Morgunblaðið - 13.12.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
B 5
i
í
rúsínum í og smakkiö til með
brennivíninu eöa koníakinu, og
sætiö ef meö þarf.
Jólaglögg
(óéfengt)
Blandiö saman einum hluta af
sólberjasaft og einum hluta af
eplasafa í pott, bætiö söxuöum
möndlum og rúsínum í eftir smekk,
nokkrum negulnöglum og kanel-
stöngum, þetta er hitaö og smakk-
að til og má setja vatn og sykur
eftir smekk.
Barnaglögg
(6—8 glös)
V41. vatn
1 dl. sykur
1 kaneistöng
% I. vinberjasafi (druesaft)
V«I. Ylliberjasafi (hyidebærsaft)
2 dl. rúsínur
10 saxaöar möndlur
2 appelsinur.
Sjóöiö vatnið meö sykrinum og
kanelstöngunum, bætiö ávaxtasaf-
anum og rúsínunum út í, hitiö aö
suöu aftur. Síöast eru möndlurnar
ásamt appelsínunum í sneiöum
settar út í.
Meö þessu er mjög gott aö gefa
krökkunum smá pylsur og/eöa
ostateninga.
Skemmtilegt er aö bera jóla-
glögg fram í glerkönnum meö
hanka og teskeiö i til aö geta gætt
sér á rúsínunum og möndlunum
sem setjast á botn glassins. Eins
er rétt aö gæta þess aö hafa eitt-
hvaö undir heitt glasiö ef dúkur
er ekki á boröi. Fram hefur komiö
aö Ijúft sé aö boröa heitar eplaskíf-
ur meö jólaglöggi, en til þess aö
geta bakaö þær, þarf eplaskífu-
pönnu, en fyrir þá sem hana eiga
er hér mjög góö uppskrift aö epla-
skífum sem langa-langamma list-
dansarans danska Vivi Flindt átti,
en Vivi fékk hana hjá afa sínum
sem var bakari.
Eplaskífur
275 gr. hveiti
3 egg
'h tesk. natron
rifinn börkur af einni sítrónu
1 tsk. kardemommur
1 msk. sykur
'h I. súrmjólk.
2—3 matarepli, sem soöin eru
smá stund í sykurvatni ca. 3 mín.
síðan skorin smátt.
Feiti til steikingar. Best er aö
blanda saman 1 hluta svínafeiti 1
hluta smjörs.
Hveiti, egg, natron, sítrónubörk-
ur, kardimommur og sykur eru
sett í skálina, helmingi súrmjólkur-
innar hrært saman viö og síöan
afganginum smátt og smátt. Nú
má deigiö gjarnan bíöa i ca. 15
mín.
Síðan steikt í talsverðri feiti,
holur pönnunnar fyllast aö %, epla-
bitar settir í, og skífunum er snúiö
meö bandprjóni.
Eplaskífurnar eru upplagöar til
geymslu í frysti, og hitaöar eru þær
ferskar og góöar.
Texti: Ásthildur Pétursdóttir
Asetning.
Alltáeinu
4.500,-
Ath.: Verðið gildir að-
eins ef einstakur pakki
er tekinn allur.
Einnig er til skíðasett barna
str. 90-110 cm meö og án
öryggisbindinga.
Verð: M/öryggi 3.085,-.
Verð: Gormabindingar f. alla
skó 2.250,-
hummel'T
Ármúla 38. Sími 83555.
þarf aö ganga í gegnum".
Hinum megin réttvísinnar eru
svo Sólveig og Koggi, mismikiö aö
vísu, en Sólveigu kynnast Daníel
og Þór í gegnum undarlegan akst-
ursmáta hennar á hringtorgi einu
hér í bæ. „Hún kemst nú fljótt aö
því aö þessir piltar eru ekki upp á
marga fiska og er fljót aö sjá í
gegnum þá,“ segir Lilja, en auk
hringakstursmálsins kemst Sól-
veig ekki hjá því aö kynnast þeim
betur þar sem hún er frænka
glæpakvendanna tveggja, býr þar
aö auki í sama húsi og lendir m.a.
sökum skyldleikans í ævintýraleg-
um eltingaleik sem endar í Sunda-
höfninni.
