Morgunblaðið - 04.07.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.07.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1986 eftir. Engin kynning á námsefninu. Enginn námsstjóri til að samræma kennsluna. Skólahúsin liggja undir stórskemmdum vegna of lítils við- halds. Ráðstefna um heimilis- og hússtj órnarkennslu Árið 1982 boðaði menntamála- ráðherra til ráðstefnu um hússtjórn- arkennslu í skólum landsins. Ráð- stefnuna sóttu sextíu manns. Hún var fróðleg og vel undirbúin, mörg erindi flutt og í lokin skiluðu starfs- hópar áliti hver um sitt verkefni. Margt gott kom fram og gætti nokkurrar bjartsýni um árangur og að nú myndi loks rofa til í þessum málum. Þarna kom fram að kenn- araskortur er fyrirsjáanlegur, ekki hefur verið sinnt endurmenntun kennara. Verklegt nám ekki metið til jafns við bóklegt. Hjá öllum kom fram að þegar í stað ætti að vinna að því að skipuleggja námið og kynna það, einnig að þetta nám hefði mikið gildi fyrir þjóðfélagið. Ráðstefnan sýndi glöggt stöðu skólanna og námsefnisins í mennta- kerfinu er varð þó aðeins til að vekja falskar vonir um úrbætur, varð nokkurs konar helfró fyrir þessar stofnanir. Hvemig stendur á því að engra breytinga varð vart á eftir skal ósagt látið, en það eina áþreifanlega sem út úr ráðstefnunni kom var rit um hana þar sem birtar voru allar ræður og álit starfshópa og menntamálaráðuneytið gaf út. Eftir þetta hélt sama þrauta- gangan áfram fyrir skólastjóra og forráðamenn skólanna og engin svör hafa borist við áskorunum og ályktunum kvenfélagasambands ís- lands eða annarra. KI og önnur húsmæðra- fræðsla, ráðunauta- og leiðbeiningaþj ónusta Á árunum 1959—60 reyndi Kvenfélagasambandið ásamt Bún- aðarfélagi Islands að koma því til leiðar að stofnuð værir ráðunauta- þjónusta fyrir heimilin með svipuðu sniði og héraðsráðuneytaþjónustan en ekki varð af því að frumvarp yrði flutt um þetta á Alþingi. KÍ hafði um skeið einn heimilisráðu- naut á sínum vegum frá 1956 og fékkst með miklum semingi að styrkur KÍ væri hækkaður sem iaunum hans nam. Var það Stein- unn Ingimundardóttir sem vann við þetta til 1961. Var hún þá búin að halda sýnikennslu, námskeið eða flytja erindi hjá 90 kvenfélögum á landinu. Eftir þetta var ráðinn ráðu- nautur í handavinnu og starfaði hann í nokkur ár en þetta starf féll niður vegna fjárskorts. 1963 stofn- aði KÍ leiðbeiningastöð húsmæðra og hefur Sigríður Kristjánsdóttir veitt henni forstöðu. Þessi þjónusta er mikið notuð, en svo fór að ríkið þurfti að spara og hætta að greiða laun fyrir heimilisráðunaut og nú er þetta starf launað af mjög naum- um styrk ríkisins til KÍ en allir landsmenn eiga jafnan aðgang að Leiðbeiningastöðinni. Kvenfélagasambandið barðist einnig fyrir því að komið yrði upp rannsóknarstöð heimilanna en það hefur ekki tekist. KÍ hefur oft sótt um aukinn styrk til fræðslustarf- seminnar fyrir húsmæður og heimili landsins. Svörin hafa verið þau að félaga í KI geti borgað til sam- bandsins svo starfseminni verði haldið uppi. Fram að þessu hafa félagskonur verið nær eingöngu heimavinnandi húsmæður sem allir vita að engin laun hafa. Tillögrir og áskoranir Eftir samþykkt nýrra laga um hússtjórnarkennslu hafa landsþing og formannafundir KÍ ítrekað sent frá sér ályktanir til menntamála- ráðuneytisins, að búa betur að hús- mæðraskólunum og tryggja þeim starfsgiundvöll. Á landsþingi KÍ sem haldið var á ísafirði 1985 voru samþykktar svohljóðandi áskoranir: „26. landsþing Kvenfélagasam- bands íslands, haldið á Isafirði 3.