Morgunblaðið - 04.07.1985, Page 2

Morgunblaðið - 04.07.1985, Page 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ.VIÐSKIPrMnVDIHUlÍFPIMMTODAGTJR 4. JÚLÍ 1985 ADVANCE *““88-tölvan er að fullu samræmd IBM—PC og (jetur unnið með öll forrit hennar. Frá vinstri eru Eggert Claessen framkvæmdastjóri Míkró, Logi Kristjánsson forstöðumaður Tölvuþjónustu Sveitarfélaganna og Birgir Blöndal skrifstofustjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samband íslehskra sveitar- félaga valdi Advance-tölvu SAMBANI) íslenskra sveitarfélaga hefur ákveóið að mæla með þvi við sveitarfe- lögin að þau kaupi Advance MMd-tölvur og Microline-tölvuprentara samkvæmt tilboði Míkró hf. í framhaldi af verðkönnun á einkatölvum sem Tölvuþjónusta Sveitarfélaga gerði í maí í vor. Logi Kristjánsson forstöðumaður Tölvuþjónustu sveitarfélaganna sagði í samtali við Morgunblaðið að hér væri um að ræða tölvu með tvö- földu diskettudrifi og væri hægt að geyma 720.000 tákn inni á hverju þeirra. Þessi tölva kostar 54.000 krónur. Hægt er að fá hana með 10 Mb-diski og kostar hún þá 89.000 krónur. Þá er getur hún geymt 720.000 tákn, en auk þess hefur hún disk sem getur geymt 10 milljón tákn. „Tilboðið frá Míkró hf. var það hagstæðasta sem barst. Önnur til- boð hljóðuðu upp á 25.000 — 30.000 króna hærra verð að meðaltali," sagði Logi. „En það er rétt að taka það fram að mikið framboð er á einkatölvum og mikill mismunur á tækjunum, bæði hvað varðar verð og gæði.“ „Eftir þessa verðkönnun höfum við raunhæfan samanburð á verði og gæðum og teljum okkur geta leiðbeint sveitarfélögunum um val á tölvu eftir því til hvers á að nota hana og miðað við verð og gæði mælum við með Advance-tölvunni," sagði Logi að lokum. Tryggingar Garðabær og Hafnar- fjörður hafa ákveðið að segja skyidutryggingum upp Brunabótafélag íslands hefur annast allar tryggingar sveitarfélaga hingað til GARÐABÆK OG Hafnarfjörður hafa i íslands um skyldutryggingar fasteigna ar út. Brunabótafélagið hefur annast laga utan Keykjavíkur. Á síðasta ári I iðngjalda eða um 77 milljónir króna. Bæjarstjórn Garðabæjar ákvað á fundi sínum 27. júní síðastliðinn að segja samningi við Brunabóta- félagið upp og bjóða tryggingarn- ar út. Tillaga þessa efnis var sam- þykkt með sex atkvæðum, en einn sat hjá á þeirri forsendu að hann vildi sjá útboðsgögnin áður. Að sögn Jóns Gauta Jónssonar, bæj- arstjóra Garðabæjar, er verið að vinna að gerð þeirra og mun út- boðið fara fram innan skamms. í greinargerð með tillögunni segir að með þessu sé verið að gefa bæjarbúum kost á því að njóta aukinnar samkeppni, sem er á milli tryggingarfélaga. Orðrétt segir: „Bæjaryfirvöld í Garðabæ hafa árum saman átt mjög ánægjuleg viðskipti við Bruna- bótafélag íslands, sem samkvæmt samningi hafa séð um skyldu- tryggingu húseigna í bænum síðan 16. maí 1955. Samkvæmt lögum númer 59 frá 1954 hefur það verið sagt upp samningi við Brunabótafélag og hafa ákveðið að bjóða tryggingarn- nær allar skyldutryggingar sveitarfé- fékk félagið í sinn hlut rúmlega 94% á valdi sveitarstjórna að ákveða að allar eignir í sveitarfélaginu skuli tryggðar hjá einum aðila og með samningi tryggt þannig einu tryggingarfélagi ákveðna stöðu innan sveitarfélagsins. Bæjar- stjórnin vill ekki gera lítið úr nauðsyn þessarar aðferðar á þeim tíma, sem hún var tekin upp, en nú á tímum vaxandi samkeppni tryggingarfélaga, sem hafa ör- mgga stöðu og getu til að annast þennan þátt trygginga telur bæj- arstjórnin ástæðu til þess að löggjafinn endurskoði þetta ákvæði. Bæjarstjórnin vill að þessi þáttur trygginga verði frjáls, eins og aðrar tryggingar þannig að húseigendum sé heimilt að tryggja hjá hvaða tryggingarfé- lagi sem er. Sem lið í þessari þróun og til þess að gefa bæjar- búum kost á að njóta aukinnar samkeppni tryggingarfélaga ákveður bæjarstjórnin því að skyldutryggingar fasteigna skuli boðnar út.