Þaö koma reyndar fleiri viö sögu
i „hringakstursmálinu", því aö
Koggi, þrátt fyrir þaö aö vera utan-
garösmaöur í þjóöfélaginu, er
sannur „viöskiptavinur" lögregl-
unnar og fljótur aö koma þeim til
hjálpar á raunastundu — eins og
í fyrrnefndu hringtorgsmáli. Sig-
uröur Sigurjónsson segir Kogga
vera „fremur léttan á bárunni og
mann sem hafi tekið á sínu lífi eins
og hverri annarri vinnu. Samstarf
hans viö lögregluna er allt virkilega
gott enda færi í verra ef svo væri
ekki,“ segir Siguröur, en upplýsir
ekki nánar fyrir hvorn aöilann þaö
kæmi sér verr. Þaö kemur væntan-
lega í Ijós á hvita tjaldinu, sem og
sá boöskapur sem Fiosi segir vera
myndarinnar fyrst og fremst — að
meö löggum skal land byggja.
„Negra-
kossar
aldrei
meir“
— spjallað viö „glæpa-
kvendin“ tvö, Sigurveigu
Jónsdóttur og Guðrúnu
Þ. Stephensen
aö er ekki nóg aö hafa
lögregluna, aörir veröa
víst aö koma til viö aö
skapa henni verkefni.
Þaö er einmitt hlutverk þeirra Hlín-
ar og Laufeyjar í Nýju lífi 3, tveggja
roskinna kvenna sem hafa lítillega
afvegaleiöst á braut réttvisinnar.
Þannig er ekki laust viö aö þær
tengist löggæslunni í borginni, auk
þess sem þær eiga unga frænku
„Sólveigu", sem þeir Daníel og Þór
telja sig þurfa aö hafa afskipti af.
I hlutverkum þeirra eru þær Sigur-
veig Jónsdóttir og Guörún Þ. Step-
hensen, sem segja þær stöllur vera
aldeilis venjulegar konur og vel
þenkjandi, „þó þær hafi lítillega
freistast til aö krydda tilveruna
meö uppátækjum sem kannski eru
ekki á allra færi,“ eins og Guörún
kemst aö oröi. „Já, svo er náttúru-
lega stundum þörf á sjálfsbjargar-
viöleitninni, t.a.m. iáta þessar
sómakonur fólk ekki drepast úr
hungri, sér í lagi ekki gesti, og þá
veröur stundum aö finna einhver
úrræöi,” bætir Sigurveig við. Þær
stöllur segja vinnuna viö Nýtt líf 3
hafa veriö ákaflega skemmtilega
„og svo fengum viö svo góðan mat
aö þaö var tilhlökkunarefni upp á
hvern einsta dag. Þaö er sko
nauösynlegt aö hafa fólk eins og
Soffíu Jakobsdóttur og Ástríöi
Guðmundsdóttur viö eldamennsk-
una,“ segir Guörún. Þegar næringu
ber á góma fer Sigurveig aö hlæja
og segir aö minnistæöasta atvikiö
sitt úr kvikmyndatökum tengjast
henni, „og ég sver aö aldrei skal
ég boröa negrakossa á ævinni
oftar. Þaö var þegar Guörún átti
aö hrista upp í gosflösku og láta
spýtast í andlitiö á Karli Ágústi á
meöan ég boröaöi negrakoss.
Fannst voöa gaman aö mega fá
mér nammi meöan á tökum stóö,
en þegar búiö var aö taka atriöiö
aftur og aftur og ég haföi kláraö
hvern negrakossinn á fætur öörum
fór mesta gamaniö af,“ segir Sigur-
veig og Guörún segir aö þar fyrir
utan hafi Sigurveig tuggiö vindl-
astubba í gríö og erg í hlutverkinu.
„Já, þetta var allt ósköp skemmti-
legt,“ segir Sigurveig, „ekki
kannski síst þaö aö kvikmyndatök-
urnar fóru mikiö til fram aö nóttu
til og maður las úr andlitum ná-
grannanna - ja lífiö á þessum leik-
konum - þegar viö komum heim úr
vinnunni á morgnana! En svona
er þetta nú, þaö er ekki auövelt
aö fremja einhver „prakkarastrik"
ídagsbirtu."
Glæpakvendin tvö viö vafasama iöju ásamt alsaklausum starfsmanni hitaveitunnar. F.v. Sigurveig Jóns-
dóttir, Þórhallur Sigurðsson og Guörún Stephensen, en Skódinn kemur einnig talsvert viö sögu í athæfi
þeirra kvennanna.