Morgunblaðið - 04.07.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ.VEDSKIPn IŒVJKHULÍFfIMMTUDAGUU 4. JÚL! 1985
B 5
Flutningsgeta stærstu skipafélaganna í gámaflutningum (í þúsundum tuttugu feta gáma-eininga, TEU)
Skip af öllum gerðum Mitt ár árslok breytt röð
1984 1986 árslok
(áætlað) 1986
1 Evergreen (Taiwan) 73.3 95.1 ( 1)
2 Maersk (Denmark) 53.3 56.2 ( 3)
3 Sea-Land (USA) 47.5 51.7 ( 5)
4 US Lines (USA) 46.5 89.1 ( 2)
5 CY Tung Group (Hongkong) 46.1 54.1 ( 4)
6 Hapag Lloyd (West Germany) 42.9 44.8 ( 7)
7 Overseas Containers (Britain) 39.7 39.7 ( 8)
8 Mitsui OSK Lines (Japan) 34.5 35.5 ( 9)
9 Nedlloyd (Netherlands) 34.2 34.2 (10)
10 USSR 29.5 47.3 ( 6)
11 American President Lines (USA) 28.3 28.3 (13)
12 Nippon Yusen KK (Japan) 25.7 25.7 (14)
13 UÁSC (United Arab Shipping Corp) 23.8 23.8 (15)
14 Yang Ming (Taiwan) 20.5 32.5 (11)
15 Polish Ocean Lines (Poland) 13.7 30.8 (12)
Bflaiðnaðurinn
Mazda eykur arð
inn verið þýðingarmeiri en flutn-
ingskostnaðurinn, sérstaklega
fyrir verðmikla vöru. Á árinu 1984
flutti Sea-Land að meðaltali rúm-
lega 3.000 gáma vikulega þvert yfir
Bandaríkin landleiðina samanbor-
ið við aðeins 100 gáma á viku fyrir
10 árum.
Gámaflutningafélög eru þegar
farin að finna fyrir samkeppni
hnattsiglinganna. Evergreen hóf
vikulegar hnattsiglingar í apríl sl.
heilum níu mánuðum á undan upp-
haflegri áætlun. Vikulegar sigling-
ar US Lines verða að fullu komnar
á í september þegar síðustu nýju
skipin hafa verið afhent. Með
lækkandi farmgjöldum hafa önnur
skipafélög tekið upp nánari sam-
vinnu — i samræmi við bandaríska
lagasetningu frá í fyrra sem heim-
ilaði skipafélögum að skipta með
sér verkum.
Þessi hagræðing kemur sér vel
að því leyti að nú geta tvö eða þrjú
félög sameinað þjónustu sína til að
fjölga ferðum og draga úr kostn-
aði. í maí sl. sömdu þrjú félög,
Orient Overseas Containerline í
Hongkong, Neptune Orient í
Singapore og Yamashita-Shinni-
hon Line í Japan, um sameiginlega
flutninga á siglingaleiðum á
Kyrrahafi. Áður höfðu þessi þrjú
félög tekið upp samvinnu um
flutninga milli Evrópu og Austur-
landa fjær. Jafnvel Evergreen er
að íhuga samvinnu við Japan Lines
í flutningum á Kyrrahafsleiðum.
Farmgjöld á sumum vörum á
siglingaleiðinni austur yfir Kyrra-
hafið frá Japan og Suður-Kóreu
hafa lækkað um að meðaltali 20%
það sem af er þessu ári, og sýnir
það bæði minnkandi eftirspurn í
Bandaríkjunum og harða sam-
keppni. Bæði Sea-Land og Presi-
dent Lines hafa skýrt frá minnk-
andi hagnaöi fyrsta ársfjórðung-
inn miðaö við sama tímabil í fyrra,
og hjá McLean Industries, sem á
US Lines, varð tap á rekstrinum
fyrsta ársfjórðunginn.
Þrátt fyrir tapið standast áætl-
anir US Lines. Enn sem komið er
hefur félagið ekki farið út í neitt
fargjaldastríð við svæðasamtökin.
En félagið vill lækka gjöldin. Upp-
haflega óskaði félagiö eftir að fá
að flytja vörur á farmgjöldum sem
voru 15% lægri en hjá þeim sem
flytja varninginn bæði á sjó og
landi. Þau fimm svæðasamtök,
sem málið varðaði, neituðu að fall-
ast á svo mikinn mun. Síðan hefur
US Lines nokkuð dregið úr kröfum
sínum, og talað er um stofnun „að-
alsvæðasamtaka" sem nái til allra
siglingaleiða á Kyrrahafi til að
draga úr frekari farmgjalda-
lækkunum.
