Morgunblaðið - 14.08.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1985
B 5
HÓLMFRÍÐUR ÁRNADÓTTIR
Hver er hún?
Hver er hún? Svo spyrjum við
gjarnan og þá er gott að vita
hverra manna og hvað sá hinn
sami hefur starfað, eða gert fyrir
nafn sitt.
Já, hver er hún? Jú, ég man svo
langt, að hún varð einna fyrst til
Hólmfríður Arnadóttir:
Landslagsþema, 1985.
Pappír-textíl.
að brjótast undan þeirri kvöð, að
vel klæddri konu væri skyldugt að
klæðast kjól.
Hún spígsporaði um bæinn á
buxum, við hneykslan fólks.
Blaðamenn birtu myndir og
spurðu „er þetta framtíðin?"
Jú, mikið rétt, það var framtíð-
in.
En einmitt þarna þekkti ég
Hólmfríði. Hún er eins og íslenskt
veður, síkvik og óútreiknanleg,
óhamin af forskriftum en samt
bundin eðli sínu og trú því.
í kennslunni vill hún ekki pre-
dika eða miðla staðlaðri þekkingu,
heldur vekja og laða fram þörfina
til að birta sinn innri mann og
þora að sjá sjálfan sig.
Já, hún er stundum þungbúin
eins og haustregnið, stundum
kyrrlát eins og haustkvöld, stund-
um iðin, eins og valin til vorverka,
kát eins og vorvindur.
Hún á systur í blómgróðri ís-
lenskra heiða, þolreyndum af mis-
kunnarlausum stormum, en síðan
brosblíðastur alls á fögrum
sumardegi.
Meira veit ég ekki, en Hólmfríð-
ur er íslensk kona, óbuganleg og
hefur gert samning við ósætti sitt
gegn mannlegum forskriftum,
frjáls og stolt kona.
Má ég kynna Hólmfríði Árna-
dóttur. Reykjavík, 25. júlí,
Jón Ásgeirsson, tónskáld.
Þú svalar lestrartKMf dagsins
á sírlum MoPírmW ✓
Hugvit
Og
smekkvísi
Hilda hf. hefur um árabil verið í
fararbroddi í hönnun á fallegum og
glæsilegum ullarflíkum.
Það eru hönnuðir eins og Steinunn
Bergsteinsdóttir sem með hugviti
og smekkvísi hafa laðað fram
eðliskosti íslensku ullarinnar og
skapað einstæðan tískufatnað.
Borgartuni 22, Reykjavík
Hönnun: Margrét Gunnlaugsdóttir - Ljósmyndun: ímynd, Guðmundur Ingólfsson - Etni: Hespulopi frá Gefjuni
TISKUBLAÐIPRJONI
Tímaritið LOPI OG BAND,
sérhannaðar íslenskar prjóna-
uppskriftir ásamt ymsu öðru efni.
Áskriftarsími 29393. Kemur út 4 sinnum á ári.
Upplag 7.500 eint.
tískublað í prjóni