Morgunblaðið - 08.10.1985, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER1985
5
Aurskriða fellur f Seyðisfirði:
Skriðunni fylgdi
ógurlegur hávaði
— mildi að enginn slasaðist, segir Svandís Jónsdóttir á Selsstöðum
„ÞAÐ fylgdi þessu ógurlegur hávaði og læti og við vissum fyrst í stað ekki hvað gerzt hafði
þó okkur grunaði reyndar að skriða hefði fallið úr fjallinu. Þetta var um sjö leytið á föstu-
dagskvöldið og það mátti ekki tæpara standa, að ekki yrðu slys á mönnum. Tveir menn
héðan voru að koma frá Seyðisfírði eftir veginum rétt áður en skriðan féll og rétt á eftir
kom annar bfll að skriðunni, en til allrar hamingju slasaðist enginn,“ sagði Svandís Jóns-
dóttir á Selsstöðum í Seyðisfírði, í samtali við Morgunblaðið.
V »C''ÍS.,,
.... ...*
Svandís sagði, að þegar betur
hefði verið að gáð hefði komið
í ljós að stór skriða hefði fallið
úr fjallinu Grýtu ofan við bæ-
inn. Fjallið væri um 1.000
metra hátt og upptök skriðunn-
ar væru í 700 til 800 metra
hæð. Hún hefði fallið alveg
niður undir sjó, verið um 300
metra breið, þar sem breiðast
var og um 100 metra breið þar
sem hún hefði farið yfir veginn.
Þykktin hefði verið 3 til 4
metrar á veginum en um 2
metrar víðast annars staðar.
Þá hefði myndazt stór geil í
fjallið við upptök skriðunnar.
Svandís sagði, að skriðan
hefði gjöreyðilagt fjárrétt fyrir
um 1.500 fjár og tekið súrhey úr
flatgryfju nálægt bænum. Þá
hefði hún valdið rafmagnsleysi
með því að brjóta rafmagns-
staur og ennfremur hefði hún
brotið girðingar og fyllt skurði.
Skemmdir á landi væri einnig
miklar, tveir til þrír hektarar
ræktaðs lands hefðu farið undir
ósköpin og auk þess mikið land
annað. Þá væri enn ekki ljóst
hvort fé hefði lent í skriðunni.
„Það hafa af og til komið
smáslettur hérna úr fjallinu
enda er einhver hætta á aur-
skriðum og snjóflóðum talin
hér. Við höfum hins vegar aldr-
ei séð neitt þessu líkt og það
er hreinlega stór gígur í fjallinu
við upptök skriðunnar. Það er
ljóst að við höfum orðið fyrir
tilfinnanlegu tjóni, en hve
mikið það er, vitum við ekki
enn,“ sagði Svandís Jónsdóttir.
Þegar byrjað var að ryðja veginn að Selsstöðum kom f Ijós að þykkt skrið-
unnar var þar vfða á fjórða metra en breiddin um eitt hundrað metrar. Ófært
var yfir skriðuna nema í sjávarmálinu.
Morgunblaðið/Kjartan Aðalsteinsson
Skriðan féll úr 700 til 800 metra hæð úr fjallinu Grýtu og myndaðist talsverð
geil í fjallið við upptök hennar. Skriðan var breiðust um 300 metrar og
þykkust á fjórða metra.
Vestmannaeyjar:
Farandverkafólk hótar upp-
sögnum vegna fæðiskostnaðar
Vestmannjteyjum, 7. október.
MEGINÞORRI farandverkafólks,
sem nú er við störf í fiskvinnslustöðv-
unum í Vestmannaeyjum, hefur skrif-
að undir yfirlýsingu um að það munu
hætta störfum næstkomandi sunnu-
dag nema samið verði fyrir þann tíma
um verulega lækkun fæðiskostnaðar
í mötuneyti stöðvana. Frystihúsa-
menn í Eyjum munu fjalla um þessa
kröfu farandverkafólksins á næstu
dögum.
Nú um síðustu mánaðamót var
tilkynnt um 20% hækkun fæðis-
kostnaðar í mötuneyti stöðvanna
eða úr 400 krónum á dag fyrir fullt
fæði í 480 krónur. Eftir viðræður
við fulltrúa farandverkafólks var
fallið frá þessari hækkun, en verka-
fólkið vill fá fram verulega lækkun.
Var fæðiskostnaður kannaður á 12
stöðum öðrum á landinu og er
meðaltalsverð á þessum stöðum 234
krónur á dag. Farandverkafólkið
hélt fund um málið á sunnudaginn
og kom þar meðal annars fram, að
verkamaður á þriggja ára taxta er
nú í 31 klukkustund að vinna fyrir
fæði í eina viku i mötuneytinu. Á
fundinum skrifuðu um 60 manns,
sem mun vera um 90% starfandi
aðkomufólks í Eyjum, undir yfirlýs-
ingu þess efnis, að vegna mikillar
óánægju með fæðiskostnað í mötu-
neyti stöðvanna miðað við aðra
staði, sjái fólkið sig knúið til þess
að hætta störfum með viku fyrir-
vara takist samningar ekki um 234
króna fæðiskostnað á dag.
Að sögn Arnars Sigurmundsson-
ar hjá Samfrosti er mötuneyti
frystihúsanna í Eyjum rekið af
einkaaðila, en frystihúsin greiða
fæði starfsfólks töluvert niður.
Arnar sagði að erfitt væri að bera
saman fæðiskostnað í mötuneytum
fiskvinnslustöðva þar sem á nokkr-
um stöðum sé eingöngu hádegis-
matur og kaffi tvisvar á dag, en
öðrum svo sem Vestmannaeyjum
selt fullt fæði alla daga ársins. Þá
kvað Arnar það vera sjónarmið
fiskvinnslustöðvanna að ganga ekki
of langt í niðurgreiðslu fæðis, þar
sem það skapaði aðstöðumun gagn-
vart heimafólki, sem væri um 90%
af starfsfólki húsanna. í dag er
starfsfólk húsanna rúmlega 700
manns, þar af 70 aðkomnir og eru
20 útlendingar í hópnum.
HKj
Betri en
nokkru sinni
MAZDA 626 árg/86
Verðlaunabíllínn Mazda626 er nú kominn
meðýmsum útlitsbreYtingum,nýrri innrétt-
ingu og fjölmörgum tæknilegum nýjungum.
MAZDA 626 GLX 2.0L með vökvastýri,
rafknúnum rúðum og læsíngum og öllum
lúxusbúnaði kostar nú frá aðeins 549.000
krónum. Opið laugardaga frá 10—4.
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23 sími 812 99
gengisskr 4.10.85