Morgunblaðið - 14.08.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1985
B 7
Þjóðminjasafn Islands nr. 10886.
Halldóra Ásgeirsdóttir.
Hluti af spjaldofnum borða úr ull-
arbandi. Breidd um 6,5 cm. Frá 15.
öld eða ef til vill eldri.
úr hlut klaustranna en biskups-
setranna. Varðandi Skálholtsstað
eru heimildirnar að vísu mjög
óljósar, en á Hólastað virðist
mega merkja verulega starfsemi á
sviði textíllistar, ekki aðeins við
upphaf tímabilsins, heldur einnig
undir lok þess.
í biskupstíð Jóns Ögmundsson-
ar á Hólum (1106—1121) er sagt
frá hinni hreinferðugu og lærðu
jungfrú Ingunni Arnórsdóttur,
sem saumaði klæði með helgra
manna sögum. Úr biskupstíð Jóns
Arasonar (1524—1550) er vitað að
fylgikona hans, Helga, sem orð-
lögð var bæði fyrir fegurð og hag-
leik til hannyrða, og dótturdóttir
hennar, Þóra Tumasdóttir (Tóm-
asdóttir), saumuðu báðar fyrir
Hóladómkirkju, Helga tíu aura
virði ár hvert. Enn ein nafngreind
kona, sem menn vita þó ekki frek-
ari deili á, Ingibjörg Þorvarðs-
dóttir, vann að útsaumi í þágu
dómkirkjunnar, ef til vill á seinni
hluta 15. aldar. Hvað klaustrin
snertir er heimild um að nunnurn-
ar í Kirkjubæ gerðu um 1400, að
fyrirlagi Vilchin Skálholtsbiskups,
stórfenglega refla, refilsaumuð?
veggtjöld um Stórustofu á bisk-
upssetrinu, og önnur heimild frá
1413 greinir frá því að tveimur
ungum stúlkum var komið til lær-
ingar í Reynistaðarklaustri. Auk
þess er varðveittur útsaumur með
áletrun þar sem fyrir kemur titill,
nafn og heimili síðustu abbadísar
á Reynistað (1508—1551), lög-
mannsdótturinnar, Sólveigar
Rafnsdóttur. Eitt dæmi enn er
nafngreind kona úr leikmanns-
stétt, að öðru leyti óþekkt, Arn-
þrúður Árnadóttir, sem sam-
kvæmt samningi frá 1489—90, átti
að sauma eina rúmábreiðu á ári
fyrir ábótann í Munkaþverár-
klaustri.
Dæmin þrjú um nunnurnar í
Kirkjubæ, Arnþrúði Árnadóttur
og Helgu Sigurðardóttur, benda til
að hannyrðir hafi, að minnsta
kosti er líða tók á miðaldir, verið
viðurkennd starfsgrein með heldri
konum og að þær bæði innan og
utan klausturveggja kunni að hafa
unnið nánast sem atvinnumenn á
þessu sviði.
Af Búalögum virðist mega
draga þá ályktun að þetta hafi
ekki verið óalgengt því að þau til-
greina sérstaka taxta fyrir hverja
alin af saumuðu líni og eins fyrir
íslenskar ábreiður. Einhverjar
ástæður hafa legið til þess að fast
verðlag hefur verið á þessari
framleiðslu og er freistandi að
hugsa sér að til dæmis útsaumaðir
reflar hafi á þessum tíma verið
meir eða minna stöðluð vara á ís-
landi, unnin gegn þóknun eða til
sölu eftir pöntun.
Elsa E. Guðjónsson
DÓMNEFNDIN sem valdi verkin á Norrænu vefjar-
listarsýninguna 1985—86. Frá vinstri: Britta Erixon frá
Svíþjóö, Kirsti Bantanen frá Finnlandi, Ragnhild Monsen
frá Noregi, Inger-Johanne Brautaset varaformaður fram-
kvæmdanefndar Norrænu vefjarlistarsýningarinnar, Ma-
iken Monnerup frá Danmörku og Ása Ólafsdóttir frá
íslandi.
jL . /
The Glimákra
Looms.
hjá okkur
Rakgrihdur
Skeiöar, og adrir fylgihlutir í vefstóla
Vefjargarn
ISLENSKUR
HEIMILISIÐNAÐUR
Hafnarstræti 3, sími 11785
imr
4