000 (mælikvarði her-
foringjaráðsins hefir verið 1:50000).
Yrði þá landlíkan þetta nálægt 27
föðmum á lengsta veginn. Yrðu
samt eftir rúmgóðir gangstígar
fyrir yztu annes. Grundvöllurinn
tmdir iandinu (hafið) ætti sennilega
að vera lítið eitt hærri en um-
3hverfið. Vel yrði að búa um
grundvöllinn, svo ekki yrði hætt
við sigi eða broti.
Upp af þessum grundvelli ætti
svo „landið“ að rísa í réttum
stærðarhlutfölium, mótað í öllum
stórum dráttum, alveg eins og það
er i raun og veru, með fjörðum
og dölum, fjöllum og hálsum.
Efnið í „Iandið" get eg ekki bent
á, gizka á að það sé vandfundið,
vandinn sá einna erfiðasta atriðið
í framkvæmd þessarar hugmyndar.
Efnið verður að vera þjált í með-
förum, auðvelt að móta meðan á
landssmíðinu stendur. En það
verður að geta þolað áhrif vatns
og veðráttu, standast tímans tönn
um marga áratugi. Ekki trúi eg
því að rnönnum verði vanmáttugt
að finna til slíkt efni.
Liti yrði að bera á landið, t. d.
harða og haldgóða glerungsliti
(emaille). Yrðu þá jöklar máiaðir
hvítir, vötn bíá, hafið dökkgrænt,
tún og engjalönd Ijósgræn, búfjár-
hagar syrjugrænir, skógar dökk-
grænir, eldfjöll og uppvörp rauð,
hraun brún, eyðilönd grá (grjót,
sandar og klettar o. s. frv.).
Eg nefndi hér að framan að
stærðarhlutföll öll ættu að vera
rétt. Með því móti fengju menn
sannasta hugmynd um útlit lands-
ins. En hætt er við að mörgum
findist þá fátt til um svip þess,
Þætti það nokkuð ðatvaxnara en
þeir höfðu búist við. Öræfajökull
næði t. d. 7—8 þumlunga upp
frá „haffleti*. Hinn sérkennilegi
hálendissvipur landsins raundi njóta
sín betur, ef hæðarmálshlutföilin
væru önnur en flatarmálshlutföllin
t. d. helmingi stærri.
Landssmíð þessi mundi standa
yfir í raörg ár, og þyrfti sérstak-
lega að vanda valið á landssmið-
unum. Riði þar mjög á alúð við
starfið og vandvirkni.
Kostnaður við þetta yrði mikill,
líklega yfir 100 þúsund krónur.
En sennilegt þykir mér að það fé
yrði auðfengið. Bæjarstjórn mundi
lítið þurfa að leggja fram. Ein-
stakir menn, hvaðanæfa af Iandinu,
mundu fúsir leggja nokkurt fé til.
Margir mundu vilja leggja fram
fé til tryggingar því, að átthagar
þeirra yrðu trúlega sýndir á „Iand-
inu“. Mundi hyggilegast að stofna
félag til að annast framkvæmd
þessa fyrirtækis. Fyrsta sporið í
áttina yrði það, að fá bæjarstjórn
Reykjavíkur til að fallast á þessa
meðferð á Austurvelli. Thorvald-
sen yrði að sjálfsögðu að víkja
um set, enda sé eg enga sanngirni
styðja það, að hann framvegis
drotni einn yfir hjartastað höfuð-
borgar íslendinga. Myndastyttur
mætti hafa í hornurn vallarins, þó
miðbikið yrði notað svona,
Eg geri ekki ráð fyrir að menn
gætu gengið um „landið“. En
komið gæti til mála að gera brú
yfir það, bifröst.
Fyrirtæki þetta yrði ekki leikur
einn, heldur miklu fremur nyt-
semdarfyrirtæki. Ætla eg lesend-
um blaðsins að finna í hverju
nytsemi þess er fólgin, og fer
því ekki frekar út f það mál að
sinni.
P. G. G.
Crlenð simskeyti.
Khöfn, 26. sept.
Franska stjórnin.
Sfmað er frá París, að stjórn Ley-
gues hafi fengið trastsyfirlýsingu
507 þingmanna, 80 voru á móti.
Yerkfall gegn konungdómi.
Símað er frá Berlín, að verka-
menn í Bayern séu tilbúnir að
hefja verkfall gegn væntanlegum
konungdómi þar í landi.
Landamæri Danmerknr.
Símað er frá Aabenraa, að hin
dansk-þýzka landamæranefnd hafi
í einu hljóði samþykt samhljóða
tiilögur um suðurlandamæri Dan-
merkur.
Fing Dana
kemur saman 5. október.
Afmæli konungs.
80 þúsund manns (á að giska)
tóku þátt £ skrúðgöngu til Ama-
líu borgár í tilefni af afmæli kon-
ungsins.
Signrðnr á hálnm ísi!
Sigurður Þórólfsson fyrv. skóla-
stjóri ritar 4 dálka grein í Morg-
unblaðið 25. þ. rn., sem hann kall-
ar: „Á hálum ís“.
Eins og eg gat til í grein minni
hér 1 blaðinu 14- Þ- m., verður
honum ekki skotaskuld úr því, að
„ósanna“ útreikning minnl Eða
svo finst honum. Vegna þess, að
hann minnist ekki einu orði á að-
alatriði þessa máls, sem eg marg-