Morgunblaðið - 13.12.1985, Page 6

Morgunblaðið - 13.12.1985, Page 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985 KVIKMYNDAGERÐ Edda Heidrun Backman Spjallad vid medlimi leikhópsins um kvikmyndina sem verdur frumsýndá annan dag jóla Ekki veröur annaö sagt en aö þaö geti haft margvíslegar afleiö- ingar aö bjóöa erlend- um kennara og kvik- myndageröarmanni gistingu þá daga sem hann dvelur á islandi í millilend- ingu. Kynna hann fyrir vinum og samstarfsmönnum í leikhóp sem er á leiöinni til Isafjaröar. Fá einum fiugmiöa ofaukið frá isafjaröarbæ og ákveöa aö bjóöa útlendingnum meö. Og fyrr en varir er hann farinn aö ræöa um ítalska sól og þaö í ísfirsku roki. Eitt leiöir af ööru og á annan dag jóla verður frumsýnd í Regnboganum kvikmynd leik- hópsins Svart og sykurlaust, sem útlendingurinn umræddi, Lutz Konermann, samdi handrit aö úr hugmyndum sem væntanlega vöknuöu í rokinu á ísafiröi, leik- stýröi, klippti og lék reyndar dálítiö í líka. Þaö var í aprílmánuöi, nánar tiltekiö þann sextánda sem kvik- myndatökur fóru af staö og þeim lauk þann 7. julí. í millitíöinni haföi íslenski hópurinn gert víöreist, en hann samamstóö af leikurunum Eddu Heiörúnu Backman, Kol- brúnu Halldórsdóttur, Hönnu Mar- íu Karlsdóttur, Guöjóni Pedersen, Guöjóni Ketilssyni og Þresti Guö- bjartssyni, auk þeirra Matthíasar Jóhannessonar, matráösmanns, Hilmars Oddsonar, aöstoöarhljóö- manns og Þorgeirs Gunnarssonar, aöstoöarleikstjóra (og þeim sem upphaflega átti sökina á þessu öllu með því aö bjóða Konermann, sem tengdist sama kvikmyndageröar- skóla og þeir tveir síöastnefndu hafa numiö viö, gistingu í miililend- ingunni). Þar aö auki komu fleiri íslendingar viö sögu varöandi gerö myndarinnar, Pótur Einarsson leik- stýröi leikriti sem er hluti af mynd- inni og Egill Ólafsson samdi viö þaö tónlist. Viö leikritiö geröi svo Guöjón Ketilsson leikmynd og búninga og lék þaö hlutverk einnig í myndinni, en hún fjallar um leik- hóp sem gerir í grófum dráttum þaö sem samnefndur leikhópur, þ.e. Svart og sykurlaust haföist aö viö gerö myndarinnar, en myndin er svokölluð „road-movie“ þar sem hún er kvikmynduö í sömu at- burðaröö og gerist i handriti. Þannig hófst leikurinn og kvik- myndatakan á Snæfellsnesi, barst þaöan til Reykjavíkur þar sem sól- fatnaöi og fleiru var dempt í töskur og þrítugri langferöabifreiöinni Skúla T„ sem hópurinn hefur haft til umráöa á feröalögum um landiö, komiö af staö áleiöis til útlanda. Þvínæst hittist allur hópurinn og þá meötaldir þýsku kvikmynda- geröarmennirnir, bæöi þelr sem hófu feröina á Snæfellsnesinu og hinir sem bættust í hópinn á italíu. Undir ítalskri sól var svo ferðast í tvo mánuöi og þá farin sú ieiö niöur til Sikileyjar sem leikstjórinn haföi áöur valiö. Komiö viö í ýmsum þorpum, leikiö á þorpstorgum og kvikmyndaö á leiöinni. Reyndar tvískiptist leiö hópsins í myndinni þar sem ein persónan, sem Edda Heiörún Backman leikur, hittir fyrir ungan Þjóöverja og tekur meö honum nokkur hliöarspor viö þá ieiö sem leikhópurinn annars fer. Þjóöverjann leikur Konermann, en þess ber aö geta aö þaö er ekki einasta leikhópurinn í myndinni sem heitir sama nafni og sá sem hann leikur, leikararnir halda sín- um gælunöfnum, „þó aö þetta sé nú engin heimildamynd um Svart og sykurlaust, langt í frá,“ eins og Kolbrún Halldórsdóttir kemst aö orði. „Heimildargiidi myndarinnar er hins vegar þaö, aö viö hófum þetta feröalag og komum úr þvi fullviss um aö islendingar heföu allir verið italir í fyrra lífi!" Gildi þessarar staöhæfingar ætti líkleg- ast aö koma í Ijós viö sýningu myndarinnar, en eftirvinnslu henn- ar lauk í Róm í sl. viku. Endanlega filman kemur svo með leikstjóran- um hingaö þegar líða tekur á mán- uöinn, en myndin er í breiötjalds- formi og kvikmynduð í svart/hvítu. Framleiðendur