Morgunblaðið - 01.10.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGAR1. OKTÓBER1985
B 5
Morgunblaöið/Þórarinn Ragnarsson
• Árni Tómas Ragnarason læknir og sonur hans Ragnar sigruðu í
tvíliðaleiknum í opna „Þrekmótinu" f tennis. Þeir feðgar eru með
snjöllustu tennisleikurum landsins og hafa leikið mjög vel á mótum í
sumar.
Þrekmótið í tennis:
Feðgar sigruðu
í tvíliðaleik
UM HELGINA lauk þrekmótinu í
tennis, en mótið var haldiö á veg-
um Þrekmiöstöðvarinnar ■ Hafn-
arfirði á ágætum völlum hennar.
Keppendur voru alls 22 og var
keppt í einliðaleik í A- og B-flokk-
um ásamt tvíliðaleik.
í A-flokki sigraöi Kjartan
Óskarsson, en hann sigraöi Árna
Tómas Ragnarsson í úrslitaleik
7—5, 6—1. Árni leiddi leikinn
framan af, en síöan náöi Kjartan
yfirhendinni og lék glæsilega í ööru
setti, sem hann vann mjög örugg-
lega. Af öörum úrslitum í A-flokki
má nefna, aö Ragnar Tómas Árna-
son 15 ára sigraöi nýbakaöan is-
landsmeistara í tvenndarleik, Guö-
mund Eiríksson, óvænt, en mjög
örugglega 6—1, 6—1. Náöi Ragn-
ar með því 3.-4. sæti á mótinu.
I B-flokki fóru fram margir jafnir
og spennandi leikir. I undanúrslit-
um sigraöi Margrét Svavarsdóttir,
islandsmeistari kvenna 1984,
Kolbein Kristinsson i jöfnum og
spennandi leik 6—1, 1—6, 6—4
og Einar Asgeirsson sigraöi Victor
Urbancic 6—2, 6—2. Til úrslita
léku því Einar og Margrét og var
fyrsta sett jafnt og sþennandi, en
Einar vann þaö þó aö lokum 6—4
og svo annaö sett og þar meö leik-
inn auöveldlega 6—0. Einar, sem
er 17 ára, hefur aöeins leikiö tenn-
is í 1 ár og kom því sigur hans
töluvert á óvart, en hann lék mjög
vel og hefur hann sýnt skjótar
framfarir.
I tvíliðaleik sigruöu feögarnir
Árni Tómas og Ragnar Tómas þá
Christian Staub og Kristján Bald-
vinsson í jöfnum og spennandi úr-
slitaleik 4—6, 6—2, 6—4.
Þrekmótiö var síöasta tennis-
mót sumarsins, en þó er fyrirhug-
aö aö koma á skyndimóti í Þrek-
miöstööinni eftir 2 vikur í sam-
bandi viö tokahóf tennisleikara,
sem veröur haldiö í Þrekmiöstöö-
inni á næstunni.
• Pétur Björnsson gerir sig hér kláran fyrir aó skjóta að marki Þróttar
í leiknum a laugardaginn. Til varnar eru fjórir Þróttarar en þeir koma
engum vörnum við. Pétur skoraði alls fimm mörk í leiknum gegn
Þrótti. Morgunblaöiö/Bjarni
V| Vestfrost
FRYSTIK1STUR .
DÖNSK gœóavara
VESTFROST frystikisturnar eru búnar
hinum viöurkenndu Danfoss frysti-
kerfum.
Hverri VESTFROST frystikistu fylgja
1-2 geymslukörfur. Aukakörfur fáan-
legar á hagstæöu veröi.
VESTFROST frystikisturnar eru allar
búnar sérstöku hraöfrystihólfi og
einnig má læsa kistunum. Innrabyrði
er úr rafgalvanhúöuöu stáli með inn-
brenndu lakki.
VESTFROST verksmiöjurnar i Esbjerg
er ein af stærstu verksmiöjum sinnar
tegundar á Noröurlöndum.
201 Itr. 19.295.00
271 Itr. 21.149.00
396 Itr. 23.978.00
506 Itr. 27.641.00
LÍTRAR 201 271 396 506
BREIDD cm 72 92 126 156
DYPT|Cm án HANDFANGS: 65 65 65 65
HÆÐ cm 85 85 85 85
FRYSTIAFKÖST pr SÓLARHRING |kg 15 23 30 30
ORKUNOTKUN pr SÓLARHRING kWh 1,2 1,4 1,6 1,9
^ Afsláttarverð vegna smávægilegra útlitsgalla