Morgunblaðið - 04.07.1985, Side 8

Morgunblaðið - 04.07.1985, Side 8
1 taf^iisttMðÍkfö VIÐSKIPn AIVINNUUF MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1985 8 B Lúxemborg — III Litla landið sem vill vera fjármálahöfuðborg EB AlþjóAlegi fjármagnsmarkaöurinn í Lúxemborg varð landinu til mikils láns á miðjum áttunda áratugnum þegar mikil kreppa varð í stáliönaði og endurskoða varð undirstöðuat- vinnugrein þjóðarinnar. Stáliðnaður- inn kostaði þjóðina allt í einu mikið fé og verulegur halli hefði orðið á fjárlögum ef gróskan á fjármálasvið- inu hefði ekki verið veruleg og tekj- ur ríkisins af henni jafnað út tapið á stáliðnaðinum. Fjármagnsmarkaðurinn hefur verið að þróast smátt og smátt. Lúxemborg hefur ávallt verið opið land í sambandi við fjármagns- viðskipti og verðbréfamarkaður- inn, sem nýtur mikils álits, var stofnaður 1929. Uppvöxturinn hófst fyrir alvöru á sjöunda ára- tugnum þegar Lúxemborg sér- hæfði sig í Euro-bonds og erlendir bankar, vestur-þýskir og bankar frá Norðurlöndunum í fyrstu, stofnuðu útibú í Lúxemborg. Nú eru alls 117 bankar í Lúxemborg, þar af eru 105 erlendir bankar og 12 tilheyra Belgíu eða Lúxemborg. Auk þeirra eru 150 fjárfestinga- sjóðir í landinu og 6500 eignahlutafyrirtæki (holding companies) Bankarnir hafa hingað til aðallega haft viðskipti við stærri aöila, aðra banka, stofn- anir og fyrirtæki, en eru nú að færa sig meira inn á svið einstaklingsbankaviðskipta. „Það er draumur bankamanna í Lúxemborg að þjóna sama til- gangi innan Evrópubandalagsins og svissneskir bankar þjóna á al- þjóðamarkaði," sagði opinber starfsmaður í Lúxemborg við blm. Mbl. „Við erum að færa okkur meira og meira inn á sama svið og svissnesku bankarnir," sagði ann- ar. „En við vinnum samhliða þeim frekar en að keppa við þá. Þeir fá efnaðri viðskiptavini en við. Við sættum okkur við viðskiptavini með minni inneignir en þeir.“ Um 40% inneigna í bönkunum í Lúxemborg eru í erlendum gjald- miðli. Algjört frelsi ríkir í sam- bandi við gjaldeyriskaup og sölu en þó kvartaði maður í einka- rekstri undan því að það þyrfti að gera grein fyrir viðskiptum í er- lendum gjaldmiðli fyrir ofan vissa upphæð. Seðlabankinn í Belgíu fylgist með þessum viðskiptum og það tekur tíma að fylla út gögn og bíða eftir svari frá honum. Jacqu- es Grosjean, blaðafulltrúi banka- samtakanna í Lúxemborg, sagði að þetta væri eingöngu gert til að fylgjast með stöðu „viðskipta- frankans" (frankar sem eru notað- ir til viðskipta eru skráðir sérstaklega) og einstaklingum eða fyrirtækjum væri aldrei neitað um nauðsynlegan gjaldeyri. Lúxemborg er lítið, landlukt land sem kæmist ekki af án ■» frjálsra viðskipta við nágranna- lönd sín. Þjóðin ákvaö í atkvæða- greiðslu árið 1920 að leitast eftir peninga- og viðskiptasambandi við Frakka en þeir neituðu og samstarf var hafið við Belgíu árið 1922. „Það var mesta mildi," sagði Grosjean. „Frakkland er of stórt og hefði alveg gleypt Lúxemborg, auk þess sem efnahagsástandið þar er ekki svo gott.