eru Svart og sykur- laust annars vegar og Optische Werke hins vegar, en kostnaöur viö gerö myndarinnar er um tíu milljónir króna, aö sögn aöstand- enda og eru þá meötaldir hlutir eins og vinna viö æfingar og upp- setningu á leikritinu áöur en kvik- myndatökur hófust. HANNA MARÍA KARLSDÓTTIR leikkona „og sú elsta í hópnum og myndinni" er sú eina þeirra í Svörtu og sykurlausu sem hefur áöur fengist viö kvikmyndaleik. „Þaö var í Gullsandi þegar ég keyröi á Kirkjubæjarklaustur til aö keyra þar eins og vitlaus manneskja fyrir framan kvikmyndatökuvélarnar í fjóra daga og keyra svo í bæinn aftur. í þessari mynd fékk ég hins vegar aldrei aö setjast undir stýri," segir hún, Lýsir hlutverki sínu svo: „Þetta er mjög alvarlega leikkona og ábyrgöarfull, týpan sem fær heimþrá og svona. Einhvernveginn ímyndaöi ég mér aö þessi kona ætti barn heima á íslandi og haföi þaö til hliösjónar í leiknum, þó að þaö kæmi ekki fram í myndinni eöa í handritinu," segir hún og bætir viö aö þaö hafi veriö nokkuö skemmtilegt þar sem hún eigi ekki barn sjálf. „Og svo svona fyrir utan hlutverkiö þá var ég auövitaö af- skaplega óstressuö og skemmti- leg!" Um hvort aö reynsla sl. sumars hafi komiö henni á óvart segir Hanna María aö í upphafi hafi sig ekki dreymt um aö geta tekiö þátt í ævintýrinu. „Ég er fast- ráöin hjá Leikfélagi Reykjavíkur og leikárinu lýkur ekki fyrr en í júní, þannig aö ég átti ekki von á aö geta verið meö. Hins vegar reynd- ust þeir hjá LR svo yndislegir aö hiiöra tíl, þannig aö þessi draumur varö aö stórskemmtilegum veru- leika. Og ef ég yrði beöin um aö gera þetta á nýjan leik þá er alveg öruggt aö svariö yröi „Já“. Feröin var stórkostieg reynsla, ekki síst vegna þess aö þarna fékk maður tækifæri á aö spreyta sig samtímis á tveimur ólíkum hliöum leiklistar- innar, þ.e. kvikmyndaleiknum ann- ars vegar og götuleikhúsinu hins vegar, sem verður alltaf breytilegt frá einum staö til annars." EDDA HEIÐRÚN BACKMAN leikkona er í hlutverki þeirrar sem fer örlítiö frábrugöna leiö um italíu, en aörir í hópnum. Gerist þaö í Koibrún Halldórsdóttir Guðjón Pedersen Þröstur Guöbjartsson framhaldi af kynnum hennar af Þjóöverjanum, sem Konermann leikur. Um hlutverkið segir Edda aö nafna sín sé mjög ábyrgöarfull, drífandi og raunsæ. „Hún er skap- stór líka og ekki laust viö aö mér finnist hún nokkuö tilfinningarík og ítölsk í sér. A.m.k. ítalskari en aörar konur sem þessi Þjóöverji hittir." Reyndar segist Edda Heiðrún ekki vera frá því aö þaö aö vera ítalskur í sér en islendingur samt eigi ekki einvöröungu viö um per- sónurnar í myndinni. „Ég held aö leikstjórinn hafi oröiö mjög hissa á hve skapmikill þessi hópur var oft, þ.e. stutt á milli hláturs og gráturs og tilfinningar manna látn- ar í Ijós, sem er talsvert frábrugðið Þjóöverjum sem eru lítiö aö flíka sínum tilfinningum. Ætli viö höfum ekki bætt hvert annaö þannig upp, íslendingarnir og Þjóðverjarnir," segir Edda Heiörún. Ekki verður annaö sagt en aö hún hafi nýtt sl. sumar til hins ítrasta hvaö kvik- myndaleikinn varöar. Eftir ítalíu fór hún, eins og reyndar fleiri út hópn- um, til Loömundarfjarðar og lék þar annaö aöalhlutverkiö í kvik- mynd Hilmars Oddsonar „Eins og skepnan deyr,..". „Þær kröfur sem geröar eru til mín í þessum tveimur myndum eru gerólíkar, en „Svart og sykurlaust" var veröugt byrjunarverkefni og þar læröi ég margt, sérstaklega hvaö tæknina varðar og þaö aö geta leyst úr aöstæöum sem koma upp í kvik- myndaleik og eru frábrugönar því, sem þekkist úr leikhúsi." Svo hlær hún og bætir viö: „Og ég sem var svo viss um aö þaö væri leiöinlegt aö leika í kvikmynd. Þaö reyndist ööru nær. Svo stendur maöur bara svo mikilli reynslu ríkari eftir þetta Guðjón Ketilsson 'i MMðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.