-5. júní 1985, skorar á mennta- málaráðherra að láta nú þegar endurskoða lög um hússtjórnar- skóla nr. 53/1975 og bendir um leið á nauðsyn þess að samin verði reglugerð fyrir þessa skóla hið fyrsta og að skipaður verði náms- stjóri í fullt starf fyrir hússtjómar- fræðslu á öllum skólastigum. ... beinir því til fjármálaráð- herra og fjárveitinganefndar Al- þingis að fé verði veitt til gagn: gerðra endurbóta á húsum og hús- búnaði húsmæðraskólanna í landinu. Þingið bendir á að fast- eignir hússtjómarskólanna eru í niðumíðslu vegna lítils viðhalds. ... beinir þeim eindregnu til- mælum til menntamálaráðherra að sem fyrst verði gengið frá lagaleg- um tengslum Hússtjómarkennara- skóla íslands og Kennaraháskóla íslands og að jafnframt verði hrað- að byggingu kennsluhúsnæðis fyrir hússtjórn í tengslum við Kennara- háskóla íslands. .. . gerir þá kröfu til mennta- málaráðuneytisins að nám í hús- stjórnarskólum gefi réttindi til hærri launa þeirra er hafa lokið námi þaðan og verði metið inn í áfangakerfi framhaldsskóla til jafns við aðrar greinar. ... skorar á menntamálaráð- herra að stofna námsbraut í hús- stjórn, handíð og fleiri verk- og listgreinum fyrir kennara á fram- haldsskólastigi." Með þessum áskomnum fylgdu greinargerðir sem of langt mál er til að taka með hér. Á aðalfundi Hússtjórnarkennara- félags íslands árið 1984 kom fram í máli skólastjóra húsmæðraskól- anna að mjög lítið fé er ætlað á íjárlögum til viðhalds skólanna. Hafði aðeins einni milljón króna verið ætlað til viðhalds sex skóla árið 1984 og var þó húsnæði skól- anna fullnýtt fyrir nemendur ann- arra skóla þar sem ekki voru nægilega margir eigin nemendur. Send var áskorun þess efnis að fjár- veiting til viðhalds skólahúsunum yrði aukin þar sem þau lægju undir skemmdum. Engin svör hafa borist við þessum áskorunum né öðrum sem á undan voiu komnar. Heimilisfrædi í grunnskólum Heimilisfræði í grunnskóla er það nám kallað sem áður hét matreiðsla í barnaskólum. Árið 1906 hófst kennsla í matreiðslu í barnaskóla Reykjavíkur. Kenndar voru fjórar stundir í viku. Árið 1927—28 er kennd matreiðsla í 6. og 7. bekk, 4 stundir á viku allan veturinn. Handavinnukennsla hófst í Reykja- vík fyrir aldamót og er komin á í flestum barnaskólum í kauptúnum landsins 1927. Allar stúlkur fá handavinnukennslu í 3.-8. bekk tvær stundir á viku um þetta leyti. Samkvæmt grunnskólalögunum er heimilisfræði kennd tvær stundir í viku í 7. og 8. bekk eða fjórar stundir V2 skólaár, fyrir bæði kynin. Þetta er helmingi minna en kennt var áður á hvem nemanda en þá nutu aðeins stúlkur þessarar kennslu. Sama er að segja um handavinnukennslu, hún hefur minnkað um helming, var 2 stundir á viku allan veturinn en er nú 2 stundir á viku hálfan vetur, en bæði drengir og stúlkur eiga að læra bæði smíðar og handavinnu. Sú afar undarlega hugmynd virð- ist hafa komist inn hjá hópi fólks að þessi barnaskólakennsla geri húsmæðraskólana óþarfa og margir rugla saman heimilisfræðikennsl- unni í grunnskólunum og hús- mæðra- eða hússtjómamámi í framhaldsskólum, sem er alls ósam- bærilegt. Eins og áður greinir em 80 ár frá því fyrst var kennd mat- reiðsla í bamaskóla Reykjavíkur og þrátt fyrir lög þar um er þetta nám ekki komið á í öllum grunnskólum landsins. Aðstaða fyrir þetta nám er víðast hornreka íbyggingu skóla- húsnæðis og er erfitt að fá kennara. Námið hefur lítið breyst þó nafnið breyttist og er það sama í dag og þegar ég kynntist því fyrst í æfinga- kennslu í Reykjavík 1943, nema að það er helmingi styttra nú. Það gefur