Morgunblaðið - 20.07.1986, Side 4

Morgunblaðið - 20.07.1986, Side 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986 MERYL STREEP OG KAREN BLIXEN „Um leið og ég setti mig í spor Karenar Blixen fannst mér óg verða eins og hún. Sú þrjózka að vilja breyta raunveruleikanum er okkur sameiginleg." Þetta segir kvikmyndastjarnan sem þekkt er fyrirtitilhlutverkin í„The French Lieutenants’s Woman" og „Sophie’s Choice". Hún er að verða móðir i' þriðja sinn og vill helzt halda sig sem lengst frá erli fjöldans. Hún viðurkennir að hafa verið heppin en telur að hún eigi allt að þakka þeim sem hún hefur starfað með. „Að leika í léttum gamanleik? Bara að það fyndust einhverjir slíkir," segir Meryl Streep. Hún er 36 ára en lítur út fyrir að vera tíu árum yngri. Gullið hárið fellur niður með vöngunum eins og umgjörð um ómálað andlitið. Húðin er þunn og minnir á fínasta postulín þar sem hvergi örlar á ójöfnu. Varirnar eru mjúkar og rósbleikar og augun eru dreymin og djúpstæð, blíðleg og döpur i senn. Meryl Streep — þar sem hún breiðir úr sér á legu- bekk i svitu Westbury-gistihúss- ins á milli 69. strætis og Madison-breiðgötu í hjarta New York-borgar — er jafnvel enn fegurri í eigin persónu en á hvita tjaldinu. Hún er ægifögur. Þó tekst henni ekki fullkomlega að fela það að hún er þreytt. Hún á erfítt með andardrátt. Að undan- fömu hefur hún leikið í þremur kvikmyndum („Plenty", „Out of Africa" og „Heartbum") og nú á hún von á bami í maí. Fyrir á hún tvö böm, Henry sem er sex ára og dótturina Mary Willa sem er tveggja ára, með manni sínum, myndhöggv- aranum Donald Gummer. Hún var útnefnd bezta leikkona ársins fyrir aðalhlutverkið í „Out of Africa" en áður hefúr hún hlotið tvenn óskarsverðlaun. Sidney Pollack stjómaði kvikmyndinni þar sem efniviðurinn er sóttur í sam- nefnda sjálfsævisögu dönsku skáldkonunnar Isak Dinesen sem varð fræg undir höfundamafninu Karen Blixen. Þetta er ástarsaga skáldkonunnar og Finch Hatton, en sá önugi enski lávarður er leikinn af Robert Redford. Karen Blixen keðjureykti og hún var óforbetranlegt snobb eins og sjá má af því að hún bauð gestum ekki upp á annað til kvöldverðar en ostrur, þrúgur og kampavín. Hún var alsæl með það að vera ávörpuð „barónessa" en þann titil fékk hún með eiginmanninum, Bror von Blix- en baróni sem Klaus Maria Brand- auer leikur í myndinni. Baróninn var ólæknandi kvennaflagari og hann smitaði konu sína af sárasótt sem þjáði hana til dauðadags. „Ég las bókina þegar ég var í menntaskóla," segir Meryl Streep, „og sú mynd sem þar er brugðið upp af Afríku hafði djúpstæð áhrif á mig en um Blixen vissi ég ekki nokkum skapaðan hlut. í bókinni er það vissulega Hin myrka álfa sem fer með aðalhlutverkið og skáldkonan er nánast ósýnileg. Þegar ég fékk hlutverkið las ég allt um hana sem ég komst yfír, sendibréf, ævisögu, skáldsögur ...