Morgunblaðið - 23.01.1986, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.01.1986, Blaðsíða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, VmgKnTI/MVINNULÍF FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986 Markaðsrannsóknir Afhverju segirfólk þetta? Því getur markhópurinn kannski svarað HVERJIR erum við og hvað segir fólk um okkur? Hver er ímynd fyrirtækisins og hvemig vðrur framleiðum við? Fjölmargir forráðamenn ís- lenskra fyrirtækja hafa spurt sig þessara spuminga á liðnum árum og nú nýverið hóf ráðgjafafyrirtæk- ið Hagvangur að bjóða upp á svo- kallaða „markhópa" eða umræðu- hópa til að fá svör við þessum spumingum ogöðrum. „Markhópur" er umræðuhópur sem kemur saman einu sinni, í 4—5 klst., og ræðir á opinskáan hátt um málefni þess fyrirtækis sem þess æskir. Reynt er að fá svör við spumingunum hér að ofan. Þátttakendur í umræðuhópnum eru 5—7. Þar eru aðilar sem skipta við viðkomandi fyrirtæki, menn sem skipta við samkeppnisfyrirtæki, menn úr viðkomandi viðskiptagrein og loks aðilar sem ekki tengjast viðskiptagreininni á nokkum hátt en hafa náð árangri á sfnu sviði. „Markhópur“ getur verið undan- fari þátttöku í t.d. spumingavagni Hagvangs eða komið saman eftir slíka markaðskönnun til ræða nið- urstöðumar. Þá getur „markhópur" staðið einn sér. Dýrmætar upplýsingar Að sögn Gunnars Maack hjá Hagvangi, hafa þeir „markhópar" sem fyrirtækið hefur komið á, skil- að mjög góðum árangri: „Þær upplýsingar sem framkvæmdastjór- ar fyrirtækjanna hafa eftir svona markhóp eru mjög dýrmætar því þama fá þeir upplýsingar sem þeir hafa ekki tækifæri til að fá annars staðar." Ef fyrirtæki hefur til dæmis orð á sér fyrir að veita slæma þjónustu er það hlutverk „markhópsins" að Nll ER SPURNINGIN EKKI LENGUR HVERNIG BÍL SÉ BESI ■EI'TOJT HELDUR HVAÐA TOYÖIA SÉ ÁNÆGJULEGAST APfJGNAST. III i 'I—Im ii W V I þeim löndum sem eftirlit neytenda og samtaka þeirra fylgist vel meö gœöum vöru og þjónustu, t.d. í Þýskalandi, Svíþjóö, Banda- ríkjunum og Kanada, hefur sýnt sig aö Toyota bifreiöar standa öörum framar í endingu; þeir bila minna en aörir bílar og eru þar meö ódýrari í rekstri og betri í endursölu en aðrir sambœrilegir bílar. Þýska blaöiö „ADAC MOTOTWELT" sem er mólgagn „FÍB" þarlendra, hefur í sambandi viö „bifreiöaeftirlitiö þýska" (Transport Uber- wachung — TUV), gert athuganir á bilana- tíöni fólksbifreiða. BILAR SEM BILA MINNA EN AÐRIR OG ENDAST LENGUR Annaö áriö í röö hafa Toyota Tercel og Toyota Corolla komiö út sem sigurvegarar. í Bandaríkjunum hefur „Consumer Re- port" sem er tímarit um neytendamál gert sambœrilega könnun á bilanatíðni. 440.000 bílar voru athugaöir. Toyota var einnig þar meö lœgstu bilanatíönina. Sœnska blaöiö „Vi Bilágare" hefur allt síö- asta ár gert svokallað endingarpróf (Long- tidstest). Einnig þar var komist aö þeirri niöurstööu aö Toyota Tercel vœri sá bíll sem hag- kvœmastur vœri í rekstri og jafnframt sá bíll sem fólk geröi best kaup í. KANNANIR — Gunnar Maack, en að sögn hans geta upplýsingar sem forráðamenn fyrirtækja fá frá svokölluðum markhópum eða umræðuhóp- um verið mjög dýrmætar. komast að þvf hver ástæðan er. Reynist niðurstaðan sú að fyrir- tækið veiti í raun góða þjónustu er hlutverki „markhópsins" ekki lokið. Það þarf að komast að því hvers vegna fólk segir að fyrirtækið veiti slæma þjónustu. „! langflestum tilfellum er ein- hver ástæða fyrir þvf að fólk segir þetta og f langflestum tilfellum fínnum við hana,“ segir Gunnar. Ástæðan getur verið nafn fyrirtæk- isins, staðsetning, húsnæði eða einstakir starfsmenn — allt frá sím- verði að forstjóranum. Opnar o g hrein- skilnar umræður Til að vinna „markhópsins" skili árangri þurfa forráðamenn viðkom- andi fyrirtækis að vera mjög opnir og tilbúnir til að hlýða á gagnrýni. Umræður hópsins skoðast sem trúnaðarmál enda til þess ætlast að þær séu hispurslausar og að þátttakendur segi skoðanir sfnar umbúðalaust. í lok fundarins eru helstu niður- stöður hans settar á blað og farið yfír þær með forráðamönnum fyrir- tækisins. „Okkar reynsla er sú að menn séu mjög opnir fyrir þessu. Þarna koma oft fram hlutir sem ekki hafa verið sagðir áður — eða ef þeir hafa verið sagðir þá hefur það ekki verið á réttum stöðum." Fyrirtæki vanda vafin? Þessi þjónusta er ekki hugsuð sem neyðarúrræði fyrirtækja í vanda. „Alls ekki og langt því frá,“ sagði Gunnar. „Mörg þessara fyrir- tækja sem hafa leitað til okkar eru mjög stöðug, fyrirtæki sem menn myndu líta upp til varðandi rekstur og skipulagningu. Og það segir sína sögu að það eru einmitt þessi fyrir- tæki sem eru að láta skoða sína starfsemi og eru kannski skrefínu framar en aðrir og það er engin tilviljun." Þá sagði Gunnar að íslensk fyrir- tæki stæðu að baki erlendum hvað varðar markaðsrannsóknir, vöru- þróun og almannatengsl — en væru þó að taka við sér. „Þau 'fyrirtæki sem ætla að lifa af verða að temja sér önnur vinnu- brögð — hér hafa aðstæður og ytri skilyrði breyst." TOYOTA^, TJöfóar til JQ fólks í öllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.