auga leið að ekki kemur þetta í stað heilsvetrar náms í húsmæðra- skóla þar sem nemendur eiga að vera komnir undir tvítugt. Meira að segja hefur þessi skilningur að húsmæðranámið sé komið inn í gfunnskólana komið fram í máli alþingismanna í umræðum sem urðu um húsmæðraskólana í febrú- ar 1985. Hvað er kennt í hús- stjórnarskólunum o g hvernig nýtist námið Samkvæmt þeirri námsskrá, sem síðast gilti, _var bóklegt nám sem hér segir: íslenska, uppeldis- og sálarfræði, félagsfræði, næringar- fræði, vöruþekking, búreikningar og heimilishagfræði, heilsufræði kvenna og meðferð ungbarna, hí- býlafræði, vefjarefnafræði, áhalda- fræði, vefnaðarfræði, sniðteikning- ar, matreiðsla, þvottur og ræsting, söngur, sund og leikfimi. Verkleg kennsla í matargerð og framreiðsla. Kennsla í hollum og ódýrum hvers- dagsmat, geymsla matvæla, haust- matargerð, veislumatur og verðút- reikningur. Að ganga um beina, gestamóttaka og háttvísi. Þvottur og meðferð á öllum algengum veíj- arefnum, ræsting á öllum almenn- um húsbúnaði, herbergjum og munum á venjulegu heimili. Hreins- un og viðhald fatnaðar. Kenndur allur almennur saumaskapur og að sníða, einnig útsaumur, handpijón, hekl og vélpijón og viðgerðir á fatnaði. Kennd undirstöðuatriði í vefnaði, uppsetning og útreikningur í vef og allar almennar vefnaðar- gerðir. Athygli nemenda vakin á þjóðlegum fyrirmyndum og á per- sónulegum blæ heimaunninna muna. Skólarnir hafa verið menningar- heimili sem hafa skilað nemendum sínum þroskaðri og betri þjóðfélags- þegnum og með gott veganesti til þeirra starfa sem eru mikilvægust í þjóðfélaginu, en það eru heimilis- og uppeldisstörf. Á þessari upptalningu sést að námið er afar fjölbreytt og einnig að þetta er ekkert grunnskólanám. í lögunum sem samþykkt voru 1975 og aldrei hafa komið til fram- kvæmda segir svo: „Hlutverk hús- stjómarskóla er að veita verklega og bóklega menntun í hagnýtum greinum heimilisfræða og búa nemendur undin 1. Hirðingu og umönnun heimilis og fjölskyldu. 2. Störf og þjónustu í hússtjómar- greinum og félagsmálum. 3. Fram- haldsnám í æðri skólum, til dæmis kennaraskólum, félagsmálaskólum, fóstmskólum, hjúkmnar- og hótel- skólum o.fl.“ Hússtjórnarnámið er fagnám og á að meta það sem slíkt Stjórnmálamenn tala oft fagur- lega um homsteina þjóðfélagsins, heimilið og íjölskylduna og beita sér þá gjarnan fyrir sérstökum málaflokkum eins og dagheimilum fyrir börn og aldraða, stofnun elli- heimila og allskonar dvalarheimila og tala þá einnig um bætt kjör lág- launafólks. Talað er um stóraukna ferðamannaþjónustu og skort á fólki til þess að vinna öll þessi störf. Starfsfólkið er fyrir hendi en það má ekki fá neins konar starfsréttindi né hærri laun fyrir kunnáttu sína. Þetta eru allir þeir sem lokið hafa prófi frá húsmæðraskólum. Nemendafé- lög og fyrrverandi nemendur þessara skóla ættu að bindast samtökum um að fá viðurkenn- ingu á námi sínu. Það er rétt- lætiskrafa. Alls staðar er verið að bjóða fólki hærri laun út á smánám- skeið. í fjölbrautar- og menntaskólum er verið að koma á námskeiðum í matreiðslu, saumum og vefnaði. þetta eru stutt námskeið, aðeins 18 til 24 skipti, en gefa 3—4 punkta í áfangakerfinu. Þeir sem hafa verið í heilsvetrar hússtjórnarskóla fá ekkert út á sitt langa og góða nám. Ekki er einu sinni skilyrði að hafa verið í hússtjórnarskóla til þess að fara í heimilisfræðivalnám í Kenn- araskólanum. Hússljórnar- kennaraskóiinn Eins og áður sagði brautskráðust síðustu húsmæðrakennararnir árið 1977. Senn fer að verða skortur á kennurum. Starfssvið fyrir hússtjórnarkenn- ara er fjölþætt. Hússtjórnarskólinn á Varmalandi í Borgarfirði er einn þeirra skóla sem menntamálaráðherra hefur boðað að lagðir verði niður í haust. 