“ AF: Fannst þér erfitt að setja þig í spor svo flókinnar persónu? MS: Nei, ekki þegar á allt er lit- ið. Það er miklu auðveldara að móta persónu sem raunverulega hefur verið til en að búa til nýja eða ímyndaða persónu. Þetta er rannsóknarstarf. Maður verður að troða sér inn í innstu sálarfylgsni og njósna um hveija athöfíi.. .að sjálfsögðu stendur maður þá frammi fyrir því að velja. í mynd- inni er ég ekkert ljósrit af Karen Meryl Blixen. Þvert á móti: Eg leitaðist við að móta mína eigin persónu, sem féll að handriti Kurts LUudtke og stjóm Sidney Pollack. Þessi persóna er að mörgu leyti frábrugðin hinni raunvemlegu Karen Blixen. Ég ræddi við marga sem þekktu hana, t.d. Judit Thurman, sem skrifaði hina dásamlegu ævisögu, „Isak Dinesen: The Life of a Storyteller", og hún hafði að vissu leyti áhrif á myndina í gegnum vin sinn John Gielgud. „Hún er enn í minnum höfð í Kenýa. í einni af veizlum fína fólks- ins þar var ég kynnt fyrir öldruðum enskum lávarði. „Þú ert sumsé að leika Karen Blixen," sagði hann þar sem hann studdi sig fram á stafínn sinn og tuggði ijól. „Hræðileg manneskja sem ég hafði aldrei nein- ar mætur á. Það hefði átt að loka hana inni! Enn þann dag f dag er Nairobi að vissu leyti eins og hún var þegar Karen Blixen var og hét — þar er fullt af evrópskum inn- flytjendum, nýlendusinnum og sérvitringum. AF: Telurðu að þú eigir eitt- hvað sameiginlegt með þessari nýjustu persónu þinni? MS: í augum Karenar Blixen var lífið eins og trúarbrögð sem fólust í möguleikanum á því að sveigja raunveruleikann og breyta honum í eitthvað sem var fagurt og já- kvætt. Að þessu leyti erum við alveg eins og kannski er það ástæðan fyrir því að ég tók að mér þetta hlutverk. AF: Er það ekki rétt að þetta er í fyrsta sinn sem þú leikur í mynd undir stjóm Sidney Pollack? MS: Jú. í fyrstu var Sidney ekki viss um að ég gæti leikið þetta hlut- Streep verk, þrátt fyrir það að höfundur handritsins hafði mig í huga þegar hann skrifaði það. Sidney Pollack er haldinn fullkomnunaráráttu og hann er yfír og allt um kring þar sem kvikmyndunin fer fram. Hann hugsar fyrir bókstaflega öllu og vinnuharkan er að gera mann vit- lausan. _ AF: Áttir þú í einhverjum sér- stökum erfiðleikum á meðan kvikmyndunin átti sér stað? MS: Heimþráin var að gera út af við mig. Ég var í Afríku í meir en sex mánuði með alla fjölskylduna sem fylgir mér hvert sem ég fer. Það á ofboðslega illa við mig að vera svona lengi í útlöndum af því að ég kann aldrei við mig á þessum stöðum. En síðasta daginn kom dálítið fyrir sem olli okkur öllum geðshræringu. Á meðan við dvöld- umst í Afríku höfðum við haft innfædda matselju, garðyrkjumann og ráðsmann. Þegar við vorum búin að koma ferðatöskunum og bömun- um inn í bflinn tókum við eftir þessum þremur manneskjum sem stóðu þama í rigningunni, grát- andi, orðlausar og mjög alvömgefn- ar.. .alveg eins og í myndinni. Á þessari stundu fékk ég að reyna nákvæmlega það sama og Karen Blixen þegar hún fór frá Afríku. Þetta er ólýsanleg tilfínning. Ég hef aldrei fundið fyrir henni í nokkm landi þar sem ég hef dvalizt fyrr en nú. Ég skildi þá hvað Karen Blixen átti við þegar hún skrifaði: „Ég verð að fara aftur til Afríku, það er óhjákvæmilegt... Hafí ald- ingarðurinn Eden virkilega verið til þá hefur hann heitið Afríka.