“ Það er enginn seðlabanki í Lúx- emborg. Peningastofnun Lúxem- borgar annast þau störf sem væru í hans verkahring. Hún prentar t.d. peninga og slær mynt en Lúxemborgar-frankinn er jafn verðmikill og belgíski frankinn. Stöðugleiki og dreifing gjaldmið- ilsins eru meiri á þennan hátt og bankamenn eru ánægðir með fyrirkomulagið þótt stundum heyrist raddir um að Lúxem- borgar-frankinn ætti að vera sjálfstæð mynt. Mörgum gramdist t.d. fyrir nokkrum árum þegar seðlabankinn í Belgiu felldi gengi frankans án þess að láta nokkurn í Lúxemborg vita að það stæði til. En ekkert samkomulag er um við hvað ætti að miða frankann ef hann yrði tekinn úr sambandi við hinn belgíska. Peningastofnunin hefur yfir- umsjón með bankastarfseminni í Lúxemborg. Pierre Jaans, yfir- maður hennar, nefndi fjögur at- riði sem hafa stuðlað að því að gera Lúxemborg að meiri háttar fjármagnsmiðstöð: markviss laga- ákvæði og frekar frjálslynt eftir- litskerfi; frjáls erlend viðskipti; MorgunbUðið/ab. PENINGAVALDIÐ — Pierre Jaans, yfirmaður Peningastofnunar Lúx- emborgar. stöðugt efnahagslíf, staðsetningu landsins og málakunnáttu íbúa þess; og aðild Lúxemborgar að Evrópubandalaginu og öllum helstu fjármálastofnunum heims. „Margar þjóðir langar til að feta í fótspor Lúxemborgar og þróa fjármagnssvið sitt,“ sagði Jaans. „Grikkland er eitt þeirra landa og Vanua Tu í Kyrrahafinu annað. En það er ekki svo hlaupið að því. Nú eru verðbréfamarkaðir opnir allan sólarhringinn einhvers stað- ar í heiminum, hinir helstu eru í New York, Hong Kong, Tókýó, Bahrain og London, og ekki svo auðvelt að komast inn á þann markað. Það varð Lúxemborg til gæfu að sérhæfa sig snemma í Euro-bréfum og gjaldmiðli og vera tiltölulega ódýr staður til að reka viðskipti frá þegar stærstu bankarnir í Vestur-Evrópu fóru að hugsa til þess að opna útibú er- lendis. Nú eru 90 bankar af 250 stærstu bönkum í heimi með útibú í Lúxemborg." Meðal kostanna við bankalögin eru þeir að bankar þurfa ekki að eiga sjóði hjá seðlabanka, eins og tíðkast í flestum löndum, og þeir þurfa ekki að haida eins miklu fé inni í hlutfalli við útlán og gerist og gengur í öðrum löndum. Auk þessa eru skattalögin í Lúxemborg frekar hliðholl bankarekstri og bankaleynd ríkir í landinu. „Engin meiri háttar hneyksl- ismál hafa átt sér stað í sambandi við bankaviðskiptin hér,“ sagði Grosjean. „Einn v-þýskur banki hætti starfsemi vegna erfiðleika hjá móðurbankanum og Ambrosi- ano, banki Robertos Calvi, rak hér eignafyrirtæki en erfiðleikar bankans komu rekstrinum hér ekkert við. Og við höfum ekki átt í útistöðum við bandarísk yfirvöld vegna eins eða neins." Samkeppnin á fjármagnssvið- inu hefur aukist mjög á undan- förnum árum. „London er meðal harðra samkeppnissvæða okkar,“ sagði Grosjean „En við fögnum samkeppni. Hún er okkur til góðs, við leggjum okkur meira fram um að veita góða og fjölbreytta þjón- ustu þegar hætta er á að við gæt- um annars misst viðskipti. Einok- un leiðir ávallt til stöðnunar. Við vinnum að því að auka umsvif bankanna hér og stefnum að því að vera vel samkeppnisfærir í framtíðinni. Fjármála- og laga- stofnanir Evrópubandalagsins eru staðsettar hér og Lúxemborg er að verða fjármálahöfuðborg þess.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.