En US Lines heldur enn fast við
þá kröfu að félagið megi flytja
varning á lægri gjöldum en sjó og
land-flutningafélögin. Það er ekki
aðeins á Kyrrahafsleiðum sem
þörf er fyrir breytingar á svæða-
samtökunum. Sama máli gegnir á
siglingaleiðum yfir Norður-Atl-
antshaf, þar sem verið er að sam-
eina níu núverandi svæðasamtök í
tvö, annað fyrir vesturleiðina, hitt
fyrir austurleiðina.
Elztu svæðasamtökin, FEFC,
eiga 100 ára sögu að baki, og eiga
nú við erfiða stöðu að glíma. Allt
að því þriðjungur allra flutn-
inganna á yfirráðasvæði samtak-
anna er nú í höndum aðila, sem
ekki eru félagar. Auk US Lines og
Evergreen má þar nefna danska
skipafélagið Mærsk, sem vill auka
aðild sína að Kyrrahafsflutningum
á kostnað FEFC. Skipafélagið er
enn aðili að svæðasamtökunum, en
samningur þess kemur til endur-
nýjunar í lok þessa árs. Þá gæti
svo farið að félagið teldi hag-
kvæmara að halda uppi siglingum
óbundið — og umhverfis hnöttinn.
(Heimild: The Economist)
— Ford tapar
MAZDA hefur tilkynnt að hagnaður
fyrir skatta fyrirtækisins mánuðina
nóvember 1984 til aprfl á þessu ári
hafl aukist um 39% þrátt fyrir að
söluaukningin hafl aðeins verið 6%.
Ástæður þessa eru fyrst og fremst
þær að Japanir hafa keypt dýrari
bíla og að framleiðni hefur aukist.
Sala Mazda sömu mánuði nam
3,05 milljörðum dollara, en fyrir-
tækið er þriðji stærsti bílafram-
leiðandi Japans.
Fordverksmiðjurnar tapa
Fordverksmiðjurnar í Vestur-
Þýskalandi voru reknar með 298
milljóna marka tapi á síðasta ári,
en forsvarsmenn þeirra búast við
að dæmið snúist við á yfirstand-
andi ári.
Miðað við árin 1981 til 1983 eru
umskiptin mikil, t.d. varð hagnað-
ur 1982 um 324 milljónir marka.
Salan dróst saman um 4% 1984
frá fyrra ári, var 12,78 milljarðar
marka á móti 13,35 milljörðum
marka 1983. Sömu sögu er að segja
um framleiðsluna, sem minnkaði
um 5,8%, þrátt fyrir að aukning
væri í framleiðslu Transit-bíl-
anna. Financial Time hefur það
hins vegar eftir fjármálastjóra
verksmiðjanna að tekjur fyrstu
fimm mánuði þessa árs hafi aukist
um 5% miðað við sama tíma á síð-
asta ári.
Á síöasta ári var hlutur Ford á
vestur-þýska markaðinum 12,5%,
en var 1983 12%. Fyrstu fjóra
mánuði yfirstandandi árs hefur
hlutur verksmiðjanna verið 9,8%,
en forsvarsmenn fyrirtækisins
gera ráð fyrir að markaðshlut-
deild hækki í 11—12% vegna nýrr-
ar tegundar sem komin er á mark-
aðinn, Scorpio.
Opel á rétta braut
Opel-verksmiðjurnar í V-Þýska-
landi skiluðu hagnaði fyrstu fimm
mánuði þessa árs, en á síðasta ári
töpuðu þær 695,1 milljón marka.
Ferdinand Beickler, fram-
kvæmdastjóri Opel, hefur hins
vegar bent á að fyrri hluti árs sé
yfirleitt hagstæðari en seinni
hluti fyrir bílaiðnaðinn.
Á síðasta ári lamaðist starfsemi
Opel í sjö vikur vegna vinnudeilna
um styttingu vinnuvikunnar og að
mati forsvarsmanna verksmiðj-
anna er það ein meginskýringin á
lélegri afkomu. Hlutur deilnanna í
tapinu er áætlur um 300 milljónir
marka. Þá hafði hár sölukostn-
aður vegna harðnandi samkeppni
og lítill söluhagnaður mikil áhrif á
rekstur verksmiðjanna.
VELGÆSLUKERFIÐ
SHM 132
Öflugt hjálpartæki á sjó og landi.
SHM 132 er fjölhæfur hitamælir fyrir dísilvélar,
dísilrafstöðvar, verksmiðjur, mjólkurbú o.fl.
Með SHM 132 má fylgjast með hita á mörgum
stöðum samtimis, t.d.:
Afgashita, hita í höfuðlegum, kælivatni, olíu,
frystigeymslu o.s.frv.
Aðvörun er stillanleg fyrir hvern nema
sérstaklega.
íslensk hönnun og íslensk smíði.
ÁRA
Höldum upp á 25 ára
afmœlið með því
að flytja
í ný húsakynni
Erum flutt:
BÆJARHRAUNI
NVR SÍMI: Q5-J000
10
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10. HAFNARFIRÐI. SIMI 651000.