“ AF: Fyrsta kvikmyndahlut- verkið þitt var Guilia sem var Norðurlandabúi. Nú hefurðu leikið danska konu, Karen Blix- en. Hefurðu ef til vill sérstakar mætur á Norðurlandabókmennt- um? MS: Nei, alls ekki. Við heimkom- una sökkti ég mér reyndar í hlut- verk sem er mjög frábrugðið, í myndinni Heartbum eftir Mike Nic- hols sem nú býr í New York. Það er leitt að þurfa að viðurkenna það en ég hef engan tíma til að lesa eitt eða neitt, nema lexíur sonar míns. AF: Ákveðnir gagnrýnendur hafa skilgreint þig sem „dæma- laust mannlegt kamelljón“. Þó segja þeir að þetta nýja hlutverk sé nær hinni raunverulegu Meryl Streep en öll fyrri hlutverk. Er þetta rétt? MS: Ég hef vissulega leikið per- sónur sem hafa verið erfíðari viðfangs. Ég get t.d. neftit Sophie en hún var mjög ólík sjálfri mér. Hún flýr þann sannleika sem býr innra með henni og afneitar honum. Hún er líka frá Evrópu og kvenleiki hennar er svo gjörsamlega evrópsk- ur, en þetta er mér algjörlega framandi. Ég hef alltaf skoðað þetta úr fjarlægð. Stundum hef ég hæðst að henni, stundum hef ég öfundað hana og stundum hef ég látið hana blekkja mig. En samt hef ég alltaf staðið álengdar. Karen Blixen er ekki taugaveikluð eins og allar aðr- ar persónur sem ég hef leikið fram að þessu. Hún er í rauninni ótrúlega flækt í sjálfri sér. Hún er erfið og jafnvel óþolandi en hún þekkir sjálfa sig til hlítar og veit hvað hún vill. Hún er kona þeirrar gerðar sem líkist sjálfri mér miklu meira en sú kona sem gerir sér ekki grein fyrir því hvar hún er stödd í alheiminum. AF: Er nauðsynlegt að þér þyki vænt um persónu tU þess að þú getir mótað hana í kvik- mynd? MS: Ætli það, fyrst mér þótti ekkert sérstaklega vænt um Karen Blixen. Á sama hátt og hún þá hef ég alveg óskaplegt sjálfstaust. Ég veit ekki hvaðan það er komið en það er þetta sjálfstraust sem heldur mér uppi og fær mig til að gera það sem ég geri frammi fyrir ijöld- anum. AF: Þú hefur alltaf leikið hlut- verk sem hafa verið flókin, mótsagnakenndar konur með al- varleg vandamál. Hefur þér aldrei dottið í hug að leika eitt- hvað léttara, t.d. gamanhlut- verk? MS: Mig hefur alltaf langað til þess en það er bara svo lítið um skemmtilega gamanleiki. Þess vegna reyni ég að vera dálítið gam- ansöm þegar ég leik harmþrungin hlutverk. Það má telja gamanhlut- verk fyrir konúr sem fram hafa komið á síðustu tíu árum á fíngrum annarrar handar. AF: Hvernig er það að vera fremsta konan f bandariska kvik- myndaiðnaðinum, sú sem kvik- myndastjórar dá mest og almenningur líka? MS: Ég geri mér svo skýra grein fyrir þeirri gæfu sem mér hefur hlotnsát að mig svimar og þessi staðreynd veldur mér öryggisleysi. Innra með mér líður mér eins og stúlkunni sem sem fór í Yale- háskólann. Þegar ég kom aftur til Ameríku eftir að hafa verið í eitt ár í Nairobi og Lundúnum gerði ég mér grein fyrir því hvað er að vera kvikmyndstjama. Ég var vön því að vera óþekkt og það er dásamleg tilfinning. Að vera í órafjarlægð frá þessum yfírþyrmandi fjölda og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.