“ Á síðasta ári voru iðngjöld skyldutrygginga í Garðabæ rúm- lega 1,9 milljónir króna og eru 1552 eignir tryggðar. Ágreiningur er á milli Garða- bæjar og Brunabótafélagsins vegna þessa máls. Brunabótafé- lagið heldur því fram að samningi um tryggingarnar hafi ekki verið sagt upp með tilsettum fyrirvara. Jón Gauti Jónsson sagði að for- stjóra félagsins hefði verið þetta fyllilega kunnugt og að ábyrgð- arbréf hefði verið sent áður en fresturinn rann út, þar sem til- kynnt var formlega um uppsögn. Hafnafjarðarbær hefur einnig ákveðið að bjóða út tryggingarnar og hefur þegar sagt upp samningi við Brunabótafélagið. I desember á síðasta ári voru boðnar út allar tryggingar bæjarfélagsins og stofnana hans og lækkuðu iðn- gjöld verulega samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Sjóvá sér nú um þessar tryggingar, en áður hafði Brunabótafélagið annast þær. Landbúnaöur Talsverð fjár- festing, en ein sú arðsamasta — segir Eiríkur Mikaelsson, eigandi Boða, sem flytur inn flesta heymetisturnana íár í ÁRSBYRJUN 1982 stofnaói ungur maöur ættaöur vestan úr Önundarfiröi fyrirtækió Boöa í Hafnarfiröi. Eiríkur Mikkaelsson hafói um tíma staöiö í innflutningi á búvélum í aukavinnu, en helgaöi sig því starfi meö stofnun fyrirtækisins. Náöi hann strax góöum árangri og er fyrirtæki hans nú oróið meö þeim stærstu í búvélainnflutningi, þrátt fyrir að þaö (lytji ekki inn dráttarvélar, og eitt þaö framsæknasta. Byrjaði á að leysa mykjuvandamálið „Ég byrjaði í þessu fyrir tilvilj- un,“ sagði Eiríkur um ástæður þess að hann fór út í innflutning búvéla. „Ég vann í nokkur ár sjálfstætt við vélaviðgerðir og ferðaðist því mikiö um landið. Þar fékk ég minn skóla í þessari grein, sá vandamálin og átt- aði mig á því hvað mörg þeirra tækja sem notuð hafa verið voru ómöguleg. Eitt stærsta vandamál bændanna var í sambandi við hús- dýraáburðinn. Sömu tækin voru aíltaf á markaðnum hér þrátt fyrir að þau væru löngu orðin úrelt. Mér þótti skrýtið að sjá ekkert fjallað um slík vandamál í erlendum fag- blöðum og fór því til Danmerkur til að kanna þessi mál. Þá kom það auðvitað í ljós að þeir voru búnir að leysa vandamálið með húsdýra- áburðinn fyrir 20 árum.“ Eiríkur komst síðan í samband við fyrirtækið Kimadan sem sér- hæfir sig í þessum málum og fór að flytja inn í aukavinnu mykjudælur og mykjudreifara af Gundersted- gerð, sem þetta fyrirtæki framleið- ir. Hann sagði að tækjunum hefði strax verið vel tekið og þau orðið það vinsæl að aukavinnan hefði fljótlega orðið aðalatvinnan. Hann hefði því slegið til og hellt sér út í búvélainnflutninginn af fullum krafti. Sagði Eiríkur að þessi nýja tækni létti stórkostlega störfin hjá bændum, auk þess sem hún gerði þeim kleift að nýta húsdýraáburð- inn betur. „Samkeppnin í dráttarvélun- um komin út í öfgar“ Eiríkur hefur síðan fariö mikið á sýningar erlendis og verið duglegur við að ná sér í umboð. Taldi hann að vel hefði tekist til með val á tækj- um og þar hefði það nýst sér að vera uppalinn í sveit á tímum vél- væðingar sveitanna. Hann segir enda að reynslan sé úti hjá bænd- unum, en ekki á skrifstofum bú- vélainnflytjendanna