Morgunblaðið - 14.08.1985, Side 1

Morgunblaðið - 14.08.1985, Side 1
fktotpmMiifrfö LISTIR PRENTSMIDJA MORG UNBLAÐSINS MIDVIKUDAGUR 14. ÁGÚST1985 NÚTÍMA TEXTIL Badanna Zack: Bjölluhúð I, 1981. Gipsað og límborið tau. Magdalena Abakanowicz: Umskiptingurinn 1985, strígi límborinn, viður og segldúkur. Vakningu nútíma textíllistar var frá upphafi vel tekið á íslandi, bæði af listnjótend- um, gagnrýnendum og lista- mönnum. Sýndu listamenn þá víðsýni aÓ játa textílfólk þegar í sinn hóp enda voru fjórir frumherjar vefjarlistar, þær Júlíana Sveinsdóttir, Vigdís Kristjánsdóttir, Ás- gerður Búadóttir og Barbara Árnason allar myndlistarkonur og höfðu þrjár þeirra hlotið drjúgan hluta menntunar sinnar við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn en Barbara við Konunglega listaskólann í Lundúnaborg. Vefnaður og ullarhnýting voru Júlíönu og Barböru aukageta og leit í annað efni líkt og mósaíkið eða glerið Nínu Tryggvadóttur, en þær Ásgerður og Vigdís beindu aftur á móti kröftum sínum að myndvefnaðinum. íslenskir listamenn sýndu með þessu meiri framsýni en margir stéttarbræður þeirra á Norðurlöndum og skýringanna er ef til vill að leita í þeirri þversögn að listiðnaður stóð hér ekki með sama blóma og í þeim löndum öðrum. Myndvefnaðarkonum varð því ekki í annan hóp vísað. SAMNORRÆN VEFJARLIST í 10 ÁR, - NORDISK TEXTILTRIENNALE Þessa dagana stendur yfir á Kjarvalsstöðum farandsýning norrænna textíllistamanna. Hér er á feröinni Nordisk Text- iltriennale í fjóröa sinniö. Fyrsta sýningin var opnuö í Ála- borg í Danmörku áriö 1976, aöaldriffjööur og formaður frá upphafi hefur veriö danska listakonan Nanna Hertoft. Þeirri sýningu lauk síöan áriö 1977 í Listaskálanum í Fær- eyjum. Á þriggja ára fresti hefur sýningin feröalag sitt um Noröurlönd og kemur í þetta sinn til Reykjavíkur frá Moss í Noregi, en þar var sýningin opnuö 8. júní síöastliöinn. Nordisk Textiltriennal er nú stærsta farandsýning nor- rænna listamanna og hefur tilgangurinn veriö aö styrkja sambönd listamanna innbyröis og gefa þeim tækifæri til aö sýna þaö besta og nýjasta sem er á döfinni í hverju landi fyrir sig. Triennalinn hefur ævinlega veriö styrktur af opinberum aöilum og lagöi Norræni menningarmálasjóöurinn fram þriöjung áætlaörar fjárþarfar fyrir 4. triennalinn en mennta- og menningarmálaráöuneyti þátttökulandanna lögöu til þaö sem á vantaöi. Þátttakendur aö þessu sinni eru 80 listamenn frá Danmörku, Finnlandi, íslandi, Noregi og Svíþjóö. Á meöal sýnenda eru margir þekktir listamenn svo og ungir og upprennandi. Margar nýjungar má sjá í meðferð efnis og forms. Fulltrúar íslands á sýningunni eru listakonurnar Guörún Gunnarsdóttir, Guörún Marinósdóttir, Hólmfríöur Árna- dóttir og Sigurlaug Jóhannesdóttir. Jafnframt sýnir í boöi 4. Nordisk Textiltriennal ung listakona, Þórdís Siguröar- dóttir, en hún sýnir nýstárlegt umhverfisverk á Miklatúni fyrir sunnan Kjarvalsstaöi. Sýningin er opin til 25. ágúst, en frá íslandi fer hún til Færeyja, Danmerkur og Finnlands og endar í Svíþjóð. í íslensku Tricnnalnefndinni eru: Anna Þóra Karlsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Áslaug Sverrisdóttir, Hildur Hákonardóttir og Steinunn Pálsdóttir, en þær Ása Ólafsdóttir og Hildur Hákonardóttir hafa skipt með sér for- mennsku í nefndinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.