15 1. Kennsla í hússtjóm á öllum skólastigum og fyrir alla aldurs- hópa. 2. Ráðunautastörf. 3. Fjölmiðlastörf. 4. Rannsóknastörf og tilraunamat- reiðsla fyrir matvælaiðnaðinn. 5. Kynning á matvælum, heimilis- tækjum og innréttingum. 6. Ráðgjöf við heilsugæslustöðvar o.fl. En fyrst og fremst er það ráðgjöf sem miðar að betra heimilishaldi, aukinni hollustu, nýtingu fæðuefna ' og hagsýni í innkaupum sem mest þörfin er á. Þetta nám á að vera hér á landi eins og þeir aðilar sem unnu að stofnun Húsmæðrakennaraskólans héldu fram, þó framhaldsnám væri stundað erlendis. Það kemur fram æ oftar í við- tölum eða erindum í fjölmiðlum um heilbrigðismál, uppeldis- og neyt- endamál og margt fleira að mæl- endur telja að kennslu eða þekkingu vanti í ýmsum þáttum daglegs lífs. Má þar nefna næringarfræði, vöru- þekkingu, neytendamál, uppeldis- mál, hagsýni og spamað, meðferð ungbama og fleira. Allt var þetta kennt í húsmæðraskólunum. Virðist svo sem ræðumenn geri sér þetta ekki ljóst. Halda að þama sé eitt- hvað nýtt á ferðinni sem þurfi að koma á framfæri. Sem dæmi má nefna næringarfræði sem hefur verið kennd í þessum skólum frá upphafi, því getið er um kennslu í hollustu og nýtni í matargerð að Laugalandi fyrir hundrað ámm. Hverjir eiga hússtjórnarskólana? Því er fljótsvarað að ríkið og sveitarfélögin þar sem þeir standa teljast eigendur. En hveijir unnu að stofnun þeirra? Það gerðu heimamenn, kvenfélög og kvenfélagasambönd ásamt ýmsum áhugamönnum um þessi mál. Þeir vom flestir reistir samkvæmt lögum um húsmæðra- skóla í sveitum. Allir greiða í skött- um sínum til menntamála og lands- byggðin hlýtur að eiga rétt á því að hennar hlutur í þessum skóla- stofnunum sé virtur og að þær séu ekki þagðar í hel og síðan lokað án þess að nokkurt samráð sé haft við heimamenn eða hlustað á tillögur þeirra og óskir. í heimabyggðum hafa skólarnir verið menningarmiðstöðvar sem heimamenn hafa litið upp til og hlúð að. Hvað kemur í staðinn og með hvaða rétti eru þeir lagðir niður án samráðs við heimamenn? Hvernig verða eignir þessara stofnana gerðar upp? Verða þær bitbein þeirra sem vilja kaupa og heimamanna? En það eru þá aðallega kven- félagasambönd og kvenfélög í hér- uðum, þau sem unnu að stofnun skólanna. Fyrir nokkru er lokið frá- gangi eigna og einkamuna og sölu á hlut sýslunnar í húseign einnar af þessum skólastofnunum. Hlaust þar af mjög leiðinlegt mál. Annar skóli bíður þess að gengið sé frá eignum hans og má segja að einka- munir, bókasafn og aðrir munir liggi undir skemmdum og hrekist um húsið, ófrágengnir. Hvernig verður þetta á öðrum stöðum þar sem nú stendur til að loka skólun- um? Þetta mun endurtaka sig og ættu kvenfélagasambönd og nem- endasambönd að vera vel á verði um hagsmuni sína ef fer sem nú horfir, að fleiri skólum verði lokað eða þeir teknir til annarra nota. Þjóðhagslegt gildi húsmæðraskólanna Það er svo nú til dags að allt er metið eftir því hvort það auki hag- vöxtinn. Störf húsmæðra gera það ekki, þau eru einfaldlega hvergi reiknuð með. Hvað fer mikið fjármagn í gegnum hendur þeirra sem heim- ilunum stjórna? Er alveg sama hvernig því er varið? Er óþarft að ungt fólk læri hússtjórn áður en heimili er stofnað? Er sama hve miklu er eytt í ónotuð eða lítið notuð tæki eða í hreint

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.