í Reykjavík. Hann heldur því fram að mörgu hafi verið reynt að koma inn á markaðinn, sem hafi gjörsamlega misheppnast. Tekur hann þannig til orða að ekki sé lengur hægt að selja bændum hvað sem er út á litinn á vélunum og segir að Boði láti frekar einhverjar vélar vanta inn í hjá sér en að selja eitthvert drasl sem þeir séu ekki sáttir við. Talið berst að samkeppninni í dráttarvélunum og af hverju Boði sé ekki þar með: „Ég er ekki í bú- vélainnflutningi til að reka fyrir- tæki, heldur til að græða,“ svarar Eiríkur. „Ég reyni fyrst að átta mig á þörfinni áður en ég hef innflutn- * » Æ HEYTURNABYLTINGIN ““Eiríkur Mikkaelsson hjá Boða (annar frá vinstri) sést hér meðal starfsmanna sinna framan við bækistöðvar fyrirtækisins í Hafnarfirði. Á myndinni til vinstri sést Boythorpe-turninn í byggingu, en hann er byggður neðan frá, þ.e. þakið fyrst, eins og sjá má. Á hinni myndinni sést fyrsti turninn af þessari gerð sem risinn er — í Einarsnesi í Borgarfirði. —........ ing á vélum. Eg hef gert markaðs- könnun fyrir dráttarvélar og sá þá að þetta eru vonlaus viðskipti, að minnsta kosti fyrir nýtt merki. Til að eitthvert vit væri í slíku þyrfti að selja 60 vélar og það gengur ekki upp, enda eru bestu merkin þegar á markaðnum. Samkeppnin er komin út í öfgar í dráttarvélunum og fyrirtækin hafa ekkert út úr þessu. Eg stend ekki í slíku," sagði hann. Að undanförnu hefur danskur sérfræðingur ferðast um landið á vegum Boða til að kynna bændum fjárheldar rafmagnsgirðingar. Ei- ríkur telur að rafmagnsgirðingar leysi þær hefðbundnu af hólmi hér á landi á næstu árum. „Hvernig á annað að vera,“ segir hann. „Þær eru helmingi ódýrari, viðhaldsfríar, fljótlegar í uppsetningu og halda fé betur.“ Hann sagði að rafmagns- girðingar væru allsráðandi erlendis og þær hljóti að taka við hér á landi jnnan tíðar. Fjórir Boða-turnar reistir í ár Eitt stærsta málið hjá vélainn- flytjendum á næstu árum verður án efa innflutningur heymetisturna. Globus hf. hefur flutt inn nokkra slíka á undanförnum árum og verið brautryðjandi á þessi sviði. Boði hefur nú hafið innflutning á Boy- thorpe-stálturnum með þýskum losunarbúnaði. Strax á fyrsta ári hafa verið settir upp 4 slíkir turnar, sem er meirihluti þeirra heymetis- turna sem settir eru upp í ár. Fyrsti turninn var settur upp í Einarsnesi í Borgarfirði hjá Óðni bónda þar og hreppstjóra Sigþórssyni. Boy- thorpe-turnarnir eru m.a. að því leyti frábrugðnir Harvestore- turnunum frá Globus að þeir eru losaðir að ofan. Ýmis önnur fyrir- tæki hafa þreifað fyrir sér á þessu sviði en enn ekki náð fótfestu að heitið geti. Turnarnir taka 55—100 kýrfóður, eftir stærð og kosta tæplega hálfa þriðju milljón með undirstöðum. „Jú, þetta er talsverð fjárfesting, en jafnframt ein sú arðsamasta sem bændur með stærri bú geta farið út í,“ sagði Eiríkur. „Með þessari hey- verkunaraðferð geta menn tryggt sér besta hugsanlega fóðrið af tún- um sínum. Samt verða menn að átta sig á því að svona turn leysir ekki öll vandamál því það fóður sem út úr honum kemur getur aldrei orðið betra en það sem í hann er sett.“ Boði hóf innflutning á Manus- mjaltavélum frá Danmörku í fyrra, en hingað til hefur Sambandið verið svo til einrátt á þeim markaði. Taldi Eiríkur að svo vel hefði tekist til, m.a. f verði, að Boði væri nú að taka þennan markað eins og hann legði sig. Sagði hann að í fyrra hefðu þeir verið með um þriðjung sölunnar og í ár með um 80—90% sölunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.